Viljum láta gott af okkur leiða.

Ágæti lesandi,

Um áratuga skeið hefur Kiwanishreyfingin lagt sig fram um að vera áhrifa valdur til góðs í samfélagi þjóðanna.

Kiwanisfélagar hafa öðru fremur, beint augum sínum að bættri líðan þeirra barna, sem af völdum sjúkdóma eða fátæktar, hafa orðið útundan og njóta ekki þeirra lífskjara sem eðlileg teljast.

Kjör geðfatlaðra hafa einnig verið stór þáttur í starfi kiwanisfélaga, en í því sambandi má minna á K-lykilinn sem seldur er um allt land þriðja hvert ár og helgaður er geðfötluðum. Þetta verkefni hefur alla tíð verið kiwanisfólki hugleikið.

Á öllum tímum hefur þörfin fyrir þjónustuhreyfingu sem Kiwanis verið til staðar og má fullyrða að í okkar nútíma þjóðfélagi hafi ekki dregið úr þessari þörf. Með vaxandi fólksfjölda hér heima og erlendis, stækkar sá hópur sem þarfnast aðstoðar.

Það er m.a. af fyrrgreindum ástæðum sem við kiwanisfélagar blásum nú til sóknar svo ná megi auknum árangri. Eitt af markmiðum okkar minnir okkur á, að við ætlum að hafa enn meiri áhrif í samfélags mótuninni á 21. öldinni, en gert hefur verið til þessa. Hér er ekki um að ræða pólitísk áhrif, hér er um að ræða heilbrigða siðfræði, sem sprottin er af hugsjón og mannkærleika. Kiwanis vinnur gegn og hafnar útskúfun og niðurlægingu sérhverrar manneskju. Kiwanis vill koma að þar sem neyð ríkir í formi aðstoðar og sem líknandi afl. Kiwanis lítur svo á, að sérhver mannvera eigi jafnan rétt á mannsæmandi lífi og mun ætíð berjast fyrir því að svo megi verða. Það er af fyrrgreindum ástæðum, sem kiwanisfélagar leggja sig fram um að kynna starfsemi sína og ná eyrum sem flestra.

Í Kiwanisumdæminu Ísland-Færeyjar eru nú um 1.100 félagar. Þessi hópur starfar í 42 klúbbum sem dreifðir eru um landið ásamt tveimur klúbbum sem starfa í Færeyjum. Allir eiga þessir klúbbar það sammerkt, að vilja láta gott af sér leiða, í sínu byggðalagi sem og annars staðar. Í hugum kiwanisfélaga eru engin landamæri til, þegar veita skal aðstoð. Kiwanis er alheimshreyfing, sem leggur metnað sinn í að koma til aðstoðar hvar sem er í veröldinni, svo fremur að hægt sé að koma henni við.

Það er á þessum árstíma sem flestir kiwanisklúbbar landsins fara í gang með fjáraflanir sínar. Þessar fjáraflanir eru margvíslegar og margar tengdar jólum og áramótum. Við Kiwanisfélagar höfum ætíð notið velvildar og góðrar aðstoðar almennings, í fjáröflunum okkar og fyrir það ber að þakka. Ég vil hvetja alla velunnara Kiwanis að halda uppteknum hætti og hugsa hlýtt til okkar þegar klúbbfélagar banka á dyr, eða bjóða varning sinn með öðrum hætti. Það eru þessar fjáraflanir sem gera okkur kleift að halda úti öflugu hjálpar starfi, þeim til handa sem þurfandi eru.

Ágæti lesandi ef þú þekkir ekki Kiwanis en vilt fræðast um starfsemi okkar, þá vil ég benda þér á að skoða vefsíðu okkar sem er www.kiwanis.is

Ég vil að lokum óska lesendum góðrar aðventu og gleðilegra jóla.

Gísli H. Árnason,
Umdæmisstjóri.

[ Til baka - Back ]