|
Heilir og sælir Kiwanisfélagar nær og fjær.
Sveitavargurinn er þekktur fyrir að vera bæði frekur og ágengur og erum við Borgfirðingar áreiðanlega ekki saklausastir í því efni. Til dæmis þykir okkur Smyrilsfélögum við vera orðnir nokkuð stórir, komnir vel á þrítugsaldurinn og farnir að grána í vöngum svona einn og einn. Við sem sagt héldum upp á tuttugu og fimm ára afmælið okkar nú þann 24. mars þó raunverulegur afmælisdagur sé 15. janúar. (Sagði ekki sá fulli að mun auðveldara væri að leita undir ljósastaurnum þar sem birtan væri frekar en að paufast í myrkrinu þar sem hann týndi bokkunni). Við allavega ákváðum, eftir ekki svo miklar þenkingar, að seinka hátíðinni nokkuð svo sólin kæmist hærra á loft til að auka okkur sýn yfir farinn veg. Á þessum tímamótum okkar tóku höndum saman við okkur góðir félagar úr fleiri klúbbum, Þyrli á Akranesi, Jöklum í Borgarfirði og Elliða í Reykjavík og úr þessu var gerð árshátíð af betri gerðinni. (Það er dálítið undarlegt að tala um óorðinn atburð eins og liðinn sé, því í þennan mund sem þessi orð eru sett á blað, er árshátíðin framtíðaruppákoma og jafngott fyrir greinarhöfund að vel takist til svo uppátækið verði ekki honum og klúbbnum til ævarandi háðungar um komandi ár). Árið hefur þó verið okkur Smyrilsfélögum gott í flestu tilliti (þrátt fyrir allan þennan þroska sem við tókum út og sumum þykir erfitt að játa á sig. Sérstaklega konum í hrukkuleit). Tveir stofnfélagar í klúbbnum okkar, sem starfað hafa í öll þessi tuttugu og fimm ár (hugsið ykkur) og gengið með klúbbnum sínum í gegnum súrt og sætt á liðnum aldarfjórðungi voru heiðraðir í vetur. Þessum mönnum, Magnúsi Guðjónssyni og Sigurgeir Erlendssyni voru afhent merki um starfsaldurinn (eins og þau séu ekki næg framaní þeim) og viðurkenningarskjal sem staðfestir þessa þrautseigju sem hlýtur að teljast virðingarverð í meira lagi. Í tilefni aldursins voru styrkir veittir þrem aðilum á fundi í febrúar. Það voru Íþróttafélagið Kveldúlfur í Borgarnesi sem er íþróttafélag fatlaðra hér á svæðinu, Félag hjartasjúklinga á Vesturlandi og BBON sem stendur fyrir Brunavarnir Borgarness og Nágrennis. Fulltrúar þessara stofnana tóku á móti styrkjunum. Fjármunir þeir sem klúbburinn notar í slíka styrki fást með sölu jólapappírs í Borgarnesi og nágrenni og viljum við Smyrilsfélagar þakka nágrönnum okkar hlýlegar viðtökur fyrir jólin. Það verður að segjast eins og er, að með því ánægjulegasta í klúbbstarfinu er að geta látið eitthvað af hendi rakna til styrktar þeim sem eiga undir högg að sækja í þjóðfélaginu og þó svo að þessi félög ættu ekki að þurfa að vera bónbjargaraðilar, þá er það svo að okkar annars ágæta þjóðfélag hefur tilhneigingu til að eyða frekar fé í fullfríska einstaklinga, sem vilja klessa lit á tuskur (eða eitthvað þess háttar), fremur en hina sem litla björg eiga. Auk styrkveitinga í beinum framlögum tóku klúbbfélagar þátt í söfnun Krabbameinsfélagsins í byrjun mars í samvinnu við Lionsklúbbinn hér í Borgarbyggð og Krabbameinsfélagið. Klúbbstarfið er hinsvegar frekar líflegt og höfum við bætt við okkur nýjum félaga á árinu, auk þess að hafa tekið upp náið samstarf við okkar ágætu nágranna Jökla í uppsveitum Borgarfjarðar. Þessi samvinna kemur meðal annars þannig fram að nokkrir Jöklafélagar verða með okkur Smyrilsmönnum í Færeyjaferð á sumri komanda. Þeir Jöklamenn eru nefnilega svo hundheppnir (og við Smyrilsmenn líka) að hafa innfæddan Færeying innan síns klúbbs og kemur hann með okkur í ferðina. Meinhard ætlar svo að verða okkar leiðsegjandi um eyjarnar því við ætlum að taka með okkur gnógt bíla til ferðalaga um skerin. Bílarnir taka líka mesta álagið af öxlum klúbbfélaga við bjórburðinn því fregnað höfum við að eyjarskeggjar lagi ágætt öl sem fer vel í maga. Þessi ferð er opinberlega til að mæta á umdæmisþingið en er í og með ætluð sem afmælisferð og því ástæðulaust að lifa einhverju meinlætalífi í Færeyjum. Fjöldinn sem fer í ferðina er samtals 24 svo geri aðrir betur af 19 manna klúbbi. Auk fyrirhugaðrar Færeyjaferðar höfum við heimsótt nágrannaklúbba okkar þá Jökla og Þyril (fleiri heimsóknir eru fyrirhugaðar fyrir lok starfsársins) og að sjálfsögðu förum við í okkar ágætu vorferð þegar dregur að lokum starfsársins en ferðirnar þær eru ekki til frásagnar í opinberum miðli. Vorferðin var tekin upp fyrir nokkrum árum og höfum við haft hana í formi óvissuferðar hingað til og einhverjum hrekkjóttum falin fararstjórn svo allt fari sem best fram. Mér vitanlega hefur ekki orðið vart óhamingju með ferðir þessar þó myndir séu ekki alltaf vel séðar eftir ferðina. Ég læt þetta duga sem fréttaskot héðan úr Borgarfirðinum en bendi á að héraðið allt er hinn fegursti blettur og ýmislegt að sjá og skoða. |
|

Frá vinstri: Bjarni Þorsteinsson frá BBON, Ásdís Baldvinsdóttir frá Kveldúlfi,
Guðlaugur Guðmundsson frá Fél. hjartasjúklinga á Vesturlandi,
Sigurður Guðmundsson, gjaldkeri Smyrils
og
Þórður Þorsteinsson, forseti Smyrils.
|