Fróðleiksmolar af Eddusvæði

Starfsemi klúbbanna á Eddusvæði er nú komið í fullan gang að afloknu sumarleyfi. Stjórnarskipti fóru fram sem hér segir: 30. sept. í Höfða, Kötlu og Vífli, 2.okt. í Þyrli, 3.okt. í Smyrli, 7.okt. í Jörfa og 14.okt. í Korra. Þegar þetta er skrifað hefur ekki tekist að skipta um stjórn í Jöklum en verður væntanlega búið er þið lesendur góðir lítið þessa grein augum. Í stefnuræðum ný innsettra forseta kom skýrt fram sú ætlan að fylgja markmiðum 2000-2001 og að hafa í heiðri kjörorð 2000-2001."Til nýrrar aldar í krafti hugsjóna og víðsýni".

Þegar þessi orð eru sett á blað er umdæmisstjóri á ferð um Eddusvæði og heyrist mér vera mikil ánægja með framtakið þ.e. að heimsækja alla klúbba í umdæminu á starfsárinu.

Nú fer í hönd sá tími er flestir klúbbar á Eddusvæði standa í ströngu við aðalfjáröflun ársins, þ.e. jólapappírssölu, jólatréssölu og sölu flugelda. Mikil vinna liggur í undirbúningi og framkvæmd þessara verkefna og er það von mín að vel takist hjá okkur öllum.

Að endingu vil ég óska þér lesandi góður gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á nýju ári.

Með kiwaniskveðju,
Guðbjörn Ásgeirsson,
svæðisstjóri Eddu.

[ Til baka - Back ]