Hjálpum börnum heimsins

Umdæmislögin

 

Umdæmislögin 

UMDÆMIÐ ÍSLAND-FÆREYJAR
Engjateigi 11, 105 Reykjavík, Ísland


Umdæmislög

I. kafli.
Heiti og starfssvæði.

1. gr.
Samtökin heita: Umdæmið Ísland-Færeyjar í Evrópusambandi Kiwanis (KI-EF).

2. gr.
Starfssvæði umdæmisins er bundið við Ísland og Færeyjar. Hvorki má breyta heiti né mörkum starfssvæðis nema með leyfi stjórnar KI-EF og stjórnar Alþjóðasambands Kiwanis (KI).

II. kafli.
Markmið.

1. gr.
Að leitast við með starfsemi klúbba umdæmisins, að ná þeim markmiðum sem sett eru fram í stofnskrá Kiwanishreyfingarinnar. Að efla félagslyndi og samvinnu meðal klúbba umdæmisins. Að vinna með KI að stofnun nýrra klúbba og að fræðslu og eflingu klúbba innan umdæmisins. Að hvetja til þátttöku klúbba umdæmisins til að vinna að almennum markmiðum, verkefnum og stefnu sem ákveðin er af umdæminu og. KI.

III. kafli.
Skipulag.

1. gr.
Umdæminu skal skipt í svæði.

2. gr.
Umdæmisstjórnin ákveður svæðaskiptingu og fjölda klúbba í svæðum. (ATH: Innan hvers lands má stofna svæði, séu ekki færri en tveir (2) klúbbar í hverju svæði.) Starfssvæði skulu vera svo sem ákveðið er af umdæmisstjórn. Umdæmisstjórn skal taka tillit til íbúafjölda og landfræðilegrar staðsetningar við ákvörðun svæðaskiptingar.

IV. kafli.
Aðild.

1. gr.
Allir Kiwanisklúbbar innan starfssvæðis skulu vera aðilar að umdæminu.

2. gr.
Ef einhver klúbbur hefur látið greiðslur til KI, KI-EF og/eða umdæmisins, dragast í meira en sextíu (60) daga frá gjalddaga og gefur ekki fullnægjandi skýringar á slíku til umdæmisstjórnar innan þrjátíu (30) daga eftir að opinber ósk um skýringar hefur borist, missir hann réttindi sín.
 
V. kafli.
Embættismenn.

1. gr.
Embættismenn umdæmisstjórnar skulu vera: Umdæmisstjóri, fráfarandi umdæmisstjóri, kjörumdæmisstjóri, svæðisstjórar, ritari, erlendur ritari og féhirðir. Ef fráfarandi umdæmisstjóri hættir sem virkur félagi eða aldursaðildarfélagi í klúbbi innan umdæmisins, skal sá virkur eða aldursaðildarfélagi sem gegndi næst á undan starfi umdæmisstjóra, skipaður í hans stað. Enginn má hafa tvö embætti samtímis að undanskildum embættum ritara og féhirðis.

2. gr.
Til embætta skulu valdir virkir félagar eða aldursaðildarfélagar í klúbbum í umdæminu, sem sækja vel fundi og eru skuldlausir. Svæðisstjórar skulu vera félagar klúbbs í því svæði, sem þeir eru kjörnir til að veita forystu.

3. gr.
Embættismenn skulu taka við störfum sínum 1. október og gegna þeim í eitt (1) ár, eða þar til réttkjörnir eftirmenn þeirra hafa verið settir inn í embætti.

4. gr.
Skyldur embættismanna eru sem hér segir:
a. Umdæmisstjóri er framkvæmdastjóri umdæmisins og stjórnar öllum þingum og fundum umdæmisstjórnar og framkvæmdaráðs. Hann skipar nefndir og setur þeim starfsreglur í samræmi við lög KI. Hann á í krafti embættis síns sæti í öllum nefndum sem starfandi eru innan umdæmisins. Undir stjórn og leiðsögn KI skal umdæmisstjóri vinna að framgangi markmiða KI og hagsmunamálum klúbba umdæmisins.

b. Störf fráfarandi umdæmisstjóra ákveður stjórnin hverju sinni.

