
Fyrirlestur hjá Helgafelli
| 4. febrúar 2012 |
Almennur fundur var haldinn hjá Helgafelli s.l fimmtudagskvöld 2 febrúar, en á almennum fundum er leyfilegt að hafa með sér gesti. Aðalgestur kvöldsinns og fyrirlesari var Jóhanna Eyjólfsdóttir framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International.
Lesa meira
Nýir félagar í Jörfa og styrkveitingar
| 2. febrúar 2012 |
673 fundur Jörfa var haldinn í Glersalnum við Salaveg í Kópavogi 30.jan. s.l. Jörfafélagar tóku inn tvo nýja félaga þá Svanberg Guðmundsson og Bernhard Jóhannesson. Fundurinn samþykkti þrjár styrkveitingar til einstaklinga samtals 320 þúsund krónur. Allir nefndarformenn skiluðu skýrslum sem sögðu okkur að mikið og gott starf er unnið í Jörfa. Næsta verkefni Jörfa er sala á konudagsblómum en konudagurinn í ár er 19.febrúar n.k
GHG
Lesa meira
Þorrablót Helgafells
| 23. janúar 2012 |
Þorrablót Helgafells var haldið s.l laugardagskvöld með pompi og prakt, margt var um manninn eða um 150 manns og á meðal gesta var Ragnar Örn Pétursson umdæmisstjóri og Sigríður eiginkona hanns. Húsið var opnað kl 19.30 og tóku gestir stax að streyma að . Þegar Ágúst formaður nefndarinnar var búinn að setja skemmtunina formlega var hafist handa við borðhaldið og að sjálfsögðu var dýrindis þorrahlaðborð á boðstólum sem nefndarmenn sáu um að sinni alkunnu snilld enda valinn maður í hverju rúmi.
Lesa meira
Frá félagsmálafundi og fleiru
| 22. janúar 2012 |
Eftir annasaman tíma hjá Skjálfanda félögum í kringum áramót og þrettán, færðist starfið í rólegri gír.
Lesa meira
Frá Ferðanefnd
| 21. janúar 2012 |
Góðir Kiwanisfélagar
Bréf þetta er skrifað til að minna ykkur á Evrópuþing Kiwanis 2012. Þingið í á verður haldið í Bergen í Noregi 8.- 10. júní í sumar.
Eins og undanfarin ár áður gengst umdæmið fyrir ferð á þingið. Í boði er 8 nátta ferð. Fyrst um nágrenni Bergen, en síðan verður dvalið í Bergen, þingið sótt og ýmislegt annað sér til gamans gert. Einnig er verið að vinna að styttri ferð sem miðast einungis við þingsókn.
Lesa meira
Andlát
| 21. janúar 2012 |
Félagi okkar Þorbjörn Karlsson fyrrverandi prófesson lést 15. janúar sl. 84 ára að aldri
Þorbjörn var Kiwanisfélagi í Heklu og umdæmisstjóri 1978-1979 og í stjórn KIE 1983-1990 og
Evrópuforseti 1988-1989
Eftirlifandi eiginkona Þorbjörns er Svala Sigurðardóttir og eignuðust þau þrjár dætur og færum við þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur
Við minnumst Þorbjörns með þökk og virðingu
Gylfi Ingvarsson Goði
Lesa meira
Heklufélagar veita styrk.
| 20. janúar 2012 |
Á almennum fundi 17. janúar veitti Kiwanisklúbburinn Hekla Guðmundi Felix Grétarssyni styrk vegna handaágræðslu. Guðmundur og faðir hans Grétar Felixson voru gestir fundarins. Guðmundur þakkaði fyrir sig og sagði frá stöðu sinni í dag og hann vonast til að fara til Lyon í Frakklandi jafnvel í sumar eða haust til að undirbúa handaágræðsluna. Þetta er ekki auðvelt og er í fyrsta skiptið sem hendur verða græddar á upp við öxl. Reikna má með því að það taki jafnvel nokkur ár þar til hann fái hreyfi getu í fingur en hann telur þetta allt þess virði.
Lesa meira
Heklufélagar með flugeldasýningu.
| 9. janúar 2012 |
Á þrettándanum þann 6. janúar voru Heklufélagar með flugeldasýningu fyrir íbúa Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta hefur verið árlegur viðburður þegar veður leyfir. Reynt er að skjóta flugeldunum upp þannig að sem flestir sjá bæði innandyra og utan. Björgunarsveitin Ársæll hefur séð um sýninguna undanfarin 20 ár, þar eru fagmenn á ferð og þökkum við þeim fyrir aðstoðina.
Lesa meira
Fréttir frá starfi Jörfa í vetur
| 7. janúar 2012 |
Það hefur verið góð mæting á fundi Jörfa það sem af er vetri.
Stjórnarskiptafundur Jörfa var haldinn laugardaginn 1.október í Ýmishúsinu við Skógarhlíð. Um 50 manns nutu góðra veitinga og áttu saman skemmtilega kvöldstund.
Á fyrsta fundi voru reikningar lagðir fram og samþykktir auk þess sem fjárhagsáætlun tímabilsins var samþykkt.
Hin árlega sviðaveisla Jörfa var haldin laugardaginn 22.okt. í Kiwanishúsinu Engjateigi 11 Þátttakan var mjög góð eða um 170 manns . Um 300 vinnustundir fóru í þetta verkefni hjá Jörfafélögum.
Fjölskyldufundur var haldinn í Kiwanishúsinu 31.október 2011 Mættu 22 félagar og 49 gestir. Fulltrúi frá Rauðakrossinum Þór Gíslason var með kynningu á starfsemi Rauðakrossins.
Mánudaginn 28.nóv. s.l. var félagsmálafundur með hefðbundinni dagskrá. Mættir voru 24 félagar og 2 gestir. Snjólfur Fanndal svæðisstjóri Freyjusvæðis og Sigurjón Pálsson svæðisstjóri Óðinssvæðis. Snjólfur sagði frá starfi klúbba í Freyjusvæði og frá síðustu svæðisráðstefnu. Sigurjón sagði frá starfinu í Óðinssvæði. Þess má geta að Sigurjón Pálsson er fyrrverandi félagi í Jörfa en þar hóf hann sinn feril í Kiwanis . Það var mjög ánægjulegt fyrir Jörfafélaga að fá Sigurjón og Snjólf í heimsókn.
Lesa meira
Jólin kvödd á þrettánda degi jóla
| 6. janúar 2012 |
Í dag er þrettándi dagur jóla og að venju kvöddu Húsvíkingar jólin með Þrettándagleði á uppfyllingunni í suðurfjörunni.
Lesa meira