Eins og allir vita þá eru nefndir klúbba aðalundirstaða í klúbbstarfinu. Nefndir þurfa að hittast reglulega og gott er að hafa fastan fundartíma ca. einu sinni í mánuði.
Helstu Fastanefndir eru:
-
Móttökunefn.
-
Dagskrárnefnd.
-
Félagsmálanefnd.
-
Laganefnd.
-
Styrktarnefnd.
-
Fjárhagsnefnd.
Ýmsar aðrar nefndir eru:
Markmiðanefnd.
Skemmtinefnd.
Afmælisnefnd.
Heiðursgjafanefnd.
Ljósmyndari.
Blaðafulltrúi.
Siðameistari.
Birgðarvörður.
Í sumum tilfellum hafa klúbbar sameinað 2-3 nefndir
í 1 nefnd t.d.;
Sameiginlegt með
öllum nefndum:
-
Skipunarbréf og erindisbréf.
-
Skipun formanns.
-
Skipun ritara.
-
Skipun gjaldkera ef nefndin hefur með fjármál að gera.
-
Fundargerðabók.
-
Mánaðarlegir fundir (að minnsta).
-
Skýrsluskil, gott er að hafa skýrsluskil tvisvar sinnum á starfsárinu (skýrsluskila-, stjórnarskiparfund/ur) æskilegt er að allar skýrslur séu í tvíriti annað
fyrir ritara klúbbsins og hitt í fundargerðabók nefndarinnar.
Mikilvægt er að nefndir haldi fundargerðabók þar sem fram koma allar umræður og samþykktir nefndarinnar, sem formaður afhendir eftirmanni sínum í lok starfsársins.
Formenn nefnda eru lykillinn að góðu starfi nefndarinnar, án forystu hefur nefndin enga hvatningu, engan styrk til starfsins. Í ljósi þessa sést hversu mikilvægt það er að vanda val á nefndarformönnum.
Svo að upplýsingastreymi sé gott innan klúbbsins og að stjórn sé meðvituð um störf nefndanna skal boða nefndarformenn á stjórnarfund að minnsta kosti þrisvar sinnum yfir starfsárið.
Öflugar nefndir
- Góður klúbbur
Kiwaniskveðja
Dröfn, Ingibjörg og
Sigurður, fræðslunefnd. |