Kiwanisklúbburinn Katla 35 ára

Þann 31.mars 2001 á Kiwanisklúbburinn Katla 35 ára afmæli. Enn er glóð í gamla klúbbnum þó gos hans séu ef til vill ekki eins tilkomumikil og í nöfnunni á Suðurlandi.

Katla er ennþá með Kötludúkkuna sem verkefni. Saumalist hefur ekki verið sterkasta hlið okkar félaga og því fengum við okkur til hjálpar konurnar í Korpu sem hafa unnið saumaskapinn. Katla lagði til efni en Korpa saumaði. Var þetta hið besta samstarfsverkefni þessara tveggja klúbba.

Eftir að Korpa var lögð niður björguðu konur frá þeim klúbbi málum Kötlu áfram. Nú fyrir skemmstu gerði Katla samning við Öryrkjabandalagið og mun saumastofa þeirra sjá um saumaskapinn fyrir Kötlufélaga í framtíðinni. Er þetta hið besta mál og slagkraftur verkefnisins tvígildur orðinn, verkefni fyrir Öryrkjabandalagið og styrkur ungum einmana einstaklingum á barnadeild Landspítalans.

Hefur þessum dúkkum verið gerður góður rómur af læknum og hjúkrunarfólki deildarinnar og telur það hana gott verkfæri til að nálgast barnið þar sem dúkkan gengur í gegnum sama skoðunarferli og barnið og er þar kominn góður huggari og sálufélagi.

Gamla góða klukkan á Lækjartorgi tifar enn og telur mínútur tilverunnar og einnig krónur í styrktarsjóð Kötlu með hjálp og framlagi Ölgerðar Egils Skallagrímssonar sem auglýsir á hliðum hennar sinn besta mjöð. Erum við Kötlufélagar þakklátir þeirra framlagi og borgarinnar til okkar.

 

Hugmynd vaknaði hjá Kötlu að gera þyrfti eitthvað sérstakt til að minnast aldamótatímabils og í því sambandi mun nú verða gefin út jólamerki (PINNI), til fjáröflunar í styrktarsjóð. Merkið á að koma út fyrir jól 2000 og svo fimm næstu jól, til ársins 2005 eða alls sex merki. Breytingar á merkinu milli ára eru þær að litirnir á kertinu og bjöllunni breytast, og svo ártalið. Hagnaðinum af sölu merkjanna hefur Kiwanisklúbburinn ákveðið að verja þannig.

  • 50% til styrktarsjóðs Kiwanisklúbbsins Kötlu.  Verður styrkur þessi notaður til að styrkja bágstaddar fjölskyldur um jólin.

  • 25% rennur til hjálparsjóðs umdæmisins Ísland- Færeyjar.

  • 25% rennur til hjálpar sjóðs kiwanishreyfingarinnar í Evrópu (Kiwanis Internat-ional foundation Europe).

Merki þetta er hannað af félaga í Kiwanisklúbbnum Kötlu, Þresti Jónssyni en klúbburinn gefur merkið út. Upplagið af hverju merki er 5.000 eintök. Eins og áður sagði kemur merkið út fyrir næstu sex jól, alls 30.000 merki, eða 5.000 sett.

Merkið hefur söfnunargildi frá fleiri en einum sjónarhóli. Í fyrsta lagi byrjar það á ártalinu 2000 sem er fyrsta árþúsunda - ártalið sem byrjar á tölustafnum 2, í öðru lagi hefur það söfnunargildi fyrir þá sem safna merkjum tengdum jólum, í þriðja lagi fyrir þá sem safna merkjum sem gefin eru út í þágu líknarmála.

Það er því ástæða fyrir alla þá sem hafa gaman af söfnum að tryggja sér sett með áskrift, því merkið verður kynnt í Kiwanishreyfingunni í Evrópu og meðal safnara um víða veröld og upplagið er lítið. Verð á merkinu er kr. 1.000 (ísl. kr.) Verður merki þetta kynnt á Internetinu til félaga hér sem erlendis en Eyjólfur Sigurðsson f.v. heimsforseti kiwanis, hefur lofað okkur liðsinnis með kynningu á þessu í Evrópu.

Ef þú hefur áhuga á að styrkja gott málefni þá vinsamlega sendu okkur E-mail sigurbal@islandia.is og við sendum þér merki ásamt greiðslutilhögun.

Gunnar K. Gunnlaugsson,
fjölmiðlafulltrúi Kötlu.

[ Til baka - Back ]