Fréttir frá Skjálfanda

Starf Kiwanisklúbbsins Skjálfanda hefur verið að mestu hefðbundið og í all góðum farvegi, starfsandi í klúbbnum góður, og félagsstarfið í blóma, félagar ávalt viðbúnir, verkaskiptin hnitmiðuð, verkefni unnin af miklum krafti, og afrakstur vinnunnar mikill og þar af leiðandi leikur einn að koma til framkvæmda vilja og markmiðum Kiwanishreyfingarinnar í verk, með það að leiðarljósi að gera hlutina á nýrri öld í krafti hugsjónar og víðsýni eins og Umdæmisstjórn hefur mælst fyrir um.

Eftir hefðbundið upphaf á starfárinu s.l. haust var nóvember mánuður frekar tíðindalítill, nefndir að hefja störf og klúbbfélagar að átta sig á nýrri verkefnaskipan og hlutverkum sínum í starfi klúbbsins á komandi starfsári. Haldnir voru tveir fundir í mánuðinum, félagsmálafundur sem haldinn var að Sultum í Kelduhverfi, sem er Óðal Brynjars, svæðisritara og konu hans Ólafar, og eiga margir Kiwanisfélagar þaðan góðar minningar síðan við héldum þar sumarhátið fyrir nokkrum árum.

Á þessum fundi var endanlega gengið frá gjöf til Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík, sem er fullkominn björgunar bátur, en á síðasta starfsári var ákveðið að koma að því máli eftir bestu getu, en nú var ákveðið að klúbburinn fjármagnaði kaupin að fullu. Síðari fundur mánaðarins var fjárhagstaða klúbbsins rædd og væntanlegar fjáraflanir, en staða klúbbsins er traust og á síðasta starfsári var góð afkoma bæði í félagssjóði og líknarsjóði og fór rekstur líknarsjóð yfir tvær milljónir, sem verður að teljast gott í svo  fámennum klúbbi, enda bera styrkveitingar og störf klúbbsins það með sér og fullyrða má að samfélagið á Húsavík myndi verða þess vart ef starf Skjálfanda nyti ekki við eða væri til staðar.

Í desember var annasamt að venju, fyrri fundur mánaðarins var rætt um undirbúning flugeldasölu, styrkveitingar til fjölskyldna sem vegna veikinda eða annarra ástæðna stæði illa á um jólin. Jólafundur Skjálfanda var haldinn 16. desember, og var það jólahlaðborð þar sem félagar skemmtu sér ásamt eiginkonum. En venja er á jólafundi að fá prest eða annað andans fólk til að koma okkur í jólaskap, og að þessu sinni var það Dögg Harðardóttir sem annast m.a æskulýðsstarf við Húsavíkurkirkju sem flutti okkur ljúfan jólaboðskap, og þakkaði síðan fyrir sig með að afhenda öllum Skjálfandafélögum og eiginkonum bænakver með von um að það kæmi að góðum notum. Fyrr um daginn heimsóttu klúbbfélagar Björgunarsveitina Garðar á Húsavík, þar sem nýr og fullkominn björgunarbátur var vígður og gefið nafnið Jón Kjartansson, í minningu og virðingu við fyrrum félaga okkar og formanns Garðars til margra ára, en hann fórst í hörmulegu slysi á Mývatni ári áður. Það var ekkja Jóns, Bertha Pálsdóttir, sem gaf bátnum nafn eftir að sóknarpresturinn séra Sighvatur Karlsson hafði vígt og blessað bátinn. Að vígslu lokinni var boðið til kaffisamsætis í Nausti, félagsaðstöðu Garðars þar sem fráfarandi og núverandi forseti klúbbsins afhent formanni björgunarsveitarinnar gjafabréf að upphæð 1.320.000,- sem var andvirði bátsins með vélum eins og hann var afhentur.

Formaður Garðars þakkaði þessa höfðinglegu gjöf og stórhug Skjálfandafélaga sem alla tíð hafa fært sveitinnistórgjafir, og gerðu þeir orðið ráð fyrir því í sínum áætlunum fyrir uppbyggingu sveitarinnar.

Síðustu daga desembermánaðar stóðu Skjálfandafélagar í ströngu við árlega flugeldasölu sína, og gekk hún mjög vel og afrakstur góður að venju, og var vinnuframlag klúbbfélaga við söluna og pökkun 350. tímar og afrakstur sex til sjöhundruð þúsund nettó.

Eftir áramót hafa verið fimm fundir. 4. febrúar var okkar árlegi þorrafundur. Kiwanisklúbburinn hefur annast útnefningu á íþróttamanni Húsavíkur, nefnd hefur verið að störfum við það og var ákveðið að tilkynning um útnefningar á íþróttafólki yrði sautjánda febrúar í tengslum við okkar árlega Bocciamót fatlaðra ( Þórðarmót ), en klúbburinn er aðal stuðningsaðili Bocciadeildar Völsungs, og annast þjálfun og alla dómgæslu á mótum, ekki varð af þessu móti en í staðinn héldum við opna Húsavíkurmótið sem er árleg fjáröflun Bocciadeilarinnar, alls tóku 24 lið þátt í mótinu og var fjörug úrslita viðureign, er verlauna afhending fyrir mótið var lokið, fór fram valið á íþróttamanni Húsavíkur, höfðu borist tilnefningar frá níu greinum, Hnit 16 ára og yngri, Boccia 16 ára og yngri - 17 ára og eldri, Frjálsíþróttir 17 ára og eldri, Knattspyrna 16 ára og yngri - 17 ára og eldri, Golf 16 ára og yngri, Hestaíþróttir 16 ára og yngri, Sund 16 ára og yngri, Handknattleikur 16 ára og yngri - 17 ára og eldri, Skotíþróttir 17 ára og eldri.

Íþróttamaður Húsavíkur er Sigurbjörg Hjartardóttir árið 2000 einnig var veittur Hvatningabikar Í. F. 2000 og hlaut hann Erla R. Hansen.

Á síðasta fundi var fyrirlesari Tryggvi Finnsson frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga og fræddi okkur um stöðu Húsavíkur og nágranasveita-félaga í atvinnuuppbyggingu og nýjum tækifærum, einnig um samgöngur og ástand vega í norður Þingeyjarsýslu.

Þá hefur verið ákveðið að Skjálfandafélagar ásamt eiginkonum fjölmenni til Færeyja á næsta Umdæmisþing, og hafa 20 manns staðfest þátttöku.

Á nýbyrjuðu ári gerðust þau gleðitíðindi í starfi klúbbsins að einn nýr félagi var tekinn í klúbbinn, en það hafur ekki gerst lengi. Nýr félagi er Geir Bjarnason, búsettur á Kópaskeri og var áður félagi í Kiwanisklúbbnum Faxa á Kópaskeri.

Nú er verið að undir búa bingókvöld í Hvammi dvalarheimili aldraða, sem er árleg heimsókn Skjálfandafélaga um miðjan mars, eins útivistardeigi 1. apríl og afhendingu reiðhjólahjálma til sjö ára barna á Húsavík og Hafralækjarskóla í samvinnu við Hjálparsveit Skáta Aðaldal.

Þá er verið að undirbúa sumarhátið að Breiðumýri í Reykjadal sem er í umsjón svæðisstjórans í Óðinssvæði Þorsteins Jónssonar sem er félagi í Skjálfanda og er félagar tilbúnir sem aðstoðamenn hans.

Með Kiwaniskveðju,
Haukur Tryggvason.
Forseti og blaðafulltrúi.

[ Til baka - Back ]