Frá umdæmisstjóra

Ágætu kiwanisvinir.

Til marks um hvað tíminn er fljótur að líða, þá er nú aðeins fáar vikur í að klúbbfélagar fari í sumarleyfi frá hinu hefðbundna klúbbstarfi. Það er því áríðandi fyrir okkur kiwanisfélaga, að gaumgæfa vel hvar við stöndum með starfið og hvort settum markmiðum verði náð. Ekki er ég í vafa um, að þegar við lítum um öxl, þá undrast okkur hvað við höfum áorkað á þeim mánuðum sem liðnir eru af þessu starfsári. Fjáraflanir klúbbanna eru komnar í tæpar 11 milljónir og styrkveitingar nema nú um 8 milljónum. Þegar þessar tölur eru skoðaðar, þá fer ekki á milli mála að það eru margir sem njóta þess fórnfúsa starfs sem félagar eru að inna af hendi og fyrir það ber að þakka. Ég hef nú heimsótt mikinn fjölda klúbba víðsvegar um landið og hafa þessar heimsóknir allar verið mjög ánægjulegar. Það er í raun stórkostlegt að sjá, hvað fjölbreytnin í starfsemi klúbbanna er mikil og verkefnin margvísleg. Er auðfundið að í mörgum byggðarlögum er starf kiwanis mikilsmetið og sterkur áhrifavaldur í menningarlífi viðkomandi byggðarlags. Þarna hefur félögum tekist að uppfylla þá megin skyldu kiwanisfélaga, að hafa sterk áhrif í sínu nánasta umhverfi, sjálfum sér og öðrum til gagns og gleði.


Til marks um þann styrk sem kiwanisfélagar búa yfir, þá leitaði stjórn krabbameinsfélagsins eftir liðsinni okkar vegna þjóðarátaks gegn krabbameini þann 3. mars síðastliðinn. Kiwanisfélagar brugðust vel við þessari beiðni krabbameinsfélagsins og sóttu framlög í gjöfular hendur landsmanna. Þessi þáttaka sýnir enn og aftur þann fúsleika og dugnað sem félagar búa yfir þegar mikið liggur við. Ekki má skilja orð mín svo að kiwanisfélagar hafi tök á að sinna hverju kalli sem berst, svo er fjarri. En í þessu tiltekna máli vildu félagar vera þátttakendur, enda vitum við að krabbameinssjúkdómurinn er vá sem snertir okkur öll og því miður oft með sorglegum hætti.

Í byrjun starfsárs setti umdæmisstjórn sér það markmið að stofna einn nýjan klúbb á þessu starfsári og bind ég miklar vonir við að það muni takast. Við héldum kynningarfund í Kiwanishúsinu 20. mars síðastliðinn. og mættu á fundinn liðlega 40 manns. Margir skráðu sig til áframhaldandi þátttöku og hefur annar fundur verið boðaður 27. mars. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim mörgu félögum, sem komið hafa að þessu máli með einum eða öðrum hætti, fyrir frábær störf. Kiwanisfélagar gera sér fulla grein fyrir mikilvægi þess að fjölga klúbbum í umdæminu um leið og við styrkjum starfsemi klúbbanna. Fleiri klúbbar, þýðir aukið starf og aukin þjónusta við þá fjölmörgu einstaklinga og félagasamtök sem kiwanisklúbbarnir hafa rétt hjálparhönd um áratuga skeið. Með þessu viljum við einnig gefa fleiri einstaklingum tækifæri á að ganga til liðs við okkar góðu samtök og njóta með okkur þeirrar ánægju sem fylgir því að vera kiwanisfélagi.

Með kiwaniskveðjum,
Gísli H. Árnason
.
Umdæmisstjóri.

[ Til baka - Back ]