|

Mikið er talað um félagafjölda og fjölgun sé okkur nauðsynleg. Ekki er nóg að sópa félögum inn í hreyfinguna heldur verðum við líka að halda þeim inni í hreyfingunni, hvernig förum við að því?
Fyrsta skref, gestur á fundi.
Í byrjun starfsárs ættum við að hvetja félaga til að taka með sér gesti á fund. Ef þessi gestur hefur hug á að koma aftur ættum við að afhenda honum félagatal ásamt fundardagskrá. Þegar gesturinn hefur mætt á nokkra fundi og jafnvel skemmtun bjóðum við honum að gerast félagi í aðlögun
Annað skref, félagi í aðlögun.
Á þeim fundi sem gesturinn er tilbúinn að gerast
félagi í aðlögun færum við honum upplýsingar fyrir
félaga í aðlögun. En þessi bæklingur er til í Kiwanisklúbbnum Sólborg. Í þessum bæklingi kemur fram, fundardagskrá, félagatal, upplýsingar um nefndir og nefndarstörf, bæklingurinn Hvað er Kiwanis, ágrip úr sögu klúbbsins, hvernig ávarpa á kiwanisfundi, Stefnumótun klúbbsins, punktar um svæðið og umdæmið og síðast en ekki síst hvað það kostar að vera í Kiwanisklúbbnum Sólborg. Þessi bæklingur er í eigu klúbbsins en gestur sem gerist félagi í aðlögun fær hann lánaðan til að geta aflað sér upplýsinga um starfið og hreyfinguna.
Félagi í aðlögun tekur fullan þátt í starfi klúbbsins eins og fullgildur félagi, en hann borgar engin félagsgjöld og hefur heldur ekki atkvæðisrétt, en auðvitað getur hann tekið fullan þátt í öllum umræðum. Félagi í aðlögun ætti ekki að vera með undir 60% mætingu á fundi klúbbsins. Leggja þarf rækt við fræðslu um kiwanisstarfið.
Þriðja skref, Inntaka
Þegar félagi í aðlögun hefur komist í kynni við flest það sem snýr að starfi klúbbsins sem ætti að vera eftir ca 1/2 starfsár, ætti að kanna hvort hann sé ekki tilbúinn til að taka skrefið til fulls og gerast fullgildur Kiwanisfélagi með öllum þeim skyldum og réttindum sem því fylgir.
Höfum inntöku nýrra kiwanisfélaga hátíðlega. Á sérstökum inntöku- eða hátíðarfundi eru nýir félagar formlega teknir inn í klúbbinn.
Það er von mín að kiwanisklúbbar geti notað eitthvað af þessu til félagafjölgunar og að þeir verði
félagar til langframa. Með því að kynna gestum okkar vel það sem við erum að gera verða þeir betur undirbúnir til að takast á við öll okkar verkefni og af meiri þunga, heldur en ef við
erum í einhverri smölun.
Með kiwaniskveðju,
Dröfn Sveinsdóttir,
Fræðslunefnd. |