Þann 11.mars sl. afhenti Kiwanisklúbburinn Jörfi Kvennaathvarfinu peningagjöf að upphæð 300.000 krónur. Um afhendinguna sáu þeir Guðm.Helgi Guðjónsson forseti Jörfa og Guðmundur K. Guðfinnsson ritari Jörfa . Styrkur þessi mun fara í að styrkja aðstöðu fyrir börn er
dvelja í athvarfinu í lengri eða skemmri tíma.
Sigþrúður Guðmundsdóttir tók við styrknum fyrir hönd Kvennaathvarfsins .