KiwanisfréttirFréttir frá Skildi Siglufirði


Landssöfnun Krabbameinsfélags Íslands. 
Landssöfnunin fékk góðar undirtektir og hér eru tveir 
gamalreyndir Kiwanismenn búnir að ljúka sínu verki. 
Arnar Ólafsson og Helgi Magnússon.

 
Kiwanisstarfið hjá okkur á Siglufirði er í góðu gengi um þessar mundir, enda er flest í föstum skorðum eftir þrjátíu ár. Fjáraflanir svo sem jólasælgætissala og flugeldasala tókust vel, útgáfa símaskrár fyrir Siglufjörð og Fljót fer af stað fljótlega, en sú fjáröflun stendur undir kostnaði við ferð með eldri borgara Siglufjarðar. Klúbburinn hefur til margra ára séð um þrettándabrennu, tilheyrandi blysför og flugeldasýningu. Þar mæta álfakóngur og drottning auk fjölda barna í búningum. Veitt eru verðlaun fyrir bestu búninga. Ennfremur höfum við, allt frá árinu 1979, staðið fyrir kjöri íþróttamanns ársins á Siglufirði. Íþróttafélögin tilnefna þá íþróttamenn, sem skarað hafa fram úr í þeim keppnisgreinum sem stundaðar eru í Siglufirði. Fyrstu árin var kjörið aðallega fyrir íþóttamennina sjálfa og þeirra aðstandendur, en nú er þetta skemmtun fyrir alla, sérstaklega börn og unglinga. Við höfum góða dagskrá, með hljómlist og söng, ávörpum, happdrætti fyrir skólakrakka, smá veitingar í boði bæjarins, auk þess, sem er aðalatriðið, afhending viðurkenninga fyrir unnin afrek. Veitt er viðurkenning fyrir besta árangur í hverri grein, í tveim aldursflokkum 13-16 ára og 17 ára og eldri. Tvö síðustu árin einnig sérstaklega í kvennagreinum. Trúum við í Skildi því, að þessi viðleitni okkar efli áhuga unglinga á íþróttum. Nýlega héldum við þessa hátíð í 21. skipti, fyrir troðfullu húsi að Hótel Læk. Þar voru veittar 13 viðurkenningar fyrir bestan árangur í 7 greinum íþrótta, þar af 5 í kvennagreinum. Að þessu sinni var íþróttamaður ársins kjörin ung og efnileg skíðakona. Er það reyndar fjórða konan sem hlýtur titilinn Íþróttamaður ársins í Siglufirði.


Íþróttmaður ársins árið 2000: 
Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir.

 


Íþróttamaður ársins: Séð yfir samkomugesti.
 

Á bóndadaginn var þorrafundur klúbbsins, óvenju fjölmennur að þessu sinni, fyrir utan félaga komu 36 gestir, sumir langt að komnir, meðal annarra voru 6 félagar úr Drangey. Húsnæði okkar, þar sem oftast er rúmt um okkur var fullt út úr dyrum, sumir urðu að hafa sviðakjammana á hnjám sér. En hvorki vantaði mat né drykk, glaum né gleði .


Kjör íþróttamanns ársins:
Bæjarstjóri flytur ávarp, 
Guðmundur Guðlaugsson, bæjarstjóri 
og Birgir Guðlaugsson, formaður íþróttanefndar.

Ekki er allt starf og strit, því þegar klúbbstarfið var komið vel af stað í haust, vildu menn gera sér glaðan dag og buðu eiginkonum sínum til veislu í Fjallakránni í Skagafirði, hlaut það góðar undirtektir og fóru um 50 manns á tveim bílum. Nokkuð hvasst var og hríð, en ekki var það látið tefja för. Á Fjallakránni var góð veisla og mikið fjör til miðnættis, en þá þurfti að hafa sig heim aftur því snjómoksturtæki voru þá að ryðja veginn til Siglufjarðar. Allir komust heilir heim og var mikil ánægja með ferðina.
 

Skjöldur er þrítugur á þessu ári og er ekki að sjá nein ellimerki, nýir félagar að ganga í klúbbinn, 
og áhugi á starfinu. Ráðgert að halda upp á afmælið í maí og munum við láta til okkar 
heyra fljótlega um það mál, og fleira fljótlega.

 

Með Kiwaniskveðju Steinar Baldursson.

[ Til baka - Back ]