Fréttir af Sólborg
Ágætu Kiwanisfélagar!
Það má með sanni segja að Sólborgarkonur hófu nýtt ár með glæsibrag er við mættum allar sem ein á fyrsta fund ársins sem haldinn var í þetta sinn í Vínkjallaranum í Kirkjuhvoli og segir þessi góða mæting heilmikið um samheldnina og kraftinn sem í okkur býr, enda leggst nýtt ár vel í okkur og horfum við fram á veginn björtum augum og höfum gaman að.
Fyrsta verkefni ársins var í febrúar síðastliðnum er Íþróttafélagið Fjörður hélt sitt árlega þorramót í boccia í Viðistaðaskóla, okkar styrkur fólst í því að við sáum um og gáfum kaffiveitingar. Þetta verkefni höfum við verið með undanfarin ár. Laugardaginn 3. mars tókum við flestar þátt í þjóðarátaki gegn krabbameini" er við gengum í hús ásamt fjölda Kiwanisfélaga og söfnuðum fyrir Krabbameinsfélagið. Kvöldinu áður eða 2. mars var Sólborgarkonum boðið á Vínsmökkunarhátíð hjá Setberg ásamt 4 öðrum klúbbum og var vel mætt að vanda frá Sólborg. Það var sérlega ánægjulegt að mæta hjá Setberg þetta kvöld.
Það er margt framundan í Kiwanisstarfinu og má þar á meðal nefna að í samstarfi við Kiwanisklúbbana Hraunborg og Eldborg gefum við nú eins og undanfarin ár öllum 6 ára börnum í Hafnarfirði reiðhjólahjálma.
Í fyrra héldum við ball fyrir fatlaða í Kirkjulundi í Garðabæ ásamt Eldborg, Hraunborg og Setberg. Ætlum við að endurtaka þetta þar sem ballið tókst með eindæmum vel og var vel sótt. Undirbúningur er hafinn og góðir kiwanisfélagar hafa bæst í hópinn frá Hörpu og Eldey, þannig að það er ekki hægt að segja annað en að um heilmikið samstarf sé að ræða þessa dagana.
Í apríl verðum við með páskabingó, við reyndum þetta í fyrsta skipti í fyrra og tókst það bingó mjög vel og gaf okkur þó nokkuð í styrktarsjóð, enda voru vinningarnir glæsilegir og verða það aftur í ár.
Í maí verður svo hinn geysivinsæli Fjölskyldudagur og það á eftir að koma í ljós hvert verður farið nú en það er óhætt að treysta því að það verður eitthvað spennandi fyrir alla fjölskyldu-
meðlimi.
Sem sagt það er allt á fullu hjá okkur og svona í lokin má taka það fram að við erum með 2 félaga í aðlögun sem vonandi eiga eftir að ganga til liðs við hreyfinguna.
Hjördís Harðardóttir
Blaðafulltrúi Sólborg
|