Frá féhirði

Á umdæmisþinginu í Reykjanesbæ sl. haust ríkti mikil jákvæði og góður hugur í Kiwanisfélögum vegna stofnunar Styrktarsjóðs Kiwansisumdæmisins Ísland-Færeyjar. Strax eftir stofnun sjóðsins, lögðu einstaklingar fram fyrstu framlögin til sjóðsins, alls kr. 85.000,-. Þá komu fram á þinginu loforð um framlög frá Kiwanisklúbbunum Búrfelli og Höfða. Síðan þá hafa bæst í hópinn Kiwanisklúbbarnir Keilir, Hekla, Harpa og Elliði. Samtals má áætla að framlög þessara klúbba til sjóðsins nemi um kr. 340.000,-. Þá hafa selst tvær Gullstjörnur og þrjár Silfurstjörnur, að andvirði kr. 155.000.m- Samtals hafa þá safnast kr. 580.000,- þegar þessi loforð hafa skilað sér til sjóðsins.

Styrktarsjóður Kiwanisumdæmisins Ísland-Færeyjar hafa stofnað bankareikning í Íslands-banka. Reikningsnúmerið er 525-14-112460 og kennitala sjóðsins er 640173-0179. Framlög til sjóðsins má greiða beint inn á bankareikninginn í næsta banka eða sparisjóði. Þeir sem leggja inn á bankareikning sjósins eru minntir á að merkja vel á innleggið frá hverjum það er og hvers vegna.

Einar Már Jóhannesson, 
féhirðir.

[ Til baka - Back ]