c. Kjörumdæmisstjóri undirbýr starf sitt sem verðandi umdæmisstjóri fyrir næsta kjörtímabil.í samræmi við kröfur KI. Hann tekur einnig að sér þau verkefni sem stjórnin felur honum hverju sinni. Hann ber ábyrgð á fræðslu verðandi embættismanna klúbba og umdæmis.

d. Svæðisstjórar aðstoða umdæmisstjóra við stjórn umdæmisins. Þeir eru staðgenglar umdæmisstjóra varðandi starf innan svæðanna sem þeir starfa í. Svæðisstjórar skulu einnig inna af hendi önnur störf sem þeim kunna að vera falin af umdæmisstjóra eða umdæmisstjórn.

e. Féhirðir tekur við öllu fé sem umdæminu hlotnast og geymir það og ávaxtar í viðurkenndri peningastofnun. Sjóðir og bankareikningar féhirðis skulu ávallt vera opnir umdæmisstjóra, stjórn umdæmisins og löglega kjörnum skoðunarmönnum. Féhirðir greiðir úr sjóði samkvæmt reglum umdæmisstjórnar. Hann gefur skýrslu á umdæmisþingi og þegar umdæmisstjórn óskar.

f. Ritari annast allar skýrslur og skjöl umdæmisins, fundargerðir umdæmisþings og funda umdæmisstjórnar og framkvæmdaráðs. Ritari skal gefa skýrslu á umdæmisþingi og endranær þegar umdæmisstjóri eða umdæmisstjórn óskar þess. Hann skal koma á framfæri til réttra embættismanna og nefnda öllu efni sem móttekið er frá KI og KI-EF. Ritari skal ásamt umdæmisstjóra sjá um að senda allar opinberar skýrslur sem krafist er af KI og inna af hendi þær skyldur aðrar sem kunna að vera á hann lagðar af umdæmisstjóra eða umdæmisstjórn.
g. Erlendur ritari annast erlendar bréfaskriftir umdæmisstjórnar samkvæmt nánari  
 fyrirmælum umdæmisstjóra. Hann gegnir störfum umdæmisritara í forföllum hans

VI. kafli.
Umdæmisstjórn.

1. gr.
Í umdæmisstjórn eiga sæti umdæmisstjóri, fráfarandi umdæmisstjóri, kjörumdæmisstjóri, svæðisstjórar, ritarar og féhirðir.*(ATH:Þegar félagi í umdæminu gegnir embætti í stjórn KI-EF skal hann eiga seturétt á fundum umdæmisstjórnar með málfrelsi.. Hið sama á við um þegar félagi í umdæminu situr í stjórn KI. Verðandi kjörumdæmisstjóri hefur sama rétt). 

2. gr.
Vald, ábyrgð og störf stjórnar er í aðalatriðum háð ákvæðum stofnskrár og laga KI og KI-EF þar sem við á.

3. gr.
Umdæmisstjórn skal halda minnst tvo (2) fundi á starfsárinu. Einn fyrir 31. október og annan í sambandi við umdæmisþing. Ef fyrsti fundur er haldinn fyrir 1. október skulu allar ákvarðanir þar teknar taka gildi 1. október. Að öðru leyti ákveður umdæmisstjóri fundi, fundarstaði og fundartíma með samþykki umdæmisstjórnar. Fundir skulu haldnir að boði umdæmisstjóra eða meirihluta umdæmisstjórnar.
4.  gr.
Í sérstöku umboði umdæmistjórnar og til að tryggja skilvirkari stjórnun umdæmisins skal starfa framkvæmdaráð sem skipað er eftirfarandi embættismönnum.:  Umdæmisstjóra, fráfarandi umdæmisstjóra, kjörumdæmisstjóra, umdæmisritara, umdæmisféhirði og erlendum ritara. Framkvæmdaráð skal gefa umdæmisstjórn skýrslu um mál þau sem það hefur tekið fyrir milli umdæmisstjórnarfunda. Framkvæmdaráð fundar að boði umdæmisstjóra eins oft og efni standa til.
5. gr.
Sérstakan fund umdæmisstjórnar má kalla saman af umdæmisstjóra, ritara, eða af tveimur þriðju (2/3) umdæmisstjórnarmanna.

