
Boðorðin 10
K-dagur 2007
K-dagsnefndin, formaður Bernhard Jóhannesson hefur sett upp verkefnalista og sent út til svæðisstjóra og forseta klúbba sem hafa skipað K-dagstengiliði, sendir hafa verið út listar yfir fyrirtæki á hverju svæði, leggja á áherslu á tvennt;- Söfnun hjá fyrirtækjum
- Söfnun með sölu K-lykilsins á K-dag sem er 7. október.
Leggjum allt undir til þess að gera K-daginn sem stærstan.
Hjálmaverkefni.
Árlegt samstarfverkefni með Eimskip tryggður er stuðningur við verkefnið næstu 2-3 ár. Skipulagið er orðið þróað við dreifingu og afhendingu, hér er eitt stærsta verkefni okkar sem heldur Kiwanismerkinu hátt á lofti.Fræðsla.
Fræðslunefnd, formaður Guðmundur Oddgeir Indriðason. Aukin áhersla er lögð á fræðslu embættismanna og boðið upp á fræðslurástefnu að vori. Meira af fræðslu verður komið á netið og áhersla á að nýta svæðisráðstefnur til fræðslu um einstök mál- Kynning, almannatengsl og heimasíða.
Látum ekkert tækifæri ónotað til þess að koma okkur á framfæri. Heimasíður þarf að uppfæra og er heimasíða umdæmisins í endurskoðun og ný uppfærsla í vinnslu með auknum möguleikum. Internetsnefndarformaður er Tómas Sveinsson og fjölmiðla og upplýsingarnefndar-formaður er Gunnar Kr. Sigurjónsson. - Útgáfa Kiwanisfrétta og fréttabréfs.
Stefn er að útkomu Kiwanisfrétta 3x á árinu Fréttabréf Umdæmisstjórnar verður gefið út 1-2 sinnum, en efni frá henni verður einnig finna í Kiwanisfréttum, ritstjóri Hildisif Björgvinsdóttir. - Félagatal.
Mikil vinna hefur verið lögð í að leiðrétta félagatalið og eiga allir klúbbar að hafa sérstakan tengilið við umdæmisritara til þess að sjá um félagatalið svo það sé uppfært strax við hverja breytingu. - Fjármál
Fjármál hreyfingarinnar er í stöðugri endurskoðun og áhersla lögð á að skil á gjöldum til umdæmis og KI þurfa að greiðast á greiðsludögum og með klúbbanúmeri, svo ekki komi til að fulltrúar klúbba missi atkvæði og kjörgengi á þingum hreyfingarinnar heima og erlendis - Fyrirmyndarklúbbur.
Haldið verður áfram með punktakerfið. Kerfið er ekki fullkomið og er í stöðugri endurskoðun - Útbreiðsla og nýir klúbbar.
Útbreiðsla og fjölgun er enn forgangsverkefni eins og alltaf. Áfram verður stefnt að því að Færeyjar verði sérstakt svæði. Nýr kvennaklúbbur tekinn til starfa og árar komnar útbyrðis annars víða staðar - Stefnumótun Umdæmisins.
Unnið verður eftir samþykktri stefnumörkun sem er jafnframt í stöðugri endurskoðun.


