|
Ágætu Kiwanisfélagar
Í Kiwanisfréttum á þessu starfsári höfum við ákveðið
sem stýrum þessu blaði að vera með smá ritstjórapistil í hverju blaði
og tíunda það sem framundan er og reyna að segja frá málefnum líðandi
stundar. Þessir pistlar eiga hvorki að vera langir né þreytandi heldur smá
brunnur upplýsinga. Umdæmisstjóri hefur samþykkt að vera með smágreinar
í hverju blaði og verður ugglaust fróðlegt að fylgja honum eftir í vetur.
Ritstjórnin hefur í samráði við Umdæmisstjóra og svæðisstjórana ákveðið
að í
hverju blaði skuli koma upplýsingar frá svæðisstjórum og þar sem út koma
þrjú blöð á starfsárinu og svæðisstjórarnir eru sex - eru tveir svæðisstjórar
í hverju blaði. Þar sem Umdæmisstjóri er í Eddusvæði og ritstjórn í Ægissvæði
fannst okkur að þau tvö Guðbjörn Ásgeirsson og Oddný Ríkharðsdóttir ættu
að marka þetta blað með ritsnilld sinni. Þá verður endurvakið Fræðsluhornið"
sem hefur ekki sést um nokkurt skeið.
Þá vil ég hvetja alla félaga að senda okkur fréttir hvort
sem þær eru smáar eða stórar. Á þessu starfsári ætlum við að dreifa
Kiwanisfréttum á fleiri staði en hingað til. Blaðinu verður dreift inn á
öll sjúkrahús landsins, heilsugæslustöðvar vítt og breitt um landið, læknastofur
og tannlæknastofur a.m.k. á Suðvesturhorninu. Við vitum vel að þetta eykur
kostnað við blaðið, en vonumst við að þetta gefist vel og blaðið verði
sjáanlegra en það hefur verið og jafnvel að við getum aflað okkur félaga
út á það.
Með kiwaniskveðju
Þyrí Marta Baldursdóttir, ritstjóri. |