86. Heimsþing Kiwanis

Taipei, Taiwan 23.-27. júní 2001


Kæru Kiwanisfélagar!

Þann 29. október síðastliðinn boðaði umdæmisstjóri formann ferðanefndar til fundar ásamt umdæmisstjórnarmönnum. Til umræðu var hugsanleg þátttaka okkar í Evrópu- og heimsþingi 2001. Þar kom fram meðal annars að áhugi væri fyrir Heimsþinginu í Taipei. Skoðaður var sá ferðapakki sem var settur saman sérstaklega fyrir þingfulltrúa, fjölskyldur þeirra og vini. Verð fyrir manninn miðað við tvo sem ferðast frá Reykjavík. USD 1.995 ca. kr. 174 þúsund. Gisting í fjórar nætur með morgunverði. Aukagistinótt USD 175. Skutlur til og frá þingstað og skoðunarferðir í og umhverfis Taipei. Flugvallaskattur ekki innifalinn. 

Ákveðið var að undirritaður leitaði eftir tilboði í 14-16 gistinætur ásamt flugi hjá Heimsklúbbi Ingólfs. Þar var mér afar vel tekið. Árangur af samtölum okkar Ingólfs er sú ferðatilhögun sem birt er hér í blaðinu. Á umdæmisstjórnarfundi í Borgarnesi þann 4. nóvember síðastliðinn kynnti ég þessa ferðatilhögun og lagði fram þátttökulista. Fimm félagar skráðu sig ásamt mökum. Mikilvægt er að félagar tilkynni þátttöku sem allra fyrst, þar sem um sértilboð á flugi er að ræða. Stefnt er að kynningarfundi þann 14. janúar 2001 að Engjateigi 11. Verður sá fundur auglýstur síðar ásamt fullmótaðri ferðaáætlun á netsíðu hreyfingarinnar.

Kær kveðja
Björn Jóhannesson,
formaður ferðanefndar.

 

Kæri Björn

Heimsklúbburinn þakkar fyrirspurn þína varðandi fyrirhugaða þátttöku í Heimsþingi Kiwanis International í Taipei í júní 2001.

Þar eð ég hef ágæt sambönd á Taipei og hef áður gert út ferðir fyrir stóra hópa þangað, brást ég strax við með fyrstu könnun. Mér er ánægja að tilkynna þér, að niðurstaðan er mjög ánægjuleg og fjárhagslega hagkvæm. Samkvæmt uppástungu þinni setti ég saman bráðabirgðaplan um ferðina sem hér fer á eftir.

21.06.01 fimmtudagur Flug Flugleiða að morgni til Amsterdam, lendir um hádegi. Framhaldsflug til Taipei með China Airway kl.. 14.20 til Taipei með einni millilendingu í Bangkok. Breiðþota 747 með góðri þjónustu og veitingum á leiðinni. Jafnvel hægt að fá Business Class sæti ódýrt.

22.06.01 föstudagur Lent í Taipei upp úr hádegi. Flutningur til hótels í miðborginni (4* með morgunverði) 7 nætur.

23.06.01-28.06.01 laug.-fimmtud. Þinghald í Taipei + skoðunarferðir um borgina og nágrenni.

29.016.01 föstudagur Flug Taipei-Bangkok-Chiang Mai í Norður Thailandi. Gisting á 4* frábæru hóteli í þessari fögru og vinsælu borg, sem mestrar hylli nýtur hjá gestum í Thailandi. Borgin er miðstöð listiðnaðar og silkiframleiðsla í landinu með fjölda fagurra mustera í heillandi umhverfi. Hægt er að fara í skemmtilegar skoðunarferðir, t.d. í Fílaþorpið að sjá stærsta landdýrið að störfum og leik og skreppa á fílsbaki út í skóg! - 4-6 dagar. Einnig er hægt að bæta degi við og fara þá í 2ja daga afar spennandi Safariferð um nyrsta hluta Thailands, til Chiang Rai með kynnisferð um Gullna Þríhyrninginn" á landamærum Burma, Thailands og Laos með gistingu 5* Dusit Hotel í Chiang Rai, sem mörgum finnst hápunkturinn í Thailandsferð.

03.07.01 eða 04.07.01 Flug frá Chiang Mai (Chiang Rai) til Bangkok, höfuðborgar Tailands, sem er í ein stærsta borg Austurlanda, mesta skemmtiborgin með bestu hótelum heimsins, jafnframt því að vera ein besta verslunarborg sem um getur með fjölbreyttum, fallegum varning, s.s. fatnaði, skartgripum, gjafavöru og hverju sem hugurinn girnist. Gisting á 5* Montien Riverside Hotel, á bakka Kóngsfljóts, með útisundlaug, sólabaðsaðstöðu, 5 veitingarhúsum og hvers kyns munaði á gjafaverði með samningum Heimsklúbbs Ingólfs & Prímu. - 3-4 nætur.

08.07.01 Flug Bangkog-Amsterdam-Keflavík, með brottför frá Bangkok kl. 02.00, lent í Keflavík kl. 15.00.

 

Verðhugmynd:

Flug Keflavík-Amsterdam-Taipei-Bangkok-Chiang Mai-Bangkok-Amsterdam-Kefla-vík, flutningur á milli flugvalla og gististaða, aðstoð leiðsögumanns í Thailandi. Gisting með morgunverði á 4-5* hótelum í 16 nætur (Taipei 7, Ching Mai/Rai 5, Bangkok 4). Ferð í háum gæðaflokki á lágu verði.

Áætlað kr. 159.500 á mann í tvíbýli + flugvallaskattur. Nauðsynlegt er að svara tilboð sem fyrst, þar eð um sértilboð er á flugi að ræða. Staðfestingargjald er kr. 20.000 á mann við pöntun. Miðað er við lágmarksþátttöku 30 manns.

Með bestu kveðju,
einnig til fyrrum félaga.
Ingólfur Guðbrandsson.

[ Til baka - Back ]