|
Ágætu kiwanisfélagar.
Frá okkur í kiwanisklúbbnum Þorfinni er allt gott að
frétta, Klúbbstarfið gengur vel undir stjórn Sigurðar B. Þorlákssonar forseta.
Við erum með fundi 2. og 4. hvern fimmtudag og eru það alltaf matarfundir.

Fundur á Sólbakka II
Núna höldum við fundi okkar að Sólbakka 2 í
glæsilegu húsi Önfirðingafélagsins. Í desember eru öll félagasamtök saman með
söludag, kveikt er á jólatrénu og allir mæta í Félagsheimilið þar sem kakó og
vöfflur eru á boðstólnum ásamt varningi félaganna. Fyrir Þorláksmessu seljum við
skötu og hnoðmör sem félagar hafa unnið við allt haustið. Söfnun dósa og pökkun
til Endurvinnslunnar er allt árið hjá okkur. Nýtt verkefni í ár er að vinna
rauðmaga til reykingar og verður hann til sölu hjá okkur um mánaðarmótin mars,
apríl.

Aðalfundur 2000, Þorfinnur og Básar. Félagar Þorfinns fóru með limósíu til Bása.
Magnea, Guðlaug, Halldór, Guðbjörg, Helga, Sigurður og Gnós.
Við tókum þátt í landsöfnun Krabbameinsfélagsins 3.
mars með Lionsklúbb Önundarfjarðar og var söfnunar svæði okkar á Flateyri,
Suðureyri, Þingeyri og sveitum.
Básafélagar í heimsókn. Siggi Láka forseti Þorfinns,
Búi, Siggi, og Gulli.
Ákveðið að styrkja ungan dreng hér á Flateyri vegna
dugnaðar hans í íþróttum.
Styrkur þessi kemur úr minningarsjóði Jóns Guðjónssonar frá Veðrará. Verður þetta gert á sumardaginn fyrsta og hafa kaffihlaðborð í minningu félaga okkar Jóns Guðjónssonar. Við í Þorfinni ætlum að fjölmenna til Færeyja í ágúst 10 félagar og 2 makar hafa skráð sig og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest þar.
Með kiwaniskveðju,
Alla Gunnlaugsdóttir
Ritari Þorfinns. |