|
Nýlegt kántrý" lag tekur saman hvað það þýðir að vera Kiwanis meðlimur og er umorðað svona: Það var sprungið hjá ríkri konu á afskekktum vegi eina nóttina þegar ungur maður kemur akandi á druslu". Hann kynnir sig sem Joe" og skiptir um dekk fyrir konuna. Þegar hún spurði hve mikið hún skuldaði honum sagði hann; Þú skuldar mér ekki neitt. Láttu bara ekki ástarkeðjuna enda hjá þér" Konan keyrði svo til næsta bæjar og fékk sér mat á kaffihúsi þar sem þjónustustúlkan var ófrísk og þreytt eftir erfiðan vinnudag. Þegar þjónustustúlkan kom með afganginn af hundraðdollaraseðlinum, var konan farin og eina sem var eftir var miði sem stóð á Ekki láta ástarkeðjuna enda hjá þér".
Þessa nótt þegar þjónustustúlkan kom heim, skreið hún upp í rúm hjá eiginmanninnum sem var þegar sofnaður, og hvíslaði í eyrað á honum; Allt mun vera í himnalagi, ég elska þig.... Joe"
Kiwanis meðlimir halda ástarkeðjunni gangandi í hverju verkefni sem þeir taka að sér. Væri það ekki frábært ef við hefðum bara aðeins fleiri í Kiwanis sem gætu hjálpað til með að stækka keðjuna? Hér er þar sem þú kemur inn í myndina. Hvern þekkir þú sem þér líkar vel við og virðir, einhvern sem getur og verður að vera boðaður á næsta fund eða til að vinna með þér í þínu næsta verkefni? Ekki láta ástarkeðjuna enda hjá þér.
Þessi ástarkeðja kom frá Nielson Tucker, fyrrverandi umdæmisstjóra í California-Nevada-Hawai umdæminu, en hann er í nefnd fyrir útbreiðslu Kiwanis.
Kiwanisklúbburinn Eldborg. |