|
Ágætu Kiwanisfélagar,
Starfsemi Kiwanisklúbbsins Hörpu hófst á þessu starfsári með stjórnarskiptafundi með Kiwanisklúbbunum Brú, Hofi og Sólborgu og var þessi fundur haldinn í boði Kiwanisklúbbsins Brúar á Keflavíkurflugvelli. Var þessi fundur til mikillar prýði eins og von og venja er þeirra Brúarfélaga, og ekki síst, fór þessi fundur vel fram vegna góðrar stjórnar Oddnýjar Ríkharðsdóttur svæðisstjóra við stjórnarskiptin. Skemmtu félagar og fylgisveinar sér vel þetta kvöld.
Starfsemi Hörpu verður með ýmsu ívafi í vetur og má svo sem nefna kaffihúsakvöld, árlegur sameiginlegur fundur með Sólborgarfélögum og fleira verður gert til gamans. Nokkrar heimsóknir verða til klúbba og má segja að ekki hafi verið nóg gert af því undanfarin ár að heimsækja aðra klúbba en nú í vetur verður bót á.
Árlegt hattakvöld okkar var haldið 26. október sl. og var það virkilega skemmtilegt kvöld. Á þessum fundi mætti hjá okkur Ásta Ragnheiður Pétursdóttir alþingismaður og fór hún á kostum. Alls mættu 18 gestir á þennan fund og bendir ýmislegt til að nokkrir af þessum gestum hafa áhuga á að kynna sér starfsemi Kiwanis og fögnum við Hörpufélagar því, og vonumst til að sjá flesta þessa gesti aftur.
Eitt höfum við átt við að stríða undanfarin ár en það er félagafjölgun. Erfitt hefur reynst að fá konur til að ganga til liðs við hreyfinguna enda margt í boði en við ætlum okkur að fjölga í klúbbnum í vetur. Við höfum misst konur til annarra félagastarfa og þurfum við að finna upp hvað við þurfum að gera í hreyfingunni til að halda fólkinu hjá okkur. Við erum jákvæðar og vonum að eitthvað af þessum konum sem heimsóttu okkur hafi áhuga að ganga til liðs við okkur þegar þær hafa kynnst sér starfsemi Kiwanishreyfinganna.
Á síðasta fundi í nóvember verðum við með föndurkvöld og á að búa til nokkrar jólaskreytingar. Höfum við fengið góða blómaskreytingakonu til að kenna okkur.
Nú eins og undanfarin ár verður sala á dagatalakertum eins og verið hefur fyrir undanfarin jól, og hafa þessi kerti alltaf selst upp og vonandi verður eins í ár.
Forseti klúbbsins hefur sett sér kjörorðið Verið jákvæð. Segjum já". Hún hefur nú þegar tekið þetta kjörorð upp og má segja að enginn klúbbfélaga hafi þorað að segja nei á þessum fyrstu fundum vetrarins enda er forsetinn fylginn sér.
Með kiwaniskveðju,
Þyrí Marta Baldursdóttir. |