Tryggingasjóður Kiwanisfélaga

Tryggingarsjóður Kiwanisfélaga var stofnaður 1984 á Umdæmisþinginu í Reykjavík með samþykkt fyrstu skipulagsskrár. Einungis tvisvar hefur stofnskrá verið breytt. þ.e.a.s. 1988 og 1991 að tillögu nefndar þriggja valinkunnra manna.

Á reikningum undanfarinna ára hefur komið fram að útistandandi innheimtur hafa verið stór hluti stofnsjóðs eða allt að 25%. Þetta er einkum vegna slælegra skila nokkurra aðila. Til að bæta innheimtuskil var kynnt á síðasta aðalfundi tillaga um breytingu á stofnskrá sem heimilar útstrikanir þátttakenda ef skuldir nema meir en innheimtum eins árs.

2. gr. Skipulagsskrár Tryggingarsjóðs Kiwanisfélaga hljóðar nú svo:

  • "2. gr. Öllum félögum í starfandi Kiwanisklúbbum á Íslandi er heimil þátttaka í sjóðnum með þeim takmörkunum sem ákveðnar eru á aðalfundi."

Á aðalfundi Tryggingarsjóðs 25. ágúst 2000 var kynnt eftirfarandi tillaga:

2. gr. breytist og verði þannig frá næsta aðalfundi.

  • "2. gr. Öllum félögum í starfandi Kiwanisklúbbum á Íslandi er heimil þátttaka í sjóðnum með þeim takmörkunum sem ákveðnar eru á aðalfundi. Þeir sem skulda meira en innheimtur eins starfsárs skulu strikaðir út af félagaskrá."

Þessi tillaga verður nú borin upp á næsta aðalfundi Tryggingarsjóðsins sem haldinn verður í tengslum við umdæmisþingið í Færeyjum 16.-20. ágúst 2001 og öðlast þá gildi ef samþykkt verður.

Að lokum viljum við benda á að eftirfarandi TILLAGA var samþykkt á aðalfundi í ágúst 1998.

  • Með vísan til 2. greinar Skipulagsskrár fyrir Tryggingarsjóð Kiwanisfélaga er áréttað að einungis skráðir kiwanisfélaga sem standa skil á áföllnum tryggingargjöldum geta verið þátttakendur í sjóðnum. Umsjónarmaður tilkynni sjóðstjórn og viðkomandi um útstrikun af félagaskrá.

Það er von sjóðstjórnar að ofangreind breyting á stofnskrá stuðli að skilvirkari innheimtum og styrki starf sjóðsins. Ef félagar hafa eitthvað við þessa tillögu að athuga eru þeir beðnir að koma athugasemdum til stjórnar sem fyrst.

Sjóðstjórn er alltaf reiðubúin að svara fyrirspurnum eða koma á framfæri upplýsingum ef óskað er.

Í sjóðstjórn eru:
Guðmundur Óli Ólafsson, Eldborg - Hafnarfirði.
Arnór L. Pálsson, Eldey - Kópavogi.
Ævar Breiðfjörð, Jörfa - Reykjavík.

[ Til baka - Back ]