6. gr.
Ritari skal senda öllum umdæmisstjórnarmönnum og öðrum sem til fundar eru boðaðir, skriflegt fundarboð með dagsetningu, tíma og fundarstað, ekki seinna en  (10) dögum fyrir fundardag.

7. gr.
Í fjarveru umdæmisstjóra eða kjörumdæmisstjóra skal umdæmisstjórnin tilnefna einn af stjórnarmönnum sem fundarstjóra.

8. gr.
Helmingur (1/2) stjórnarmanna skal teljast ákvörðunarbær meirihluti og meirihluti atkvæða þeirra sem viðstaddir eru skal úrskurða um hvaða mál sem er, nema þau mál þar sem stærri meirihluta er krafist samkvæmt lögum þessum.

9. gr.
Innan þrjátíu (30) daga eftir sérstakan eða reglulegan fund umdæmisstjórnar skal ritari fundarins semja fundargerð sem inniheldur fullkomið ágrip alls þess sem fram fór á fundinum og senda hana stjórnarmönnum og öðrum sem fundinn sátu, ritara KI og afrit til Heimsforseta, og einnig til ritara allra klúbba innan umdæmisins.

VII. kafli.
Svæðisstjórn.

1. gr.
Svæðisstjórn er þannig skipuð: Svæðisstjóri, fráfarandi svæðisstjóri, kjörsvæðisstjóri, ritari og meðstjórnandi.

VIII. kafli.
Svæðisráð.

1. gr.
Svæðisráð er þannig skipað: Svæðisstjórn, forsetar og ritarar klúbba í svæðinu. Rétt til setu á svæðisráðsfundum með málfrelsi og tillögurétti hafa allir fyrrverandi umdæmisstjórar og fyrrverandi svæðisstjórar sem eru fullgildir félagar í klúbbum svæðisins.

2. gr.
Svæðisráðsfundir eru haldnir 2-3 á ári eða svo oft sem þurfa þykir. Svæðisstjóri stýrir svæðisráðsfundum.

3. gr.
Markmið svæðisráðsfunda er:
a. Að fræða og þjálfa embættismenn klúbbanna.
b. Að skiptast á upplýsingum um starf klúbbanna.
c. Að skipuleggja sameiginlegt starf klúbbanna.
d. Að ræða markmið KI og KI-EF og Umdæmisins Ísland-Færeyjar og vinna að framgangi stefnu þeirra og markmiða .

4. gr.
Kosning svæðisstjóra og kjörsvæðisstjóra skal fara fram á svæðisráðsfundi, samanber XII. kafla 7. gr. laga þessara. Svæðisstjóri skal vera í forsæti á slíkum fundi eða, ef hann er ekki viðstaddur, næsti svæðisstjóri þar á undan o. s. frv. Svæðisstjóri skal tilkynna niðurstöður kosningarinnar til umdæmisritara strax að kosningu lokinni.

5. gr.
Engin gjöld eru greidd til svæðisráðs.

IX. kafli.
Nefndir.

1. gr.
Nöfn, skipulag og skyldur fastanefnda umdæmisins skulu ráðast af þörfum umdæmisins og sérstökum tilmælum stjórnar KI hverju sinni. Öllum nefndum skal setja starfsreglur.

2. gr.
Hver einstök fastanefnd skal ávallt í samvinnu við viðeigandi nefnd KI virkja klúbba umdæmisins til þátttöku í verkefnum sem slíkar alþjóðanefndir gera tillögur um.
 

3. gr.
Að fengnu samþykki umdæmisstjórnar getur umdæmisstjóri skipað sérnefndir og skulu þær inna af hendi þær skyldur sem skilgreindar eru við stofnun þeirra. Það er á valdi umdæmisstjóra að víkja hvaða nefndarmanni sem er frá störfum.

X. kafli.
Umdæmisþing.

1. gr.
Halda skal umdæmisþing að minnsta kosti einu sinni á starfsárinu með þátttöku allra klúbba í umdæminu, eftir nánari ákvörðun umdæmisstjóra og með samþykki umdæmisstjórnar. Umdæmisstjórn ákveður tímasetningu umdæmisþings.

