|
Kæru Kiwanisfélagar,
Hjartanlegar þakkir til þín Gísli Árnason Umdæmisstjóri fyrir boð þitt að ávarpa félaga Umdæmisins Ísland-Færeyjar. Þau níu umdæmi Kiwanis sem starfa í Evrópu skipa meira en 30.000 félaga, sem er um það bil 10% af heildartölu Kiwanismanna í heiminum. Því miður hefur samband milli umdæmanna og þeirra Kiwanisklúbba verið frekar óreglulegt og samband
klúbba er enn mjög fátítt.
Það er leitt til að þess að vita að félagar slíkrar hreyfingar sem okkar skulu ekki nota tækifæri til þess að víkka hóp vina og sambands þeirra á milli út fyrir landamæri þjóðanna, sem við allir störfum innan.Þegar þeir níu umdæmisstjórar frá Evrópu hittust í Indianapolis til fræðslu fyrir umdæmisstjóra starfsársins 2000-2001, komst strax á vinátta og samkennd.
Við ákváðum að rækta tengsl milli umdæma okkar einnig milli Evrópskra
klúbba með fundum og
samvinnu.
Umdæmisstjórarnir hafa nú þegar sýnt fordæmi með setningu markmiða sem sýna virði Kiwanishreyfingarinnar fyrir Evrópu. Einnig hittumst við eins oft og mögulega til að nýta sam-eiginlega reynslu okkar.
Varðandi ykkar umdæmi númer 3, er ósk mín að nánari tengsl komist á milli okkar tveggja þjóða. Ég get hugsað mér samvinnu við ræktun menningarlegra tengsla og ferðamanna samskipti. Umdæmið Frakkland - Mónakó telur um það bil 5.500 félaga í 252 klúbbum og 10% félaga eru konur.
Starf innan umdæmisins er mjög fjölbreytt. Þetta starfsár styðjum við félag ungra sjúkraþjálfara Les Kines du Monde" sem gefa vinnu sína frá sex mánuðum til eins árs í löndum þriðja heimsins við þjálfun barna sem þjást af lömunarveiki og öðrum sjúkdómum og þjálfa heimamenn til að veita sömu þjónustu reglulega. Við erum einnig á öðru ári skipulagningar svokallaðrar skírn í lofti" fyrir fötluð börn sem á síðasta ári veitti 1.500 börnum tækifæri til að njóta þess að fara í flugferð. Einnig höfum við tekið upp Kiwanisdúkkuna sem nú þegar er til huggunar barna fyrir skurðaðgerðir. Klúbbarnir eru einnig mjög virkir í baráttunni gegn mænusiggi með að skipuleggja það sem við köllum vonarferðir til að létta skap mænusiggs sjúklinga, einnig höldum við sérstök golfmót fyrir þá sem haldnir eru þessum sjúkdómi og seljum kerti þeim til stuðnings. Að síðustu höfum við hafið starf með þeim sem standa fyrir Ólympíuleikum fatlaðra, sérstaklega á
Atlantshafs strandsvæðunum.
Yves Martinot sem er okkar maður fyrir alþjóða tengsl setur upp lista yfir alla klúbba sem eru í samvinnu við klúbba innan ykkar umdæmis til þess að koma á sambandi við þá klúbba sem geta hafa misst niður samband gegnum árin.
Ég vil gjarnan bjóða þér að koma slíku sambandi á og hvetja til slíkrar samvinnu og hafa, í því skyni samband við Yves Martinot, 44 Bd. Ney, 54700 Pont A. Mousson, tl,: +33-3-83 83 2429, og
GSM númerið hans er: +33-68-113 698 51.
Ég vonast til að sjá marga ykkar á umdæmisþingi
okkar sem haldið verður
4.-7. maí 2001 í Bsancon, borg sem við völdum ekki aðeins vegna staðsetningarinnar, heldur einnig fyrir
nálægð við önnur Evrópulönd. Varðandi frekari
upplýsingar gjörið svo vel
að hafa samband við skipuleggjanda þingsins, Paul Pierard, 4 rue de Dole, 39100 Monnieres, France, tel.: +33-3-84 79 2060
Þakka þér aftur Gísli fyrir að hafa opnað fréttabréf ykkar fyrir önnur umdæmi.
Með kærri kveðju,
Jean-Charles Bonelli,
Umdæmisstjóri 2000-2001
Umdæmið Frakkland Mónakó. |