|

Ágætu Kiwanisfélagar,
Ýmislegt hefur verið til skemmtunar hjá okkur í vetur. Jólafundur okkar var haldinn í byrjun desember og mættum við þar ásamt mökum okkar. Eins og ávallt þegar góða
veislu gjöra skal taka Hörpu-félagar sig saman og útbúa glæsilega veislu. Þær Þórunn Hermannsdóttir og Jóna Bjarnadóttir tóku að sér að elda dýrindismáltíð fyrir jólafundinn og voru við ósvikin að þeim veislugjörðum. mislegt var til gamans gert á þessum fundi. Eins og ávallt fyrir jólin færðum við Mæðrastyrksnefnd peningagjöf. Þá seldum við einnig jólakertin okkar og seldust þau vel að vanda. Einnig seldum við jólapappír og jólakort og gekk sú sala bærilega.
Strax eftir áramótin fengum við svæðisstjórann Oddnýju Ríkharðsdóttur ásamt
útbreiðslu- og fræðslunefnd til að koma í klúbbinn.
Þær stöllur fluttu okkar fróðleg erindi um Kiwanisstarfið. Á þennan fund mætti einnig fyrrverandi svæðisstjóri Andrés Hjaltason.
Við höfum gert ýmislegt það sem af er árinu. Forsetinn okkar hefur kennt okkar línudans í kaffihléum og einnig höfum við farið með einn fund á kaffihús og varð Lækjarbrekka fyrir valinu að þessu sinni.
Sameiginlegur fundur Hörpu- og Sólborgarfélaga var haldinn eins og venja hefur verið undanfarin ár. Þessi fundir hafa verið vel sóttir og ávallt skemmtilegir. Í ár fengum við hina einu sönnu Rósu Ingólfsdóttir til að koma til okkar og kynnti hún okkar snyrtivörur og ferð sem farin verður til Swiss í heilsubótarskyni fyrir konur.Við tókum þátt í söfnun
fyrir Krabbameinsfélagið. Framundan er síðan köku-basar sem haldinn verður á Garðatorgi þann 7. apríl nk.
og vonumst við til að sjá sem flesta Kiwanisfélaga þar.
Með kiwaniskveðju,
Þyrí Baldursdóttir
blaðafulltrúi. |