Að fara á Heimsþing

Að fara á heimsþing stóð mér alltaf fyrir hugskotssjónum sem alveg sérstakur viðburður en samt kom það mér á óvart hversu sérstakt það varð. Eins og svo margir aðrir úr umdæminu fór ég á heimsþingið í Nice 1993 til að styðja Eyjólf Sigurðsson sem þá var í framboði til embættis féhirðis heimsstjórnar sem leiddi svo sjálfkrafa til embættis heimsforseta. Einstakt við þingið í Nice var að Evrópuþing var haldið í tengslum við heimsþingið. Ég hef oft sagt síðan að þetta er að fá Kiwanis í æð" að fara á heimsþing, maður upplifir svo sterkt alheimssamtökin. Klúbburinn minn heima" sem var hluti af Þórssvæði sem síðan er hluti af umdæminu Ísland-Færeyjar er sannarlega aðili að alheimssamtökum.

Eyjólfur náði kosningu og varð fyrsti evrópumaðurinn í embætti heimsforseta Kiwanis. Áður hafði ástralíumaðurinn Ian Smith verið fyrstur manna utan Bandaríkjanna í þetta mikla embætti. Þingið hans Eyjólfs" var svo haldið í Salt Lake City í Utah í Bandaríkjunum. Þangað fór ég og var með þegar okkar maður" var í forsæti. Það vakti upp í mér þjóðarstoltið að upplifa og skynja hversu virt og mikils metinn þau hjón Eyjólfur og Sjöfn Ólafsdóttir kona hans voru eftir sitt mikla starf og ferðalög um heiminn og þá ekki síður kynning þeirra á Íslandi á starfsári þeirra 1995-1996. Við setningarathöfnina söng Diddú nokkur lög við frábærar viðtökur áheyrenda og næstu daga á eftir var fólk að snúa sér til okkar Íslendingana og lofa sönginn og spyrja hvar það gæti fengið tónlistina hennar. Ef sest var niður til að fá sér hressingu á þingstaðnum sem var í íþróttahöll Utah-Jazz í Salt Lake City voru menn að hrósa skörungskap Eyjólfs við stjórnvölinn og einn maður sem sat sitt 42 heimsþing sagðist ekki muna annan eins forseta. Hann Eddy" stoppaði menn af við orðagjálfur og þóf um sömu hlutina langtímum saman sem gerði ekki annað en tefja tímann og fleiri tóku í sama streng. Íslendingaveisla var svo haldin undir handleiðslu Hilmars Jónssonar og nutum við og erlendir gestir okkar frá-bærrar matreiðslu hans á íslensku hráefni. Ekki munaði okkur landsmennina um að setja á stofn kóra þarna á staðnum og sungu bæði karla- og kvennakór auk blandaðs kórs í veislunni og var stemmingin svo góð að kjörheimsforseti Mr. Walther Shellers og belgíski umdæmisstjórinn Md. Fabianne Kissinger gerðust bæði kórfélagar. Þegar þinginu lauk var lagt upp í svokallaða Forsetaferð", 3ja daga ferð sem taldi 6 stórar rútur (400 ? 500 manns) sem var nýbreytni þá og hefur haldist þar til nú. Farið var til Yellowstone Park og Grand Teton í Wyoming og fannst mér sú ferð bæði fróðleg og skemmtileg. Kiwanisklúbburinn í Jacson Hole hélt ferðalöngunum hóf þegar við höfðum næturdvöl í bænum þeirra og er dvölin þar verulega eftirminnileg. Í mínu tilfelli endaði svo Bandaríkjaferðin á Florida og þ. 4. júlí héldu Kiwanismenn í Lake Wales veglega flugeldasýningu fyrir bæjarbúa.

Nú stendur fyrir dyrum heimsþing Kiwanismanna í Taipei á Taiwan. Ég hef lengi hlakkað til þeirrar ferðar enda orðið langt síðan ég ákvað að fara á þetta heimsþing eða alveg síðan í Salt Lake City. Eðlilega hafði ég ímyndað mér að þetta yrði óskaplega dýrt en þess meiri varð ánægjan þegar í ljós kom að tekist hafði að halda verðinu svo í skefjum að reikna má með 10 þúsund krónum á sólarhringinn að jafnaði fyrir flug og gistingu. Þ.v.s. 18 sólarhringa ferð -16 gistinætur - á 160 þúsund krónur. Auk þess að fara á heimsþingið er farið til Bangkok höfuðborgar Thailands og í norðurhluta landsins auk Gyllta Þríhyrningsins. Ég vona að sem flestir eigi þess kost að fara þessa ferð og kynnast bræðralagi Kiwanishreyfingarinnar og töfrum austurlanda í einni og sömu ferðinni.

Með Kiwaniskveðju,
Guðrún Valdemars.
Kjörforseti Hörpu.

[ Til baka - Back ]