Hjálpum börnum heimsins

Lög Kiwanisklúbba

 

UMDÆMIÐ ÍSLAND-FÆREYJAR
Engjateigi 11, 105 Reykjavík, Ísland

Lög Kiwanisklúbba

I. kafli.
Heiti og starfssvæði.

1. gr.
Samtökin heita Kiwanisklúbburinn______________________________

2. gr.
Starfssvæði klúbbsins er
(Athugið: Alþjóðalögin krefjast þess að Kiwanisklúbbur sé kenndur við starfssvæði eða byggðarlag á eftir nafni klúbbsins. Þessu nafni má ekki breyta án þess að fyrir liggi leyfi frá stjórn Alþjóðasambands Kiwanis.)

II. kafli.
Markmið.

1. gr.
Markmið klúbbsins eru:
1. Að láta andleg og mannleg verðmæti skipa æðri sess en verðmæti af veraldlegum toga spunnin.
2. Að hvetja til þess að dagleg breytni manna á meðal byggist á hinni gullnu reglu: Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra".
3. Að beita sér fyrir bættum viðskiptaháttum, starfsháttum og félagslegri hegðan.
4. Að efla borgaralegar dyggðir með góðu fordæmi.
5. Að skapa með stofnun Kiwanisklúbba leiðir til þess að binda varanleg vináttubönd, veita ósérplægna þjónustu og stuðla að betra samfélagi.
6. Að vinna saman að mótun og eflingu heilbrigðs almenningsálits og göfugrar hugsjónarstefnu, sem er undirstaða aukinnar ráðvendni, bættrar réttvísi, vaxandi þjóðrækni og bræðralags.
 

III. kafli.
Félagar og starfsheiti.

1. gr.
Félagar klúbbsins skulu vera virkir, eins og það hugtak er skilgreint hér á eftir. Tveir flokkar eru að auki, en það eru aldursaðildarfélagar og heiðursfélagar.

2. gr.
Aðild að Þessum klúbbi skal ekki veitt neinum sem er félagi (annað en heiðursfélagi) í nokkrum öðrum fullgiltum Kiwanisklúbbi.

3.gr.
Virkir félagar þessa klúbbs skulu vera fulltrúar af þverskurði starfsgreina innan byggðarlagsins þar sem klúbburinn starfar.


4. gr.
Aðild að þessum klúbbi skal takmörkuð við einstaklinga yfir átján ára aldri sem uppfylla skilyrði fyrir virka, aldurs- eða heiðursaðild.

5. gr.
Skilyrði fyrir virkri aðild:
(a) Virkur félagi verður að vera heiðvirður og virtur í byggðarlaginu, sem býr á félagssvæði klúbbsins eða er félagslega tengdur því á einhvern hátt.
(b) Virkur félagi verður að gegna störfum í viðurkenndri starfsgrein á sviði viðskipta, iðngreina, landbúnaðar, á opinberri stofnun eða í sjálfstæðu starfi, eða kominn á eftirlaun eftir slík störf.
(c) Virkur félagi verður að greiða inntökugjald og árleg félagsgjöld og skal njóta allra réttinda þessa klúbbs.
(d) Heiðvirður er sá/sú sem fer eftir viðurkenndum gildum góðrar hegðunar í sínu byggðarlagi og trúir á og samþykk markmið Alþjóðasambands Kiwanis eins og þau eru birt í II. kafla þessara laga.
6. gr.
Skilyrði fyrir aldursaðild:
(a) Sérhvern virkan félaga þessa klúbbs sem verið hefur virkur félagi í góðu áliti í einum eða fleiri Kiwanisklúbbum í minnst tíu (10) ár og sem ekki getur uppfyllt mætingaskyldu vegna heilsubrests, starfa eða annarra gildra ástæðna og sem hefur uppfyllt önnur skilyrði sem fram eru sett af þessum klúbbi í lögum hans má kjósa sem aldursaðildarfélaga eftir skriflega umsókn þar um.
(b) Stjórn klúbbsins skal endurskoða lista yfir aldursaðildarfélaga ekki sjaldnar en einu sinni á ári og skal hafa vald til af ástæðum sem hún metur gildar, að fella niður stöðu félaga sem aldursaðildarfélaga og gera slíkan félaga að virkum félaga að nýju.
(c) Aldursaðildarfélagi verður að greiða félagsgjöld og skal njóta allra réttinda klúbbsins.
(d) Aldursaðildarfélagi skal uppfylla þau skilyrði um fundarsókn og þátttöku í störfum sem stjórn klúbbsins ákveður.

