Framtíðarsýn / fjölgun

Það hefur verið í nógu að snúast hjá nefndinni frá upphafi starfsárs. Eins og flestir vita þá héldum við tvo kynningarfundi í Kópavogi í nóvember á síðasta ári. Eftir þá fundi hafa 3 nýjir félagar gengið til liðs við Eldey í Kópavogi og er það hið besta mál.

Bo Shafer heimsforseti Kiwanis hvetur alla kiwanisfélaga til að leggja sitt af mörkum til fjölgunar félaga. Hann leggur meðal annars til að hver kiwanisfélagi bjóði a.m.k. 5 manns með sér á fund til að kynna starfsemi klúbbsins og hreyfingarinnar. Nefndin hvetur félaga til að taka þessari áskorun. Heimsforseti hvetur einnig til þess að félagar styðji svæðin og umdæmið í einu og öllu er snýr að fjölgun
félaga.

Það hefur háð Kiwanishreyfingunni hversu litla umfjöllun hún fær í fjölmiðlum. Við þurfum jú að vera dugleg að auglýsa okkur og hvað við erum að gera. Því í Kiwanis höfum við gott tækifæri á að eignast góða félaga ásamt því að við látum gott af okkur leiða í þágu þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu.

Mikið hefur verið rætt um það hver sé besta leiðin til fjölgunar. Engin ein lausn virðist vera til og það sem hentar sumum klúbbum hentar öðrum síður. En við megum ekki gleyma því að sjálf erum við besta auglýsingin og mikilvægt er að vera jákvæður. Þó starfið gangi kannski ekki alveg eins og við viljum, þá er hægt að fá ýmsu áorkað ef bjartsýni og jákvæðni eru höfð að leiðarljósi. Munum eftir félögum okkar og hlúum að þeim.

Við í nefndinni Framtíðarsýn/Fjölgun höfum ákveðið að taka áskorun heimsforseta og reyna við stofnun nýs klúbbs á Reykjavíkursvæðinu. Við fórum af stað full bjartsýni og trú á því sem við erum að gera. Það er nokkuð ljóst að ef ekkert er gert þá verður engin fjölgun. Ákveðið var í samráði við Umdæmisstjóra Gísla Árnason að senda út 5.000 boðsbréf til karla og kvenna á aldrinum 35-50 ára. Vissulega er þetta stórt úrtak en við teljum að það skili mun betri árangri.

Kynningarfundur var síðan haldinn þriðjudaginn 20 mars sl. Óhætt er að segja að nefndarmenn voru ansi spenntir fyrir fundinn. En inn streymdi fólk og á endanum voru 39 sem skráðu sig og eftir fundinn voru 27 sem ákváðu að koma á næsta kynningarfund. Þriðji kynningarfundur verður svo í byrjun apríl og vonandi sjáum við framá stofnun nýs kvennaklúbbs í Reykjavík eftir þessa fundi.

Ég tel að við getum verið vel sátt við starf okkar undanfarna mánuði. Markmiðið var að fjölga í hreyfingunni og það er nákvæmlega það sem við höfum verið að vinna að. Alltaf er þó hægt að gera betur, en það er enginn einn eða tveir sem lyfta grettistakinu, það þurfum við að gera öll í sameiningu.

Kristín Halla Sigurðardóttir,
nefndarformaður.

[ Til baka - Back ]