|
Starfsemin Þórssvæði hefur almennt gengið vel það sem af er starfsárinu. Stjórnarskipti fóru fram á nokkuð hefðbundnu tímabili. Í Færeyjum, hjá Rósan og Tórshavn um miðjan september er svæðisstjóri, kjörsvæðisstjóri og umdæmisstjóri lögðu land undir flugvél í skemmtilegri heimsókn. Vestfjarðaklúbbarnir
Básar og Þorfinnur skiptu um stjórnir í tengslum við haust-svæðisráðstefnuna, sem að vanda er haldin á Vestfjörðum, og um leið tók undirritaður formlega við starfi sínu. Aðrir klúbbar svæðisins það eru Elliði, Esja, Geysir, Hekla og Nes dreifðust á tæpa viku frá 30. september til 5. október að undanskildum Heklu sem dróst til 7. nóvember af óviðráðanlegum orsökum. Allar voru þessar athafnir skemmtilegar, virðulegar og gengu áfallalaust fyrir sig ef undan er skilin ein nýung svæðisstjóra, en það er að taka ekki inn ritara hjá
Elliða heldur að slá til riddara, og er Grétar Hannesson ritari" Elliða nú nefndur Sir Grétar af mismæli. En þessa nafnbót fékk Grétar hjá kjörsvæðisstjóra Þórssvæðis, Guðmundi Péturssyni í Esju.
Eitt stakk mig þó lítillega við stjórnarskipti í klúbbunum en það er mæting stjórnarmanna, bæði fráfarandi og verðandi, til þessarar athafnar. Oft verður ekki við aðstæður ráðið en stjórnarskiptafundir eru þó oftast ákveðnir með mjög löngum fyrirvara og það er ábyrgðarhluti að taka við stjórn kiwanisklúbbs. Þetta er atriði sem mætti betur fara.
Laugardaginn 30. september stóð Mosfellsbær fyrir
kynningu á félaga og tómstundastarfi innan bæjarfélagsins undir yfirskriftinni: Menning- listir og félagastarfsemi. Þarna voru margir að kynna starfsemi sína og þar á meðal kiwanisklúbbarnir Geysir og Mosfell. Var umgjörð öll hin glæsilegasta og stóðu fulltrúar klúbbanna sig vel. Er óhætt að segja að kynning af þessu tagi geti ekki annað en verið til góðs og mættu fleiri bæjarfélög taka þetta framtak til fyrirmyndar. Árangurinn var fjölgun um einn félaga hjá Geysir.
Fyrsti svæðisráðsfundurinn í Þórssvæði var haldinn
laugardaginn 11. nóvember. Var þetta góður fundur þar sem félagar skiptust á
gagnlegum upplýsingum um kiwanisstarfið, fræðslu, tilhögun á þinggjaldi,
væntanlegt umdæmisþing í Færeyjum og síðast en ekki síst, svæðisráðsfundum, en
mörgum þykja þeir fundir hafa þynnst undanfarin ár og verður það verkefni
svæðisstjóra svo og allra kiwanis-félaga í Þórssvæði að byggja þá upp að nýju.
En til að það megi takast þarf meiri þátttöku hins almenna félaga.
Svæðisráðsfundir eru ekki einkamál svæðisstjóra eða æðstu stjórnenda klúbbana.
Því vil ég hvetja alla félaga til að sækja þessa fundi.
Tveir klúbbar í Þórssvæði hafa átt stórafmæli á starfsárinu til þessa og eru það eftirtaldir: Geysir, en þeir urðu 25 ára 10. desember og Nes, en þeir urðu 30 ára 18. febrúar. Í báðum tilfellum voru haldnar veglegar afmælisveislur. Framundan eru: Básar en þeir verða 25 ára, Rósan 10 ára og Tórshavn 20 ára en afmæli Færeyjaklúbbana verður haldið í tengslum við umdæmisþingi í Þórshöfn sumarið 2001.
Eins og áður kom fram hefur starfsemi klúbba í
Þórssvæði verið með ágætum. Í flestum tilfellum fastmótuð enda rótgrónir
klúbbar. Fjáraflanir hafa almennt gengið vel og styrkveitingar með nokkru
hefðbundnu sniði. Þeir sem hafa notið góðs af kiwanisstarfinu eru t.d eldri
borgarar, fatlaðir, krabbameinssjúkir, barna og unglinga-geðdeild Landspítalans, einstaklingar og margir fleiri. Af þessu má sjá að starf Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi, er í stuttu máli sagt, ómissandi og er ekki hægt annað en að vera stoltur af því að vera þátttakandi.
Einnig vil ég nefna landssöfnun Krabbameinsfélagsins er fram fór 3. mars
síðastliðinn. Kiwanishreyfingin, Lionshreyfingin og fleiri aðstoðuðu við þessa söfnun og af frásögnum félaga var þetta eitthvað það skemmtilegasta sem þeir höfðu tekið þátt í. Færum við landsmönnum öllum þakkir fyrir frábærar móttökur því eins og fram hefur komið var árangurinn svo góður að tími kraftaverka virðist ekki enn liðinn. Að lokum vil ég færa kiwanisfélögum, svo og öllum sem hafa styrkt okkar starf bestu þakkir fyrir þeirra framlag með ósk um
velfarnað í framtíðinni.
Með Kiwaniskveðju,
Björn Ingi Rafnsson.
Svæðisstjóri Þórssvæði. |