7. gr.
Skilyrði fyrir heiðursaðild:
(a) Sérhvern einstakling sem innt hefur af hendi frábær störf til almenningsheilla má kjósa sem heiðursfélaga þessa klúbbs (sé sá einstaklingur sem í hlut á ekki virkur félagi né aldursaðildarfélagi sama klúbbs) um eins (1) árs skeið í senn og þar eftir má endurkjósa einstaklinginn sem heiðursfélaga árlega.
(b) Heiðursfélagi skal hvorki greiða árgjald til klúbbsins né önnur gjöld og skal eiga rétt á öllum sérréttindum sem klúbburinn veitir öðrum en kosningarétti og kjörgengi til embætta innan klúbbsins.
(c) Heiðursfélagar eru undanþegnir mætingarskyldu.

IV. kafli.
Inntaka og úrsögn.

1. gr.
Væntanlegir félagar skulu teknir til álita og kosningar, að boði eingöngu, eða með flutningi úr öðrum virkum Kiwanisklúbbi samkvæmt eftirfarandi reglum:

a.  Tillaga um aðild skal lögð fram af félaga í klúbbi þessum fyrir ritara eða Félagsmálanefnd. Tillagan skal undirrituð af tillöguflytjanda og studd með undirritun minnst eins annars félaga og skulu báðir vera með full réttindi. Tillagan skal síðan lögð fyrir stjórn klúbbsins til umfjöllunar, sem skal gefa félögum klúbbsins upplýsingar um nöfn þeirra sem lagt er til að verði félagar og taka ákvörðun um aðild innan tveggja (2) vikna.
b.  Félagi í virkum Kiwanisklúbbi getur borið tillögu um flutning beint upp við stjórn annars klúbbs í þeim tilgangi að flytjast milli klúbba. Flutningurinn verður að eiga sér stað innan sex (6) mánaða frá því að hætt er virkri þátttöku í upphaflega klúbbnum.
c.  Á fundi stjórnar klúbbsins þar sem ákvörðunarbær meirihluti er mættur, skulu nýir félagar kosnir og flutningur samþykktur með tveim þriðju (2/3) atkvæða þeirra sem mættir eru á fundinum.
d.  Að fenginni samþykkt stjórnarinnar skal tilkynna nýjum og fluttum félögum persónulega um ákvörðun hennar og skulu þeir þá greiða inntökugjald og félagsgjald. Opinber inntaka klúbbfélaga fer fram þegar öllum skilyrðum um aðild er fullnægt og sú dagsetning skal tilkynnt til Alþjóðasambands Kiwanis.

2. gr.
Stjórnin kýs heiðursfélaga og aldursaðildarfélaga að fengnum tillögum félagsmálanefndar. Til að ná kosningu þarf tvo þriðju (2/3) atkvæða allra stjórnarmeðlima.

3. gr.
Hverjum félaga er frjálst að segja sig úr klúbbnum, svo framarlega sem hann er skuldlaus við klúbbinn. Senda skal stjórninni skriflega úrsögn, sem öðlast gildi þegar stjórnin hefur samþykkt hana.

V. kafli.
Viðurlög (agi).

1. gr.
Sérhverjum virkum félaga eða aldursaðildarfélaga, sem skuldar meira en tveggja (2) mánaða gjöld skal vikið úr klúbbnum, eftir að samþykkt þar að lútandi hefur hlotið tvo þriðju atkvæða allra stjórnarmeðlima.

2. gr.
Virkir félagar skulu mæta reglulega á klúbbfundum og taka virkan þátt í klúbbstarfinu. Stjórn klúbbsins skal endurskoða skráðar mætingar og starfsþátttöku félaga á hálfs árs fresti.

3. gr.
Hver sá, sem ekki er lengur félagi þessa klúbbs glatar öllum rétti til sjóða og annarra eigna klúbbsins og um leið rétti til að nota Kiwanisnafnið, Kiwanismerkið eða önnur tákn klúbbsins.

