Fréttir úr Ægissvæði

Segja má að þjófstartað hafi verið í Ægissvæði hvað varðar stjórnarskipti en hefð er fyrir því að nokkrir klúbbar séu með sinn stjórnarskiptafund í september. Eldey og Setberg höfðu sameiginlegan fund 23. sept. Hraunborg var svo 29.september. Keilir, 5. október. Eldborg, 6. október og að lokum Brú, Harpa, Hof og Sólborg með sameiginlegan fund, þann 7. október. Voru þetta hinir ágætustu fundir en þó mættu kiwanisfélagar taka sig á hvað varðar mætingu á þessa fundi, alltof mikið er um það að félagar úr fráfarandi stjórn svo og aðrir sem eru að taka við embætti láti ekki sjá sig. Það er viss ábyrgð sem fylgir því að taka við embætti í klúbbum og því ættu félagar að bera meiri virðingu fyrir því. Stjórn klúbba er jú andlit hans útávið.

Kiwanisklúbburinn Keilir hélt 30 ára afmælisfagnað 30. September með veglegri hátíð. Þann dag afhentu þeir styrki fyrir 1.570.000, auk þess sem þeir heiðruðu fjóra félaga með viðurkenningum úr hinum nýstofnaða styrktarsjóði umdæmisins. Guðmundur Pétursson fráfarandi umdæmisstjóri sem hlaut gullstjörnu nr.1 en hinir fengu silfurstjörnu, þeir eru Einar Már Jóhannesson, fráfarandi umdæmisritari. Karl Antonsson, fráfarandi umdæmisféhirðir og Andrés Hjaltason, fráfarandi svæðisstjóri Ægissvæðis.

Það voru stoltir Keilisfélagar eftir þennan dag og sýnir hvað Kiwanishreyfingin lætur margt gott af sér leiða fyrir samfélagið auk þess sú ánægjustund þegar félagar eru heiðraðir fyrir vel unnin störf.

Fyrsta svæðisráðstefnan var þann 28.oktober sl haldin hjá Hofi í Garði. Þar var tekið vel á móti félögum úr svæðinu. Mæting var góð eða 36.félagar. Svæðisráðstefnur eru góður vettvangur fyrir kiwanisfélaga að mæta á og koma skoðunum sínum á framfæri. Forsetar ættu að hvetja alla félaga úr klúbbnum til að sækja þessa fundi, allavega einu sinni á starfsárinu, því með því myndast meiri kynni meðal félaga. Á þessari svæðisráðstefnu var ákveðið að færa sumarhátíðina okkar yfir í Brautarholt á Skeiðum og verður hún þar 6-8 júlí 2001. Með þessu viljum koma til móts við þá sem ekki hafa viðlegubúnað en þarna er hægt að gista í skólastofum og eldunaraðstaða er þar líka. Vonum við að fleiri mæti næsta sumar en gætt hefur talsverðrar fækkunar á sumarhátíð undanfarin ár. Til okkar kom líka Hjörleifur Már Jónsson formaður markmiða- og klúbbaþjónustunefndar, hann kynnti okkur markmið umdæmisins og sagði okkur frá klúbbaþjónustunefndinni en þar er um að ræða nefnd sem getur aðstoðað klúbba sem eiga í erfiðleikum. Mér finnst það mikilvægt fyrir klúbba að nýta sér þessa nefnd því fullur vilji er innan umdæmistjórnar að taka nú höndum saman og styðja við bakið á þessum klúbbum en ekkert gerist ef klúbbarnir sjálfir skoða ekki sín innri mál og óska ekki eftir þjónustunni.

Að öðru leyti hefur starfið í klúbbunum í Ægissvæði farið vel af stað og almenn bjartsýni ríkir. Núna eru framundan fjáröflunarverkefni margskonar. Hraunborg til að mynda hélt sinn
árlega villibráðadag 4. nóv. sl og tókst hann með miklum ágætum en þetta er þeirra aðalfjáröflun. Framundan hjá þeim er svo 15.ára afmælisfagnaður en þeir eiga afmæli 27. nóvember en veislan verður 25. nóv. í Gaflinum Hafnarfirði

Það er búið að skipa samstarfsnefnd innan svæðisins og mun hún hefja störf innan tíðar en með þessu teljum við að klúbbar auki tengsl
sín á milli. Margar hugmyndir koma í ljós þegar félagar setjast niður yfir spjalli og um að gera að virkja sem flesta. Því margar hendur vinna létt verk. Ég vil að lokum óska öllum kiwanisfélögum velfarnaðar í starfi.

Með Kiwaniskveðju
Oddný Ríkharðsdóttir
Svæðisstjóri Ægissvæðis

[ Til baka - Back ]