|

Í fyrra var skoðað með stofnun unglingaklúbbs á Suðurnesjum. Fór fulltrúi á vegum umdæmisins Kjartan Eiríksson Kiwanisfélagi í Keilir í Keflavík til svæðisskrifstofunnar í Gent í Belgíu þar sem ráðstefna var haldinn um svokallaða Kiwanis-Junior Klúbba sem eru mjög vinsælir m.a á Ítalíu. Við litum jákvætt á að ef stofnaðir væru unglingaklúbbar í framhaldsskólum landsins væri það undir kjörorðinu Börnin fyrst og fremst, og síðar meir væri möguleiki að sá kiwanisklúbbur sem væri bakhjarl unglingaklúbbsins fengi unga fólkið til liðs við sig að skólagöngu lokinni, og eða klúbbur á því svæði sem viðkomandi nemandi hugsanlega færi.
Nú er þessi vinna komin betur í gang og verið að athuga með stofnun unglingaklúbba bæði í Reykjanesbæ og á Keflavíkurflugvelli. Þetta er samstarf á milli Kiwanisklúbbsins Keilis og Kiwanisklúbbsins Brúar á Keflavíkurflugvelli. Þessir klúbbar eru jafnframt að vinna að öðru mjög mikilvægu sameiginlegu verkefni sem er að koma á ráðstefnu þar sem rætt verður um sjálfsvíg af sérfræðingum á því sviði. Þeir sem sátu setningu umdæmisþings í kirkju Reykjanesbæjar og hlustuðu á Séra Ólaf Odd flytja ræðu sína á Ensku urðu mjög snortnir. Í framhaldi var fjölbrautarskóla Suðurnesja veittur styrkur að upphæð 150 þúsund frá Keilir í tilefni 30 ára afmælis klúbbsins til að geta fengið fyrirlesara um þetta efni.
Nú er hafið samstarf þessara klúbba ásamt Séra Ólafi Oddi, forráðamönnum fjölbrautaskólans í Reykjanesbæ og forráðamönnum og prestinum á Keflavíkurflugvelli til að reyna að koma á ráðstefnu þar sem unglingum og foreldrum er boðið að koma. Öll þessi vinna og verkefni heyra vel undir kjörorð okkar
"Börnin fyrst og fremst" og vonumst við til að þetta skili sér í betri fræðslu til okkar unglinga sem eru að mótast í starfi skólans og eru að undirbúa sig fyrir lífið og tilveruna eftir skólann.
Við munum leyfa ykkur að fylgjast með framvindu.
Kveðja,
Guðmundur Pétursson,
fráfarandi umdæmisstjóri. |