Gestafundur heppnaðist vel


Haukur Ágústsson, ásamt konu sinni.

Ágætu Kiwanisfélagar,

Starfsár Kiwanisklúbbsins Emblu hófst þann 3. október árið 2000 og var það jafnframt stjórnarskipatafundur. Svæðisstjóri Óðinssvæðis, Þorsteinn Jónsson Kiwanisklúbbnum Skjálfanda Húsavík sá um stjórnarskiptin með aðstoð kjörsvæðisstjóra Þorgeirs Jóhannessonar Kiwanisklúbbnum Kaldbak Akureyri. Torfhildur Þorgeirsdóttir er forseti Kiwanisklúbbsins Emblu starfsárið 2000-2001. Á stjórnarskipafundinn mættu einnig fleiri góðir gestir úr Kiwanishreyfingunni. Fyrir jólin föndruðum við okkar árlegu jólaskreytingar, sem fyrirtæki aðallega á Akureyri kaupa af okkur og var salan góð. Þá seldum við einnig jóladagatalskertin eins og undanfarin ár.Okkar árlegi styrktarþegi, Mæðrastyrksnefnd á Akureyri fékk úthlutað fyrir jólin úr styrktarsjóði okkar og var það eins og fyrir þrjár stórar og góðar matarkörfur, sem hún síðan útdeilir. Jólafundurinn okkar lenti í smá basli vegna mistaka, en úr rættist er við fengum inni hjá ökuskólanum og teljum við okkur mun hæfari til aksturs eftir veruna þar.

 

Að slepptu öllu gamni þá tókst jólafundurinn vel þó ekki hafi hann verið eftir áætlun. Góðir gestir eins og þau Haukur Ágústsson kennari og umsjónarmaður fjarkennslu VMA og kona hans Hildur Torfadóttir leyfðu okkur að njóta nærveru sinnar og skemmtu okkur ásamt fyrrverandi Kiwanis-félaga og hennar maka.
Starfsemi klúbbsins gengur vel en ekki gengur eins vel að fjölga félögum í honum eins og við hefðum kosið. Í dag eru við aðeins níu, en látum það ekki á okkur fá en höldum ótrauðar áfram. Vonum við að við fáum tvo nýja félaga inn með vorinu, en þær hafa starfað með okkur það sem af er starfsárinu. Gestafund höfðum við þann 16. janúar og fengum gesti til okkar ásamt Kiwanisfélögum frá Herðubreið Mývatnssveit og Skjálfanda Húsavík. Fundurinn tókst mjög vel og vonum við að þessar konur vilji koma á fleiri fundi til okkar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri tók í notkun nýja barnadeild í haust og af því tilefni gáfu Kiwanisklúbbarnir í Óðinssvæði barnadeildinni skoðunarbekk sem Þorsteinn Jónsson svæðisstjóri afhenti við opnun deildarinnar. Kaffihúsafundurinn okkar var í janúar og tókst hann vel. Þá var þorri þann 16. febrúar og var það einnig makakvöld. Svæðisráðsfundur Óðinssvæði var 28. október á Akureyri og var svo aftur þann 11. febrúar á Húsavík. Fyrirhugað Umdæmisþing í Færeyjum hefur verið á dagskrá hjá okkur og er mikill áhugi félaga að mæta þar.

Þann 31. mars 2001 er okkar klúbbi, ásamt mökum og Kiwanisklúbbnum Hrólfi Dalvík boðið til hátíðarfundar hjá móðurklúbbi okkar, Kiwanisklúbbnum Súlum Ólafsfirði, en þeir eiga 25 ára afmæli þann dag. Hinn árlegi gufubaðsstofufundur var í mars. Við látum nú lokið fréttaskoti frá Norðurlandi og óskum öllum Kiwanisfélögum og landsmönnum öllum árs og friðar.


Frá vinnufundi Emblu. Verið að útbúa jólaskreytingar.
 

   
Með kiwaniskveðju,
Kiwanisklúbburinn Embla - Akureyri
Sveindís Þ. Pétursdóttir,
Jóhanna Júlíusdóttir

[ Til baka - Back ]