Vegleg afmælisveisla í tilefni 15 ára afmælis

Kiwanisklúbburinn Hraunborg í Hafnarfirði varð 15 ára þann 27. nóv. síðastliðinn. Af því tilefni var haldin vegleg afmælisveisla í veitingahúsinu Gaflinn þann 25. nóv. síðastliðið haust. Mættir voru yfir 80 gestir. Klúbbfélagar ákváðu í tilefni af afmælinu að gefa sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli fíkniefnahund að verðmæti 1.500.000 kr.

Á meðfylgjandi mynd sést hvar forseti klúbbsins Konráð Jónsson afhendir fulltrúa sýslumanns umrædda gjöf. 

Í afmælinu var Hallbergi Guðmundssyni (Halla rakara) afhent ein mesta viðurkenning sem kiwanismanni getur hlotnast, gullstjarna Kiwanis, fyrir frábær störf fyrir klúbbinn okkar, að öflun málverka fyrir villibráðardaginn ár hvert. Á myndinni sést hvar Hallberg og kona hans Guðfinna Jónsdóttir taka á móti viðurkenningunni.

Starfsemi klúbbsins hefur verið öflug í vetur eins og undanfarin ár. 4. nóv. síðastliðinn var villibráðardagurinn haldinn í veitingahúsinu Hraunholti og voru 200 manns þar. Afrakstur dagsins voru rúmar 1.000.000 kr. sem runnu í styrktarsjóð klúbbsins.

 

Fjölgar í klúbbnum.  
Í vetur kom einn gamall félagi aftur í klúbbinn en hann var í klúbbnum fyrir nokkrum árum síðan. Tveir nýir félagar eru á leið inn í klúbbinn og er unnið markvisst að frekari fjölgun. Það er gaman að vera í kiwanisklúbbnum Hraunborgu, fullt af fjöri framundan og klúbbstarfi.

Bið að heilsa öllum Kiwanisfélögum.
Konráð Jónsson,
forseti Hraunborgar.

[ Til baka - Back ]