
Starfið í Sögusvæði hefur gengið ágætlega það sem af er starfsárinu. Stjórnarskipti voru hjá Ós þann 16. september, og í kjölfarið komu Ölver og Helgafell með sín stjórnarskipti, síðast voru það svo Búrfell og Gullfoss sem voru með sameiginlega stjórnaskiptahátíð þann 13. október en þá hélt Búrfell einnig upp á þrjátíu ára afmæli sitt. Það er sameiginlegt hjá öllum klúbbum að það er mikil starfsemi um jól og áramót, og er þetta aðal fjáröflunartíminn hjá þeim flestum. Mæting á fundi hefur verið góð hjá öllum klúbbunum og fjölgun er í svæðinu. Haldnar hafa verið tvær svæðisráðstefnur, önnur hjá Ölver í Þorlákshöfn þann 18. október. og komu þar Gísli umdæmisstjóri sem sagði okkur frá því helsta sem hefði verið að gerast hjá umdæminu, ásamt Stefáni formanni þingnefndar sem kynnti og svaraði fyrirspurnum vegna ferðar á umdæmisþing í Færeyjum og Sigurbergur formaður Internetsnefndar sem var með fróðlegt og skemmtilegt erindi um nettengingar og gerð heimasíðna fyrir
klúbbana. Síðari svæðisráðstefnan var hjá Ós á Höfn þann 10. mars. Þar voru veittar viðurkenningar vegna síðasta starfsárs, til svæðisstjóra ásamt forseta og ritara Helgafells, Ós og Ölvers, vegna m.a. fjölgunar á síðasta starfsári.
Umdæmisstjóri er búinn að heimsækja alla klúbba í svæðinu. Þann 17. janúar kom hann í heimsókn til Ölvers þar sem var félagsmálafundur og hinn fjörugasti fundur eins og alltaf á þeim bænum. Gullfoss og Búrfell voru næstir, en það var sameiginlegur fundur hjá þeim haldinn á Flúðum þann 23. janúar Þarna komu einnig umdæmisféhirðir og svæðisstjóri ásamt 5 félögum frá Ölver. Umdæmisstjóri afhenti þarna gjafir vegna síðasta starfsárs til Búrfells, Gullfoss og Ölvers en þessir klúbbar áttu allir stórafmæli á síðasta starfsári Þetta var mjög svo ánægjulegur fundur og kom þarna vel í ljós hversu öflugir þessir klúbbar eru. Á fundinum var m.a. rætt um fámenni þessara klúbba og hvort eitthvað væri hægt að gera til að fjölga hjá þeim. Jóhannes Sigmundsson orti af þessu tilefni.
Hér eru miklar meltingar
og margt um fjölgun skrafað,
hvort þeir gráu geldingar
geti áfram lafað.
Þann 25. janúar komu umdæmisstjóri og svæðisstjóri á fund hjá Helgafelli. Þetta var almennur fundur með fyrirlesara, slökkviliðsstjórinn í Vestmannaeyjum sagði frá og sýndi myndir af brunanum hjá Ísfélaginu. Síðasti klúbburinn sem var heimsóttur í svæðinu var Ós þann 21. febr. Þar voru teknir inn tveir nýir félagar, Grétar Vilbergsson og Miralem Haseta og eru þeir félagar í Ós ákveðnir í að fjölga enn frekar hjá sér. Eiginkonur þeirra hafa verið að koma saman í vetur og stendur jafnvel til að stofnaður verði þarna Sinawik klúbbur.
Það er mikið rætt um fjölgun og leiðir til að fjölga.
Þegar við vorum á Höfn, þá benti forseti Ós okkur á auglýsingu sem kom reglulega á skjávarpinu. Þetta var auglýsing um fundinn sem átti að fara að byrja, einnig kom þarna fram eitt af markmiðum hreyfingarinnar. Hafliði forseti Ós sagði okkur að hann væri viss um að þetta skilaði árangri, bæði í betri mætingu og einnig í að fá gesti til að koma á fundi. Hann sagði þessu til staðfestingar að eitt sinn hefði auglýsingin birst í vikunni á milli funda, og það hefði ekki linnt látum, því allir hefðu þurft að fá að vita hvort búið væri að breyta fundartímanum. Ekki er loku fyrir það skotið að þetta segi manni að kynning á Kiwanis og Kiwanisstarfinu mætti vera meiri, og við ættum að tileinka okkur betur bæði sjónvarp og internet til að ná til fólks, og þá sérstaklega yngra fólks. Það hefur margt gott verið gert í kynningarmálum, en tímarnir breytast og mennirnir með og kannski er full þörf á að taka upp nýja siði að einhverju leiti. Ég vil að lokum óska öllum kiwanisfélögum gleðilegs sumars og velfarnaðar í starfi.
Með kiwaniskveðju,
Guðmundur Baldursson
|