Ritstjórapistill


Ágætu Kiwanisfélagar,

Með hækkandi sól og von um gott vor og sumar erum við Kiwanisfélagar vonandi allir bjartsýnir á framtíðina. 
Félagafjölgun hefur kannski ekki verið eins mikil og við hefðum viljað. Eftir fund sem haldinn var í Kiwanishúsinu við Engjateig þann 20. mars sl. megum við vera enn bjartsýnari en við höfum verið. Á þennan fund mættu nærri 40 manns og voru 27 þeirra tilbúnir til að koma á annan fund. Þetta finnst mér gefa okkur byr undir báða vængi og að við eigum halda ótrauð áfram.

Klúbbarnir virðast standa vel að þeim verkefnum sem þeir taka sér fyrir hendur og er Krabbameinssöfnunin gott dæmi þar um. Það sést best að góð samvinna er gulli betri. Ég verð að segja eins og er að ég hef verið dálítið hissa á því hve klúbbar hafa lítið viljað skrifa í málgagnið sitt. Ég hef þurft að ganga á eftir klúbbum til að fá greinar þó svo að nóg sé á að taka hjá flestum klúbbum í landinu. Eftir margar tölvupóstsendingar og símtöl tóku allmargir vel við sér og ber að þakka þeim. Undanfarna mánuði hafa klúbbar átt stórafmæli og ýmsar uppákomur verið haldnar en aðeins lítið brot af fréttum hafa borist til Kiwanisfrétta. Við verðum öll að leggja hönd á plóginn til að gera blaðið okkar að enn betra blaði. Ég vil hvetja alla að leggjast á eitt og koma fréttum klúbbana á framfæri. Næsta blað kemur út fyrir Umdæmisþingið okkar í Færeyjum. Ég vil biðja ykkur að senda inn greinar eigi síðar en 15. júlí, en ekki verður hægt að taka við greinum eða pistlum eftir þann tíma. Við í ritstjórninni viljum að lokum óska ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra páska. 

Með kiwaniskveðju
Þyrí Baldursdóttir   
ritstjóri.

[ Til baka - Back ]