|

Kæru kiwanisfélagar í Umdæminu Ísland - Færeyjar.
Nú er orðin að veruleika sú hugmynd, sem lengi hefur verið í umræðunni að stofna sameiginlegan Styrktarsjóð fyrir okkar Umdæmi. Móttökur kiwanisfélaga og
klúbba eru sérstaklega góðar og erum við sem í stjórn sjóðsins völdumst á fullu að vinna undirbúningsstarf við að koma sjóðnum á laggirnar, bæði með því að kynna sjóðinn og hugmyndir um fjáraflanir til tekna fyrir sjóðinn. Stofnfjármagn fæst bæði með stofnframlögum frá klúbbum, einstaklingum, fyrirtækjum og með ýmsum fjáröflunum á vegum sjóðsins. Nýbúið er að senda kynningarbréf til allra klúbba í umdæminu sem skýrir frá stofnun sjóðsins og hvað var samþykkt varðandi sjóðinn á Umdæmisþinginu í Reykjanesbæ og í þessu bréfi var óskað eftir stofnframlagi frá klúbbum, sem næmi kr. 2000.- pr. félaga á næstu tveimur árum.
Sjóðstjórnin er búin að láta hanna og framleiða sérstaka Kiwanisstjörnu, bæði gull og silfur ásamt sérhönnuðum platta sem fylgir stjörnunni og er þetta hugsað sem gjöf á stórafmælum og eða viðurkenning til kiwanisfélaga eða styrktaraðila Kiwanishreyfingarinnar fyrir frábært starf fyrir hreyfinguna. Hér í blaðinu eru sýndar myndir af stjörnunum í sérstökum öskjum og þeim viðurkenningarplöttum sem afhentir eru þeim aðilum sem fá stjörnurnar. Þegar þetta er skrifað hafa þegar verið seldar tvær Gullstjörnur og þrjár silfur stjörnur, en verð á Gullstjörnu er kr. 40.000.- og Silfurstjörnu kr. 25.000.- og voru þetta Kiwanisklúbbarnir Keilir og Hraunborg sem voru að viðurkenna sína félaga fyrir frábært starf fyrir klúbbinn og fyrir hreyfinguna. Þessar viðurkenningar er hægt að panta hjá Sigurði R. Péturssyni í Ísspor, sem sér um kiwanislager hreyfingarinnar.

Margt annað er í farvatninu svo sem að hanna sérstakt ársmerki, sem selt verður á umdæmisþingum í mjög takmörkuðu upplagi og verður hvert merki með ártali þess árs og hugsanlega einhverri mynd sem minnir á staðsetningu þingsins. Margt annað er í skoðun svo sem sér hannaðar gjafir til ræðumanna á fundum klúbbanna og ýmislegt fleira. Allar hugmyndir frá ykkur félagar góðir eru vel þegnar. Ég veit að margir klúbbar eru þegar búnir að samþykkja stofnframlag til sjóðsins og vona ég að flestir, ef ekki allir verði með og afgreiði þetta mál hratt og vel, þannig að Styrktarsjóður Umdæmisins Ísland - Færeyjar verði sem fyrst öflugt sameiningartákn fyrir klúbbana í Umdæminu og fær um að gegna hlutverki sínu samfélaginu til heilla.
Ég vil fyrir hönd sjóðstjórnarinnar óska öllum kiwanisfélögum og fjölskyldum þeirra alls hins besta á komandi árum og vona að komandi jólahátíð færi ykkur öllum ánægju og gleði.
Með kiwaniskveðju,
Sæmundur H.Sæmundsson,
formaður
sjóðsstjórnar. |