Gagnagrunnur og skýrsluskil !

Gagnagrunnur og skýrsluskil !


Unnið er að því á vegum umdæmisstjórnar að taka nýjan gagnagrunn í notkun.   Þessi gagnagrunnur býður upp á marga  möguleika sem við  ætlum við að nýta okkur.  Mánaðarskýrslur sem ritarar hafa skilað til svæðisstjóra og umdæmisritara fyrir 10. hvers mánaðar verða aflagðar en þess í stað verða mánaðarskýrslur unnar í þessum nýja gagnagrunni.  Verið er að vinna að þessari mánaðarskýrslu í samstarfi við Kiwanis International og vonumst við til að endanlegt íslenskt útlit liggi fyrir í sumar.  Í fræðslu á komandi vikum munum við kynna þessa nýju  skýrslu en vekjum

athygli ykkar á því að fræðsla verður fyrir kjörforseta og ritara á umdæmisþinginu í Vestmannaeyjum vegna þessara breytinga sem við erum að taka upp á næsta starfsári.
 
Með Kiwaniskveðju
 
 
Jóhanna M Einarsdóttir
verðandi umdæmisritari