Sæli ágætu Kiwanisfélagar, nú er farin af stað umræða um K-daginn á spjallsíðunni og vil ég endilega hvetja menn til kíkja á þetta og taka þátt í þessum umræðum
Svæðisráðsfundur Eddusvæðis verður haldinn þann 27 mars 2010 í safnahúsinu Görðum á Akranesi. Fundurinn hefst kl 10.00 dagskrá fundarinns má nálgast hér að neðan
Áætlað er að næsta blað af Kiwanisfréttum komi út með vorinu. Vinsamlega farið að huga að greinum og myndum og sendið mér á þetta netfang, greinar sér á Wordskjali og myndir sér jpg.
Hér að neðan má nálgast dagskrá K-dagsnefndar með fulltrúum Kiwanisklúbbanna í Reykjavík, en fundurinn verður í húsnæði Kiwanisklúbbsins Elliða laugardaginn 13 mars og hefst kl 10.00
Þorrablót Kiwanis var haldið í Tjarnarbæ 20. febrúar sl. Mjög góð þátttaka var, en rétt tæplega 60 manns mættu, bæði Kiwniasfélagar, makar þeirra og gestir.
31 sjávarréttadagur Kiwanisklúbbsins Eldborgar i Hafnarfirði verður haldinn í Hamarssal Flensborgarskóla laugardaginn 6 mars og verður húsið opnað kl 12.00. Dagskrá og aðrar upplýsingar má nálgast hér neðar á síðunni.
Kiwanisklúbburinn Skjöldur útnefndi íþróttamann ársins í Siglufirði á fimmtudagskvöldið 18.feb fyrir fullu húsi eða um 150 manns.Og var þetta hin glæsilegasta athöfn.
Góðir félagar Nú hafa 3 verkefni verið valin til að keppa um að verða nýtt heimsverkefni Kiwanishreyfingarinnar. Á meðfylgjandi slóð er að finna spjallrás og margvíslegar upplýsingar og fræðsluefni um þessi verkefni sem valin voru úr 200 tillögum sem báruust fár Kiwanisfélögum um allan heim.
Í tilefni Leikskóladagsins sem er haldið upp á um þessar mundir í vegna 60 ára afmælis hagsmunasamtaka leikslólakennara á Íslandi, komu félagar úr Helgafelli færandi hendi til athafnar í Safnahúsi Vestmannaeyja og afhentu styrk að upphæð 1.000.000 kr.
Umdæmisstjóri Óskar Guðjónsson heimsótti okkur Helgafellsfélaga á félagsmálafund í gærkvöldi ásamt
Atla Þórssyni umdæmisféhirði. Góð mæting var á fundinn eða um 60 félagar sem hlýddu á Óskar kynna það helsta sem er í gangi hjá umdæminu og gang mála t.d eins og með hjálmaverkefnið K-daginn o.fl.
Fimmtudaginn 4. febrúar kl. 19:30 verður gestafundur hjá Kiwanisklúbbnum Sólborg í Hafnarfirði, sem er kvennaklúbbur. Í klúbbnum eru 25 konur á öllum aldri úr Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og Reykjavík. Okkur vantar alltaf fleiri konur í hópinn okkar og þið sem hafið áhuga á að skoða Kiwanis betur endilega kíkið á okkur á fimmtudaginn. Við ætlum að hafa þetta léttann og skemmtilegan fund, kynna Kiwanis, vera með happadrætti og eitthvað skemmtilegt.
Á fimmtudagskvöldið var haldinn kynningarfundur í Hyrnunni í Borgarnesi og á hann mættu bæði konur og menn. Óskar Guðjónsson umdæmisstjóri sá um að kynna hreyfinguna, markmið hennar og helstu verkefni. Hjördís Harðardóttir í Kvennanefndinni sagði gestum frá hvernig er að vera í kvennaklúbb eins og Sólborgu í Hafnarfirði. Matthías G. Pétusson fráfarandi umdæmisstjóri sagði síðan frá því hvað það væri gefandi að vera í Kiwanisklúbb og hvað það væri mikil samheldni á milli félaga í hans klúbb.
Það er mikil gróska í tómstundastarfi hjá Kiwanisklúbbnum Helgafelli og ber það hæst klúbbakeppni í snóker sem leikin er á milli Kiwanis, Akóges og Oddfellow. Kiwanisklúbburinn Helgafell sigraði í ár og því bikarinn kominn í hús aftur eftir eins árs dvöl hjá Akógesmönnum.