Frá Internetnefnd Umdæmisins

Til nýrrar aldar í krafti hugsjóna og víðsýni" Er kjörorð umdæmisstjórnar okkar þetta starfsárið. Vinnur nú stjórnin ásamt formönnum nefnda eftir samþykktri stefnumótun að framgangi þeirra markmiða sem við höfum sett okkur sem miðar að því að styrkja innviði kiwanishreyfingarinnar og almenna kynningu á henni. Stefnumótun þessi getur aldrei orðið það vopn í hendi okkar sem henni er ætlað og náð tilgangi sínum nema klúbbarnir vinni einnig heilshugar að framkvæmd hennar.

Að fjölga félögum í klúbbunum er eitthvað sem við höfum heyrt svo oft og engin virðist hafa fundið galdurinn til þess nema að vera skyldi klúbburinn Helgafell í Vestmannaeyjum sem hefur ákveðið þak á því hvað margir fá að ganga inn í klúbbinn á ári hverju eftir því sem mér er sagt.

Ef við skoðum þetta nánar þá eru þeir í litlu samfélagi þar sem allir þekkja Kiwanis og vita að það er gott að vera í þeirra röðum. Er þetta ekki galdurinn? Kynning á starfseminni og klúbbunum?

Hlutverk internetnefndar er að sjá um og kynna Kiwanis á Íslandi" gegnum Internetið. Á Internetinu og veraldarvefnum liggja orðið upplýsingar um alla skapaða hluti sem mannlegu eðli eru viðkomandi. Vegalengdir þarna til upplýsinga eru jafnvel styttri en í Vestmannaeyjum.

Þið sem eigið börn eða unglinga og eruð uppalendur. Hvenær sáuð þið unglinginn ykkar síðast ganga að kaldavatnskrananum og fá sér hreint kalt vatn að drekka til að slökkva þorsta sinn?
Er svarið? Djús og gos er það sem drukkið er".
Hvenær sáuð þið unglinginn ykkar síðast sitja og lesa dagblað?
Er svarið? Ekki oft. En við tölvuna er setið og vafrað á netinu og spjallrásum og skrifuð E-mail og svo ekki sé talað um öll SMS skilaboðin.

Staðreynd er, að unga fólkið les frekar vefsíðufréttir en fréttir blaða. Nýleg könnun leiddi í ljós að 75% heimila á Íslandi eiga tölvur og eru tengdir Internetinu í dag. Og hvernig sáum við Kiwanis hugsjóninni betur til þessarar kynslóðar, en setja upplýsingar á veraldarvefinn?

Vefsíða umdæmisins var sett inn að nýju 1. september. Var hún endursmíðuð og settar inn í hana upplýsingar um nýja stjórnendur. Þeirri uppbyggingu sem var búið að leggja upp með á síðasta ári var haldið að stóru leiti, en breytt aðeins umhverfi og áferð. Teljari var nú settur upp sýnilegur, en á síðasta ári voru um 1030 heimsóknir inn á síðuna, sem segir okkur að þessi vinna kemur einhverjum að gagni og væntanlega einhverjum til fróðleiks.

Að smíða svona síðu er verk sem aldrei er lokið ef vel á að vera. Þetta er ekki eins og í blaðaútgáfu. Efnið fundið, formað, því raðað upp og síðan prentað, og eftir dreifingu er ekki aftur snúið, nú er þetta búið og gert. Að því leiti er vefsíðan öflugri miðill. Endalaust er hægt að hagræða og betrumbæta eins lengi og menn nenna og hafa tíma til. Síða sem oft er sest að til lagfæringar verður líka áhugaverðari fyrir þann sem að henni kemur sem gestur.

Kiwanishreyfingunni er lífsnauðsyn að umdæmisstjórnin sé virk í starfi og því sýnilegri sem hún verður félagsmönnum og umheimi því áhrifameiri og slagþyngri verða verk hennar. Kiwanisblaðið hefur verið í gegnum árin þungamiðjan í þeirri fréttadreifingu og hefur gagnast vel.

Dreifibréf umdæmisins var nú að koma út í fyrsta sinn í þriðja árgangi og er þar heldur betur búhnykkur á. Að dreifa því eins og gert var nú til allra félagsmanna og klúbba er ein af þeim áhrifaríkari framkvæmdum sem gerðar hafa verið í því að tengja saman
klúbbana og umdæmið.

Því sýnilegra sem starf umdæmisins er fyrir klúbbunum, því sterkari böndum ættu þeir að bindast við umdæmið og það er hinn eiginlegi styrkur kiwanishreyfingarinnar. Aukinn styrkur - meiri árangur.

Vefsíðan okkar á ekki að vera og kemur ekki í stað þessa tveggja miðla, heldur á hér að vera viðbót og aukinn styrkur til að tengja þessi öfl saman. Til að vera virkari þátttakendur í mótun þess samfélags sem við viljum sjá á 21. öldinni þá verðum við að temja okkur tungutak framtíðarinnar sem er internetið, vefsíðan og rafræni pósturinn.

13 vefir klúbba hafa litið dagsins ljós. En því miður hafa þrír fallið út aftur og tel ég það vera vegna þess að menn hafa ekki fengið nóga uppörvun í starfi sínu við að halda þeim við. Ós, Korri og Geysir áttu ágætis vefi sem nú eru horfnir.

Katla, Esja, Skjöldur, Brú, Hraunborg, og Eldborg eiga mjög góða vefi en yfirburða fallegir vefir og skemmtilegir eru vefir Höfða og Vífils. Við vitum af eigin raun að bak við þessa vefi alla liggja hundruð klukkustunda í beinni vinnu. Þeir láta ekki allir mikið yfir sér þessir vefir en eru allir höfundum sínum til sóma fyrir áhuga þeirra og starf.

Undirritaður fékk fyrirspurn frá félagum í Búrfelli á Selfoss, hvort mikið verk væri að setja upp vefsíðu klúbbsins. Útskýrði ég gang mála fyrir þeim. Er ég heimsótti þá á 30 ára afmæli þeirra ítrekuðu þeir þetta aftur og spurðu hvort ég vildi vera þeim innan handar og ráðgefandi og tók ég því vel og hvatti þá til dáða. Ég heimsótti þá svo á einn félagsmálafund þeirra og var þá búinn að setja vefinn þeirra inn og voru þeir mikið kátir við. Var gleði þeirra og þakklæti góð laun fyrir þann tíma sem ég hafði notað til þessa verks. Og fyrst ég var búinn að setja Búrfell á netið þá varð ég að setja Gullfoss inn líka. Eru þetta nýjustu vefirnir sem inn hafa verið settir. Að mínu mati væri það best að hver vefur hefði sinn smið, sinn höfund, því þannig verða þeir ólíkastir hver öðrum og áhugaverðari fyrir skoðandann.

Hvetjum við nú hvern forseta að koma upp vefsíðu fyrir sinn klúbb ef einhver möguleiki er til þess.

Að vista klúbbvefinn hjá kiwanisumdæminu kostar ekki neitt enn sem komið.

Hvernig ætlum við að ganga fram Til nýrrar aldar í krafti hugsjóna og viðsýni" ef við tölum ekki sama tungumál og þeir sem inn í hana eru að ganga?

Sigurbergur Baldursson,
sigurbal@islandia.is

Formaður Internetnefndar Kiwanisumdæmisins
Ísland - Færeyjar

[ Til baka - Back ]