Ráðstefna um Fjármál 13. janúar 2001
 ķ Kiwanishúsinu Engjateig 11, Reykjavík.

 

Žann 13. janśar sķšastlišinn var haldin rįšstefna žar sem fjįrmįl voru į dagskrį. Į rįšstefnu žessari voru kynntir endurskošašir samstęšureikningar fyrir starfsįriš 1999-2000, en helstu breytingar eru aš bśiš er aš setja saman ķ eina heild alla reikninga umdęmisins og er rekstur žeirra fęršur žar sundurlišašur en ķ einni samstęšu. Jafnframt var skipaš ķ 3 vinnuhópa og koma fram nišurstöšur žeirra hér į eftir. Žetta var góš rįšstefna og ętti aš skoša alvarlega aš vera meš eina slķka ķ byrjun janśar į hverju įri til aš skoša hvernig til hafi tekist ķ żmsum mįlum hreyfingarinnar, og fį įlit hinna almennu Kiwanisfélaga į rekstri umdęmisins mešal annars. Žaš er gott vegarnesti fyrir komandi stjórnendur aš hlera hvernig vilji hinna almennu félagsmanna er hverju sinni. Žaš gerir ekkert annaš en aš styrkja góša hreyfingu. Į žessa rįšstefnu komu 62 Kiwanisfélagar auk fulltrśa frį Deolett & tśss sem eru löggiltir endurskošendur umdęmisins samkvęmt samning. Nišurstöšur žessar verša sendar öllum klśbbum umdęmisins.


Umræðuhópur A" sem ræddi um umdæmisþing. 22 tóku þátt.
Hópsstjóri var Ingþór H. Guðnason, kjörumdæmisstjóri.

1 Hvenær viljum við halda þingin?
Meirihluti fundarmanna var á þeirri skoðun að halda þingin á tímabilinu 15. ágúst til 30. sept.
Sú spurning heyrðist hvort ekki væri rétt að breyta í vorþing. Athyglisverð var spurningin, af hverju er ekki nóg að halda þing annaðhvort ár og aðalfund" hitt árið?

2 Hvernig þingstaði viljum við?
Allir sammála um að vilja góða aðstöðu, helst fullkomna funda- og gistiaðstöðu og að allt sé á sama stað. Áhersla var lögð á að yfirbragð þingsins væri virðulegt og huggulegt.

3 Dagskrár þinga.
Flestir sammála um að í aðalatriðum hafi dagskrár þinga verið góðar en fundið að því að þingin væru keyrð" áfram, rétt eins og allt miðaðist við að vera búin sem fyrst! Fundarmenn voru mjög ánægðir með þá breytingu að þingsetningin var tímasett fyrir kvöldverð. Einnig var það almenn skoðun að tími væri fyrir hendi á laugardeginum fyrir umræðuhópa.

4 Embættismannafræðsla á þingum?
Meirihluti vill fá fræðsluna inn á þingin, á föstudeginum. Einnig var spurt hvort skráð væri hverjir mættu ekki og hvernig og hvenær væri hægt að fræða þá. Eins kom fram að ótækt sé að taka alla saman, í fræðslu, í einum hóp.

5 Hvernig viljum við hafa hádegismatinn á laugardeginum?
Fundarmenn sammála um að vilja heldur léttan hádegisverð en súpu og brauð.

6 Hvernig viljum við hafa dagskrá Galakvöldsins?
Ekki var fundið að dagskrá Galakvöldsins en bent á að ekki ætti hún að standa
lengur en til kl. 23.00. Mikil
áhersla lögð á léttleika
og reisn.

7 Hvernig viljum við hafa þingsetninguna?
Allir sammála um að nýja tímasetningin sé góð og að áfram eigi þetta að vera mjög hátíðleg stund.

8 Fyrirkomulag pantana og ábyrgð þeirra sem panta.
Flestir fundamanna vilja að skoðað sé í alvöru hvort hægt sé að taka upp gamla pakka" fyrirkomulagið en þó þannig að greitt sé miðað við félagafjölda hvers klúbbs. Allir skyldu nauðsyn þess að klúbbarnir staðfestu pantanir sína, fyrir ákveðna dagsetningu, með peningagreiðslu.

9 Það sem gert er fyrir maka þeirra sem þing sækja.
Tími til umræðna var á þrotum svo þetta var lítið rætt, en þó bent á að þegar þing eru haldin á Reykjavíkursvæðinu, þá gleymist að sinna þeim.


Niðurstöður í umræðuhóp B" um fræðslu. 14 manns tóku þátt.
Hópsstjóri Valdimar Jörgenson verðandi kjörumdæmisstjóri.

1 Fræðsla forseta fari fram að vori í apríl, ágætt væri að senda þeim gögn fyrr.

2 Fræðsla ritara og féhirða fari fram á þingi, á föstudegi.

3 Við komum aðeins inn á fræðslu svæðisstjóra, þeir sem þekkja til voru sammála um að hafa þá fræðslu í mars eins og verið hefur.


Helstu niðurstöður úr umræðuhópi C", um fjármál almennt. 26 tóku þátt.
Hópsstjóri Sæmundur H. Sæmundsson.

1 Samræma eins mikið og hægt er í rekstri umdæmisins, hvað varðar kostnað og fl. og vera alltaf með starfsemina í stöðugri endurskoðun.

2 Reka umdæmið sem eina heild, þar sem reikningum er skipt í deildir innan (samstæðureikninga). Gera ábyggilegar fjárhagsáætlanir og láta þær standast. ( Ekki taprekstur).

3 ATH. færa fræðslu út í svæðin, ef könnun þar að lútandi sýni að það sé skynsamlegt.

4 Halda reisn umdæmisins, þannig að hreyfingin verði aðlaðandi fyrir þá sem þegar eru félagar og ekki síður fyrir nýja félaga, fólk framtíðarinnar í hreyfingunni.

5 Vera vakandi fyrir hagræðingu í rekstri, án þess að það komi niður á kjarnastarfinu.

6 Athuga hvort að öll fræðsla á að færast nær umdæmisþingi, eða kannski að vera á þingi.

7 Athuga með að færa þing aftar á haustið, ef skoðun sýni að það sé fjárhagslega hagstætt.

 

Kiwaniskveðja,
Guðmundur Pétursson, Keilir, 
Fráfarandi umdæmisstjóri.

[ Til baka - Back ]