|
Nú er hafið annað starfsárið þar sem umdæmið er að vinna samkvæmt þeirri framkvæmdaáætlun sem samþykkt var í framhaldi af stefnumótun umdæmisins. Þessi stefnumótun var kynnt mjög vel, og þ.á.m. var afraið með hana á svæðisráðstefnum 1998, vorum með sérstaka ráðstefnu á Engjateignum í janúar 1999 þar sem mættu 80 fulltrúar frá 25 klúbbum, auk þess að taka hana fyrir á fræðslunni 1999 með svæðisstjórum, forsetum og riturum.
Þessi vinna skilaði sér í samþykktri framkvæmdaáætlun á umdæmisþinginu 1999. í þessari vinnu sem lögð var fyrir alla Kiwanisfélaga tvöm umdæmisþing, svæðisráðstefnur, farið inná klúbbfundi og meira, reiknuðum við með að það tæki almennt alla klúbba svona um 2 ár að vera þá sjálfir komnir með slíkar áætlanir sem snéru að klúbbunum. Þar væri kiwanisfélagar búnir að skoða allt sitt innra sem ytra starf og í framhaldi gera 5 ára áætlun yfir hvernig starfið skyldi vera og hvað bæri að stefna á. Við höfum ekki séð þetta ganga eftir nógu almennt og vilju varpa því upp af hverju? Nú má stefnumótun ekki vera flókin og í eðli sínu er hún það ekki. Sem dæmi þá er ákveðin stefnumótun og markmið að segja klúbburinn samþykkir að allir félagar fara á umdæmisþing í Færeyjum". Það er nauðsynlegt og mjög hollt fyrir alla klúbba að skoða innra starfið, verkefnin og sjá hvort þetta sé allt eins og þið viljið hafa það. Er eitthvað sem betur mætti fara og eða breyta til þess að eldri félagar verða lengur og þið fáið fleiri nýja félaga. Það vitum við ekki nema að skoða þessa hluti. Eru menn með of mörg verkefni? Er of lítið af verkefnum? Eru allt of fáir að vinna þau verkefni sem klúbburinn hefur tekið að sér og enginn vill segja neitt við því, en félagar smá saman tína tölunni? Þetta kemur allt í ljós ef farið er í stefnumótunarvinnu. Á sínum tíma þá buðum við uppá afrit af þeim gögnum sem við byrjuðum stefnumótunarvinnu umdæmisins með og viljum endurtaka það boð hér. Þessi gögn eru til á umdæmisskrifstofunni hjá honum Birni starfsmanni sem sendir ykkur itölvupósti eða í bréfi til þeirra sem byðja um það.
Ágæti Kiwanisfélagi það er aldrei of seint að skoða sig og spyrja þessarar spurningar, erum við að gera allt rétt. Ég vil minna ykkur á ráðstefnu um fjármál sem halda áfram þann 13. janúar 2001, en nánar um það í Kiwanisfréttum.
Kveðja,
Guðmundur Pétursson,
formaður stefnumótunarnefndar. |