|
Félagar í Kiwanisklúbbnum Sólborg hófu vetrarstarfið að nýju af ekki minni eldmóð en undanfarin ár. Stjórnarskiptin í klúbbnum fóru fram í samstarfi við Kiwanisklúbbana Brú, Hof og Hörpu og voru þau haldin á fundarstað Brúar. Þar var m.a. einum félaganum í Sólborg afhentur platti, með áletruninni
"Frábær félagi", en hann afhendum við þeim félaga sem okkur finnst hafa skarað fram úr með einhverjum hætti. Sameiginleg stjórnarskipti eru skemmtileg tilbreyting og það að starfa með öðrum klúbbum að sameiginlegum verkefnum og eru vonandi nokkur slík framundan.
Nýtt starfsár fór vel af stað hjá okkur, ekki síst vegna fjölgunar á félögum. Fyrrum 3 félagar í Korpu gengu til liðs við okkur og erum við himinlifandi yfir þeirri fjölgun og góðum félagsskap. Því miður hætti þó einn félagi í klúbbnum svo nú erum við 21.
Á fyrsta fundi vetrarins hófum við að vinna að stefnumótun klúbbsins með því að skipta okkur í umræðuhópa með framtíðarsýn klúbbsins í huga. Félagar tóku vel við sér og höfum við nú sett þær niðurstöður inn í stefnumótun klúbbsins, sem var samþykkt á síðasta fundi. Svo er í áætlun að setja markmið með stefnumótun í huga.
Nú er framundan aðalfjáröflun klúbbsins en undirbúningur er hafinn fyrir sölu á jólakertaskreytingum í nóvember. Á síðasta ári tóku bæjarbúar vel við sér og seldum við þeim fleiri skreytingar en við stefndum þá að, svo nú er stefnan að selja ekki færri. Í desember seljum við svo leiðiskrossa og greinar og höfum við verið með það í sölu í Fjarðarkaup rétt fyrir jólin.
Ekki má gleyma að nefna makakvöldið en í ár ætlum við í leikhús saman og hittast svo á eftir. Að sjálfsögðu er góð þátttaka eins og oft áður og ekki er hægt að kvarta undan því að Sólborgarkonur taki ekki þátt í öllu, bæði í gamni og alvöru.
Veturinn leggst vel í okkur og eru félagar og allir aðrir innilega velkomnir á fundi hjá okkur í vetur.
Með kiwaniskveðju,
Inga S. Guðbjartsdóttir, forseti.
Svanhildur Guðlaugsdóttir, blaðafulltrúi. |