|
30 ára afmćlishátíđ Keilis í Keflavík. |
|
"30 milljónir á 30 árum"
|
|
 |
|
Fjölmargir fengu styrki og ţakkarbréf frá Keili
á 30 ára afmćli klúbbsins. |
|
Kiwanisklúbburinn Keilir í Keflavík var stofnaður 30. september 1970 og fagnaði 30 ára afmæli sínu með viðhöfn á
sjálfan afmælisdaginn.Á afmælisdaginn afhenti Keilir styrki að upphæð 1.570.000 úr styrktarsjóði klúbbsins.
Helsta fjáröflun klúbbsins er sala á jóla-trjám og taka allir félagar í klúbbnum virkan þátt í sölunni sem fram fer í desember ár hvert. Þá hefur Sinawikklúbburinn Vík útbúið leiðisskreyt-ingar, borðskreytingar og skreytt greni sem selt hefur verið samhliða jólatréssölunni.
Á hverju ári hefur hluta af hagnaði jólatrés-
sölunnar verið settur til hliðar og síðan notaður til veitingar styrkja á fimm ára fresti. Frá stofnun klúbbsins árið 1970 hefur klúbburinn safnað að jafnvirði um 30 milljónum króna sem gefnar hafa verið til líknarmála.
|
|
Eftirtaldir fengu styrk á afmæli Keilis: |
|
Þroskahjálp á Suðurnesjum kr. 800.000 vegna þjálfunarlaugar. Sambýlið Lyngmóa 17 kr. 350.000 vegna kaupa á búnaði. Styrktarsjóður Kiwanisumdæmisins kr. 190.000 sem stofnframlag í nýjan sjóð. Nemendafélag Fjölbrautaskólans kr. 50.000 til eflingar á félagsstarfi. Sérdeildin Björk kr. 30.000 vegna tækjakaupa og Fjölbrautaskóli Suðurnesja kr. 150.000 til eflingar fræðslu og forvarna gegn sjálfsvígum. |
 |
|
Hér má sjá
prúđbúna Keilismenn ásamt mökum. |
|
 |
| Hér skálar Arnar Ingólfsson fráfarandi forseti Keilis fyrir
Guđmundi Péturssyni umdćmisstjóra og Einari Má Jóhannessyni
umdćmisritara sem létu af embćtti um miđnćtti. |
|
 |
|
Ţeir Guđmundur, Einar Már
og Karl fengu kiwanisstjórnuna fyrir vel unnin störf í umdćminu en međ
kaupunum var Keilir fyrsti viđskiptaađili nýja styrktarsjóđsins. Ţeir
Arnar fráfarandi forseti og Erlingur forseti Keilis afhentu
viđurkenningarnar. |
| |
|
|
Um kvöldið var síðan haldin glæsileg afmælishátíð og boðið upp á það besta í mat og drykk. Margir góðir gestir heimsóttu okkur úr öðrum klúbbum með svæðisstjórann í broddi fylkingar. Hápunkturinn var síðan um miðnætti er margir Keilisfélagar létu af embætti í umdæmisstjórn og það hefur nú verið skálað af minna tilefni.
Andrés K. Hjaltason. |
|
[ Til baka - Back ] |