4. gr.
Til að samþykkja brottrekstur virks félaga, aldursaðildarfélaga, eða heiðursfélaga úr klúbbnum þarf tvo þriðju (2/3) atkvæða allra stjórnarmanna klúbbsins.

VI. kafli.
Embættismenn.

1. gr.
Embættismenn klúbbsins skulu vera sem hér segir: Forseti, fráfarandi forseti, varaforseti (einn eða fleiri), og/eða kjörforseti , ritari, féhirðir, og gjaldkeri. (Ath. Forseti getur skipað sérstakan erlendan ritara stjórnar. Erlendur ritari annast erlendar bréfaskriftir stjórnarinnar samkvæmt nánari fyrirmælum forsetans. Hann skal gegna störfum klúbbritara í forföllum hans.)

2. gr.
Embættismennirnir skulu vera virkir félagar, skuldlausir og með góða fundarsókn.
3. gr.
Embættismennirnir taka við störfum sínum 1. október ár hvert og gegna þeim í eitt (1) ár, eða þar til réttkjörnir eftirmenn þeirra hafa verið settir inn í embætti.

4. gr.
Skyldur embættismanna eru sem hér segir:
a. Forseti er framkvæmdastjóri þessa klúbbs og stjórnar öllum klúbbfundum, sem og fundum stjórnar. Verðandi forseti skal sækja fræðsluráðstefnu fyrir verðandi forseta. Forseti situr í krafti embættis síns í öllum reglulegum og sérstökum nefndum klúbbsins. Forsetinn skal vinna að vexti Kiwanishreyfingarinnar í nærliggjandi byggðarlögum eða svæðum og vinna með útbreiðslunefnd (nýklúbbanefnd) klúbbsins. Forseti skal vera einn af fulltrúum klúbbsins á umdæmisþingi.
b. Varaforseti stýrir klúbbfundum og stjórnarfundum í fjarveru forseta.
c. Ritari heldur skrá yfir alla virka félaga klúbbsins. Hann ritar fundargerðir klúbbfunda og stjórnarfunda. Hann annast allar skýrslugerðir til svæðisins, umdæmisins, og Alþjóðasambands Kiwanis. Hann skal afhenda hlutaðeigandi stjórnarmönnum og/eða nefndarformönnum þær upplýsingar er honum berast frá svæðinu, umdæminu, Evrópusambandinu og Alþjóðasambandi Kiwanis.
d. Féhirðir annast allar fjárreiður klúbbsins, heldur bókhald og ávísar greiðslum úr sjóðum klúbbsins í samræmi við fjárhagsáætlun hvers árs, eða eftir nánari fyrirmælum stjórnar. Hann lýsir fjárhag klúbbsins þegar þess kann að vera óskað og flytur skýrslur þar um á aðalfundi.
e. Erlendur ritari annast allar erlendar bréfaskriftir fyrir klúbbinn. Hann skal einnig gegna störfum ritara í fjarveru hans.
f. Gjaldkeri innheimtir inntökugjald nýrra félaga og árgjöld virkra félaga og aldursaðildarfélaga og afhendir þau féhirði. Hann skal og halda nákvæma skrá yfir árgjöld virkra félaga og aldursaðildarfélaga og tilkynna stjórninni ef um vanefndir á greiðslum er að ræða.
g. Fráfarandi forseti skal vera forseta og öðrum embættismönnum til aðstoðar við embættisstörf þeirra eftir því sem þurfa þykir.
h. Kjörforseti undirbýr starf stjórnar sinnar fyrir næsta starfsár og gegnir þeim störfum er stjórnin felur honum hverju sinni.

VII. kafli.
Stjórn klúbbsins.

1. gr.
Stjórn klúbbsins skipa kjörnir embættismenn og minnst fimm (5) meðstjórnendur.

2. gr.
Stjórnarmeðlimir skulu allir vera virkir félagar eða aldursaðildarfélagar, skuldlausir og með góða fundarsókn.

