Eldborg veitir úr styrktarsjóði

Nýlega úthlutaði Kiwanisklúbburinn Eldborg í Hafnarfirði fyrstu upphæðunum úr styrktarsjóði klúbbsins á þessu ári. Þær eiga þó eftir að verða fleiri því sjóðurinn á enn útistandandi nokkurt fé sem mun koma inn á næstu mánuðum. Að þessu sinni voru veittir fjórir hundrað þúsund króna styrkir sem komu í hlut Sambýlis fjölfatlaðra barna að Steinahlíð 1, Hafnarfirði, Krísuvíkursamtakanna, Byrgisins og Skátafélagsins Hraunbúa.

Aðal fjáröflun klúbbsins er Sjávarréttadagur Eldborgar sem lengst af hefur verið haldinn í veitingahúsinu Glæsibæ, en það er ekki lengur starfandi. 21. Sjávarréttadagur Eldborgar var haldinn í Versölum í Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg í Reykjavík hinn 10. mars 2001. Heiðursgestur Sjávarréttadagsins 2001, var Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra. Formaður Sjávarréttadagsnefndar er Magnús Pálsson.

Sunnudaginn 14. janúar var í fjórtánda sinn haldið Handboltamót Eldborgar fyrir yngstu iðkendurna, í samvinnu við Handknattleiksdeild Hauka. Að þessu sinni fór mótið fram í hinu nýja íþróttahúsi Hauka að Ásvöllum. Um 300 krakkar mættu til leiks frá FH, Gróttu, Haukum, ÍR og Stjörnunni. Haukar sáu um framkvæmd leikjanna að venju, en Eldborgarfélagar útbjuggu samlokur og ávaxtadrykki og veittu öllum að vild. Allir þátttakendur fengu svo bol með merki leikjanna. Styrktaraðilar mótsins að þessu sinni voru Bolur h/f, Delta h/f, Dominos Pizza, Ísal, Kentucky kjúklingar og Sparisjóður Hafnarfjarðar. Formaður unglinganefndar Eldborgar er Magnús Pálsson.

Klúbbstarfið í Eldborg gengur vel og er áætlað að taka inn þrjá nýja félaga á starfsárinu. Ræðumenn eru á öllum almennum fundum en þeir eru haldnir á miðvikudögum, hálfsmánaðarlega, í Kiwanishúsinu að Helluhrauni 22. Ræðumenn í janúar voru Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnarsambandsins og Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Ræðumenn í febrúar voru Steingrímur Sigfússon, formaður Vinstri-Grænna og Gísli H. Árnason, umdæmisstjóri Kiwanis á Íslandi og Færeyjum, sem heimsóttu klúbbinn á þúsundasta fundi klúbbsins sem var 14. febrúar.

Með kiwaniskveðju, Kiwanisklúbburinn
Eldborg, Hafnarfirði.

[ Til baka - Back ]