Kiwanisklúbburinn Básar

Kiwanisklúbburinn Básar á Ísafirði tók að sér að sjá um íslenska básinn á þjóðhátíð sem haldin var í íþróttahúsinu á Ísafirði. Fjölminni var og mikil þátttaka. Á borðstólum var mjög fjölbreytilegur matur, sem safnað var hjá hinum ýmsu fyrirtækjum, svo sem saltkjöt, saltfiskur, harðfiskur, rauðmagi, skötustappa, hárkarl, kúttmagi, kavíar, rúgbrauð , rúgkökur, skonsur, saltað selspik, ostur og sviðasulta. Ennfremur var orkudrykkurinn Prímus á boðstólum, einnig voru handverkskonur á Ísafirði með mjög fjölbreytta sýningu í og við básinn. Ég tel að Kiwanismenn hafi staðið mjög vel að þessari sýningu og hún hafi orðið klúbbnum til mikils sóma og einnig mjög góð auglýsing, sem vonandi á eftir að skila sér, þó síðar verði. Svona átak kostar mikla vinnu og samheldni félagana og verður ekki gert nema með góðri aðstoð eiginkvenna og annarra vina og velunnara, sem eiga miklar þakkir skilið.

Kiwanisklúbburinn Básar varð 25 ára þann 31. mars sl. Ákveðið hefur verið að minnast þessara tímamóta þegar sól er farin að hækka á lofti, veður og færð orðin nokkuð örugg og menn komnir í ferða- og sumarskap, s.s. 12 maí nk.

Með kiwaniskveðju
Sigurður Ólafsson
Forseti Bása.

[ Til baka - Back ]