3. gr.
Stjórnarmenn taka við störfum 1. okóber ár hvert og gegna þeim í eitt (1) ár, eða þar til réttkjörnir eftirmenn þeirra hafa verið settir inn í embætti.
4. gr.
Stjórnin tekur ákvarðanir um stefnumál og verkefni klúbbsins, samþykkir félaga eða víkur þeim burt, samþykkir fjárhagsáætlun og alla reikninga, ráðgast við nefndir og hefur á hendi almenna stjórn klúbbsins.

5. gr.
Stjórnin skal halda fundi reglulega og eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði og þá er forseti boðar til fundar. Nefndaformenn skulu mæta á fundum stjórnarinnar, ef hún óskar þess.
VIII. kafli.
Nefndir.

1. gr.
Undirstöðunefndir klúbbsins skulu vera eins og Alþjóðasamband Kiwanis mælir fyrir um. (ATH: Heimilt er að sameina nefndir eftir ákvörðun forseta.)

2. gr.
Þegar þörf er skal heimilt að stofna fleiri fastanefndir til þess að auðvelda klúbbnum starfið og eftir þörfum klúbbsins og áhuga félaganna. Skyldur slíkra nefnda skal ákveða þegar þær eru stofnaðar. (Athugið. Slíkum viðbótarfastanefndum má gefa nafn og þeim má setja starfsreglur með viðbót við kafla VIII. og IX. í þessum klúbblögum.)

3. gr.
Sérhver starfsnefnd skal skipuð þremur (3) eða fleiri félögum og er starfstími hennar eitt (1) ár og hefst fyrsta dag októbermánaðar. Allir nefndarmenn skulu skipaðir af forseta sem einnig getur leyst þá frá störfum. Sérhver nefnd er ábyrg gagnvart forseta og skal gera skýrslur um störf sín að kröfu forseta.

4. gr.
Forseti getur skipað sérstakar nefndir og skulu starfsskyldur þeirra ákveðnar við stofnun þeirra.

IX. kafli.
Skyldur fastanefnda.

1. gr.
Klúbbfundanefnd (Móttökunefnd/Dagskrárnefnd) skal tryggja bestu aðstöðu sem möguleg er fyrir fundi í klúbbnum viku- eða hálfsmánaðarlega yfir starfsárið. Starf nefndarinnar er í því fólgið að annast dagskrá fyrir hvern fund, tónlist, húsnæði, móttöku, félagsskap og samskipti innan klúbbsins og önnur þau verkefni sem við eiga.

2. gr.
Félagsmálanefnd skal finna leiðir til þess að halda hæfilegri félagatölu miðað við þau mörk sem sett eru fyrir Kiwanisklúbba. Nefndin skal skoða allar tillögur um nýja félaga og leggja tillögur sínar fyrir stjórn klúbbsins. Nefndin skal einnig sjá um fræðslu og inntöku nýrra félaga og nýtingu allra félaga til starfa. Nefndin skal einnig brýna fyrir félögunum nauðsyn þess að sækja vel fundi klúbbsins.

3. gr.
Æskulýðsnefnd skal kanna, undirbúa og gera tillögur um aðferðir til aðstoðar drengjum og stúlkum til að aðlagast umhverfi sínu og til að samlagast þeim félagslegu, efnahagslegu- legu og siðferðilegu kröfum sem þau kunna að standa frammi fyrir og einnig finna leiðir til að aðstoða og leiðbeina æskufólki í vali á réttum og hæfilegum starfsgreinum jafnt og á öðrum sviðum sem nefndin telur viðeigandi og nauðsynleg. Nefndin skal einnig hvetja til og halda fram starfsemi Byggjendaklúbba og annarra æskulýðssamtaka tengdra Kiwanishreyfingunni.


4. gr.
Styrktarnefnd skal kanna, undirbúa og gera tillögur um aðferðir sem gera klúbbnum mögulegt að veita byggðarlaginu þjónustu á árangursríkan þátt. Til álita koma málefni landbúnaðar, umhverfisverndar, gróðurverndar, barátta gegn mengun, almenn málefni, viðskiptamál, alþjóðatengsl, slysavarnir, svo og önnur málefni sem nefndin telur viðeigandi og nauðsynleg.


