Fréttir að Norðan !

Fréttir að Norðan !


Við Skjálfandafélagar ásamt félögum okkar í Herðurbreið og Öskju höldum sameiginlegan Aðalfund í Möðrudal, laugardaginn 7. maí þar sem mökum er boðið með. Við höfum gert þetta um nokkra ára skeið en þetta er að mínum dómi hápunktur starfsársins þar sem vinnáttan ræður ríkjum á meðan meðan snæddur er góður matur og drykkir. Í ár er útlit fyrir mjög góða mætingu og heyrst hefur að svæðisstjóri að minnsta kosti ætli sér að mæta, það þýðir bara

eitt, að öllum líkindum verður leiðinda veður og því verður að ferðast á snjóbíl á fjöllunum en hvað geri maður ekki fyrir yfir mann sinn.

Góðar stundir.