|
Svo kvað meistari Þórbergur á sínum tíma eins og frægt er og hafa ýmsir gárungar gaman af að minna okkur Seltirninga á þessar ljóðlínur. Ekki veit ég hvernig var þankagangur forvera okkar á Nesinu en löngum hafa búið þar dugmiklir bændur og fræknir sjósóknarar. Fullyrða má að eins og forðum býr hér stórhuga og víðsýnt fólk sem m.a. birtist í öflugu starfi hinna mörgu félagasamtaka og klúbba sem þar starfa.
Einn þessara klúbba er Kiwanisklúbburinn Nes, sem átti 30 ára afmæli 18. febrúar s.l.. Tildrögin að stofnun klúbbsins voru þau að fimm félögum í Kiwanisklúbbunum Heklu og Kötlu, sem búsettir voru á Seltjarnarnesi, þótti tímabært að stofna þar Kiwanisklúbb. Stofnfélagar voru 26 og eru 8 þeirra enn starfandi í klúbbnum. Móðurklúbbar eru Hekla og Katla. Fyrsti forseti klúbbsins var Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, stórkaupmaður, sem nú er látinn. Margt hefur breyst á Seltjarnarnesi eins og annars staðar á landi hér á þeim 30 árum sem liðin eru frá stofnun klúbbsins. Til dæmis voru fyrstu fundir klúbbsins haldnir í anddyri íþróttahússins þar sem smíði Félagsheimilisins var þá ekki lokið. Eftir að smíði þess lauk hefur klúbburinn haft þar ágætis aðstöðu fyrir starfsemi sína. Haldið var upp á afmæli klúbbsins með fjölmennri samkomu í Félagsheimilinu þann 15. mars s.l.
Styrktarmálefni eru eitt af höfuðmarkmiðum Kiwanishreyfingarinnar og óteljandi eru þau verkefni sem klúbbfélagar hafa innt af hendi til að afla fjár til hinna ýmsu styrktarverkefna. Skal hér minnst á nokkur þau málefni er félagar í Nesklúbbnum hafa lagt lið á þeim 30 árum sem klúbburinn hefur starfað. Lengi vel var fisksala einn aðaltekjustofn klúbbsins. Klúbbfélagar pökkuðu fiskinum og gengu í hús á Nesinu og seldu og vorum við aufúsugestir margra húsmæðra. Er nær útilokað var að fá fisk með góðu móti urðum við að gefa fisksöluna upp á bátinn enda engir sægreifar í klúbbnum aðeins tveir eða þrír trillukarlar. Klúbbfélagar hafa lengi selt flugelda um hver áramót og er það nú aðaltekjulindin. Ennfremur hefur klúbburinn haft tekjur af sölu auglýsinga á klukku sem klúbburinn reisti á Eiðistorgi. Margt fleira mætti telja upp en þetta verður látið nægja. Styrktarverkefni klúbbsins hafa verið af ýmsum toga. Í áraraðir hefur klúbburinn styrkt Björgunarsveitina Albert með fjárframlögum og tækjakaupum. Málefni fatlaðra hafa verið ofarlega á baugi og hafa bæði einstaklingar og félagasamtök verið styrkt með fjárframlögum o.fl. Íþróttafélagið Grótta hefur verið styrkt með ýmsu móti og vistmenn á Bjargi hafa fengið glaðning um jólin og 17. júní. Við skólaslit Valhúsa- og Mýrarhúsaskóla hafa brautskráðum nemendum árlega verið veitt verðlaun í viðurkenningarskyni fyrir góðan námsárangur. Þá bauð klúbburinn lengi vel 12 ára skólabörnum úr Mýrarhúsaskóla í dagsferð um Suðurland og svo mætti lengi telja. Klúbbfélagar hafa efnt til ferðalaga á
hverju sumri ýmist innanlands eða til útlanda.
Klúbburinn hefur verið í nánu sambandi við Kiwanisklúbbinn Nesodden við Oslóarfjörð, en Nesodden er vinabær Seltjarnarness. Hinir norsku félagar hafa árlega sent okkur jólatré, sem klúbburinn hefur síðan afhent bæjarfélaginu við hátíðlega athöfn. Kveikt var á jólatrénu 10. desember s.l. og var þetta tré helgað minningu eins félaga okkar, Magnúsar Georgssonar, sem lést í janúar árið 2000 en hann var einn af atkvæðamestu félögum okkar og var vel þekktur innan hreyfingarinnar. Magnús hafði ásamt fleiri félögum í klúbbnum eignast góða vini í Nesodden klúbbnum vegna gagnkvæmra heimsókna klúbb-félaga á liðnum árum.
Þegar litið er um öxl til upphafsára klúbbsins sjáum við að grundvöllur og allt umhverfi félagsstarfsemi í landinu er gjörbreytt frá því klúbburinn var stofnaður fyrir 30 árum. Fólk hefur önnur áhugamál auk þess sem öll afþreying er miklu fjölbreyttari en þá var. Þetta hefur nokkuð bitnað á starfsemi Nesklúbbsins sem og annarra klúbba þar sem
félagsmönnum hefur fækkað. Hlýtur það að verða eitt af framtíðarmarkmiðum Kiwanishreyfingarinnar að efla starf hennar með fjölgun klúbbfélaga.
Að lokum sendum við Kiwanismenn á Seltjarnarnesi félögum okkar um allt land bestu kveðjur með þökk fyrir gott samstarf og ósk um bjarta framtíð.
Theodór S. Georgsson.
Blaðafulltrúi Ness. |