5. gr.
Börnin fyrst og fremst.  Nefndin skal kanna, undirbúa og gera tillögur um aðferðir til framkvæmda á aðalverkefni Alþjóðasambands Kiwanis á hverjum tíma.

X. kafli.
Sáttadómur.

1. gr.
Deilur sem ekki er hægt að leysa á annan hátt, skal setja í sáttadóm þar sem hvor deiluaðili tilnefnir tvo fulltrúa sem kjósa hinn fimmta, og er hann formaður dómsins.

2. gr.
Hér má hver klúbbur telja upp þau skilyrði sem sett kunna að vera af opinberri hálfu svo hann megi starfa á lögmætum grundvelli.

XI. kafli.
Fundir.

1. gr.
Reglulegir fundir klúbbsins skulu haldnir minnst hálfsmánaðarlega og ekki oftar en einu sinni í viku. Stjórnin ákveður fundarstað, fundardag og fundartíma. Ef reglulegur fundardagur fullgilts klúbbs fellur á hátíðisdag skal stjórnin efna til fundar á öðrum degi í sömu viku eða fella niður fundinn, að því tilskyldu að ekki séu fleiri en tveir (2) reglulegir fundir felldir niður á sama starfsárinu. Reglulegur fundur viku- eða hálfsmánaðarlega skal ekki standa lengur en eina (1) klukkustund og þrjátíu (30) mínútur, nema þegar sérstakt tilefni er og samþykkt af stjórn klúbbsins.

2. gr.
Aðalfundur klúbbsins skal haldinn á reglulegum fundardegi klúbbsins ekki fyrr en fyrsta fundardag í aprílmánuði og ekki síðar en í annarri viku maímánaðar. Klúbbfélögum skal tilkynnt um stað og stund aðalfundar minnst tveimur (2) vikum fyrir fundinn. Til þess að aðalfundur teljist löglegur þarf einn þriðji (1/3) virkra félaga og aldursaðildarfélaga klúbbsins að vera viðstaddir.

XII. kafli.
Tillögur um embættismenn og kjör þeirra.

1. gr.
Kjör stjórnar og embættismanna fer fram á aðalfundi.

2. gr.
Atkvæðagreiðsla skal vera skrifleg. Aðeins viðstaddir, virkir félagar og aldursaðildarfélagar, sem eru skuldlausir og með góða fundarsókn, hafa atkvæðisrétt.

3. gr.
Minnst fimm (5) vikum fyrir aðalfund skipar forseti fimm menn í uppstillingarnefnd og skipar hann formann hennar. Meirihluti uppstillingarnefndar skal, ef mögulegt er, skipaður fyrrverandi forsetum klúbbsins. Uppstillingarnefnd stillir upp til embætta og stjórnar, að fengnu samþykki viðkomandi og undirbýr á annan hátt kosningar. Fjórum (4) vikum fyrir aðalfund skilar hún tillögum sínum, og er þá félögum heimilt að koma fram með tillögur um aðra, en þær verða að berast í síðasta lagi tveim (2) vikum fyrir aðalfund.


4. gr.
Þann dag, sem aðalfundur er haldinn skal forseti skipa kjörnefnd sem í skulu sitja allt að sjö (7) félagar. Starf nefndarinnar er að dreifa og safna saman atkvæðaseðlum, telja seðlana og tilkynna úrslit.

5. gr.
Ef tillögur koma fram um fleiri meðstjórnendur en kjósa skal ná þeir kosningu sem flest atkvæði hljóta uns þeirri tölu er náð sem fylla skal.

6. gr.
Ef embætti forseta losnar á kjörtímabilinu skal varaforseti, eða kjörforseti ef embætti varaforseta er ekki til í klúbbnum, taka við embættinu. Ef embætti kjörforseta, varaforseta, ritara, féhirðis, gjaldkera eða meðstjórnenda losnar á kjörtímabilinu, skal embættið fyllt að ákvörðun félaga klúbbsins á reglulegum fundi, að undangengnum tveggja (2) vikna fresti til tilnefningar eða tilnefninga af hálfu stjórnar.

7. gr.
Ef ljóst verður eftir kosningu en fyrir 1. október að kjörinn embættismaður eða stjórnarmaður muni reynast ófær um að gegna skyldum sínum á kjörtímabilinu, skal embættið fyllt af klúbbnum á reglulegum fundi, að undangengnum tveggja (2) vikna fresti til tilnefningar eða tilnefninga að hálfu verðandi stjórnar.

8. gr.
Ekkert sem í þessum kafla stendur skal takmarka rétt klúbbfélaga til að koma með frekari tilnefningar á þeim fundi þar sem kosning fer fram.

9. gr.
Forseti og ritari klúbbsins skulu senda Svæðisskrifstofu Alþjóðasambands Kiwanis í Evrópu (KIRO-E) staðfesta skrá með nöfnum þeirra embættismanna, sem kosnir hafa verið til starfa á komandi starfsári eigi síðar en 60 dögum fyrir byrjun næsta starfsárs.

XIII. kafli.
Gjöld.

1. gr.
Inntökugjald skal ekki vera lægra en jafngildi CHF 22 og greiðist við inntöku.

2. gr.
Árgjald skal ákveðið af stjórn klúbbsins fyrir hvert ár um sig og greiðast tveir þriðju (2/3) hlutar fyrir 15.11 og einn þriðji (1/3) hluti fyrir 31.3.

3. gr.
Stjórnin má velja aðrar fjáröflunarleiðir en hér eru nefndar, en þær eru háðar samþykki tveggja þriðju viðstaddra virkra félaga og aldursaðildarfélaga á almennum klúbbfundi. Tilkynna skal með minnst tveggja (2) vikna fyrirvara, ef greiða skal atkvæði um nýjar fjáröflunarleiðir.

4. gr.
Fé sem safnað er með þeim hætti að leita til almennings, eða sem fengið er frá klúbbfélögum eða öðrum og nota skal við verkefni sem klúbburinn hefur tekið að sér skal haldið aðskildu frá fjárreiðum klúbbsins og má aðeins nota til góðgerðar- eða menningarstarfsemi á vegum klúbbsins.
5. gr.
Ef svo vill til að stofnskrá klúbbsins verður afturkölluð, klúbburinn er leystur upp eða hann hættir störfum með öðrum hætti og á sjóði eða aðrar eignir eftir að skuldbindingum klúbbsins hefur verið fullnægt án þess að síðasta stjórn klúbbsins hafi ráðstafað þessu fé eða öðrum eignum klúbbsins, þá skal féhirðir klúbbsins greiða slíka sjóði til Tengiliðs umdæmisins við Hjálparstofnun Kiwanis, sem skal afhenda þá stofnuninni til ráðstöfunar. * (Athugið. Verði stofnaður hjálparsjóður umdæmisins Ísland-Færeyjar skal afhenda slíkum sjóði þessa fjármuni til ráðstöfunar.)

XIV. kafli.
Fjármál.

1. gr.
Eigi síðar en 15. október ár hvert, skal stjórnin samþykkja fjárhagsáætlun um tekjur og gjöld starfsársins.* (Athugið: Heimilt er að gera fjárhagsáætlun fyrir hálft ár í senn.)

2. gr.
Reikninga klúbbsins skal endurskoða einu sinni á ári hið minnsta. Endurskoðendur skulu tilnefndir af stjórn klúbbsins.

3. gr.
Stjórnin ákveður með hverjum hætti fé klúbbsins skal ávaxtað og geymt.

4. gr.
Ef réttir embættismenn eru ófærir um að árita ávísanir skal stjórnin tilnefna aðra menn til þess.

XV. kafli.
Lagabreytingar.

1. gr.
Breyta má lögum þessum með tveimur þriðju (2/3) hlutum atkvæða viðstaddra virkra félaga og aldursaðildarfélaga á almennum klúbbfundi, að því tilskildu, að breytingin brjóti ekki í bága við stofnskrá og lög Alþjóðasambands Kiwanis. Tilkynna skal tillögur um lagabreytingar tveimur (2) vikum fyrir fund. Kosning með umboði er ekki leyfileg.


XVI. kafli.
Samþykki Alþjóðasambands Kiwanis.

1. gr.
Þessi lög, breytingar á þeim, eða viðbætur við þau, öðlast ekki gildi fyrr en að fengnu samþykki Alþjóðasambands Kiwanis.

 

PRENTVÆN ÚTGÁFA