2. gr.
Umdæmiþing, sem er aðalfundur hreyfingarinnar, skal halda á tímabilinu 15. maí til 15. september. Umdæmisstjórn ákveður nánari dagsetingu umdæmisþings. Ekkert umdæmisþing má halda innan tímamarka sem eru frá því þrjátíu (30) dögum fyrir, til þrjátíu (30) dögum eftir heimsþing KI. Umdæmisþing ákveður staðarval umdæmisþings í samræmi við reglugerð um staðarval.  Ávallt skal liggja fyrir ákvörðun um þingstað þrjú (3) ár fram í tímann.

3. gr.
Umdæmisstjóri skal halda aukaþing umdæmisins ef meirihluti fullgildra klúbba með full réttindi óskar þess, eða að ósk þriggja fjórðu (3/4) hluta umdæmisstjórnarmanna.

4. gr.
Umdæmisritari skal senda hverjum fullgiltum klúbbi og ritara KI opinbert boð til umdæmisþings minnst sextíu (60) dögum fyrir dagsetningu þingsins og opinbert boð til aukaþings minnst þrjátíu (30) dögum fyrir dagsetningu slíks þings. Umdæmisstjórn skal hafa fulla yfirstjórn og framkvæmdavald yfir öllum þingum.

5. gr.
Á öllum rétt boðuðum þingum eða fyrir slík þing skal umdæmisstjóri skipa kjörbréfanefnd og kjörnefnd, og skal hvor vera skipuð minnst þremur (3) félögum. Allir kjörnefndarmenn skulu vera kjörnir fulltrúar eða sjálfkjörnir fulltrúar*. Tveir (2) félagar hverrar fyrrnefndrar nefndar mynda ábyrgan meirihluta.
*(Athugið: Sjálfkjörnir fulltrúar eru kjörnir og skipaðir stjórnarmenn í umdæmisstjórn á hverjum tíma og  fyrrverandi umdæmisstjórar viðkomandi umdæmis sem eru virkir félagar eða aldursaðildarfélagar í fullgiltum klúbbi innan umdæmisins.)

6. gr.
Á sérhverju rétt boðuðu þingi skal hver fullgiltur klúbbur með full réttindi innan umdæmisins eiga rétt á þrem (3) fulltrúum og skulu tveir þeirra vera forseti og verðandi forseti. Þegar kosning fulltrúa til þings fer fram má hver klúbbur kjósa einn (1) varamann fyrir hvern fulltrúa, að forseta og verðandi forseta meðtöldum.

7. gr.
Opinberir fulltrúar nýstofnaðs Kiwanisklúbbs skulu njóta fullra réttinda á umdæmisþingi eftir að vígsluskjal hefur verið gefið út af KI, hvort sem það hefur verið formlega afhent klúbbnum eða ekki.


8. gr.
Fulltrúar og varafulltrúar skulu vera virkir félagar eða aldursaðildarfélagar með full réttindi innan fullgiltra klúbba sem þeir eru fulltrúar fyrir og skulu þeir kosnir af slíkum klúbbi ekki minna en þrjátíu (30) dögum fyrir dagsetningu umdæmisþings og ekki seinna en fimmtán (15) dögum fyrir dagsetningu aukaþings og skal kosning þeirra staðfest með kjörbréfi sem sent er umdæmisritara og er staðfest af forseta og ritara viðkomandi klúbbs. Ef einhver fullgiltur klúbbur lætur hjá líða að staðfesta kosningu fulltrúa sinna og varafulltrúa svo sem hér er fyrir sagt skal kjörbréfanefnd hafa rétt til þess að ákvarða um þingsetu fulltrúa eða varafulltrúa frá slíkum fullgiltum klúbbi. Þingnefnd skal gefa út kjörbréf fyrir sjálfkjörna fulltrúa.

9. gr.
Allir kjörnir og skipaðir embættismenn og fyrrverandi umdæmisstjórar umdæmisins sem eru virkir félagar eða aldursaðildarfélagar í Kiwanisklúbbi innan umdæmisins skulu vera sjálfkjörnir fulltrúar á öllum þingum.

10. gr.
Sérhver kjörinn fulltrúi og sjálfkjörinn fulltrúi skal hafa atkvæðisrétt í öllum málum á öllum þingum. Atkvæðagreiðsla með umboði er ekki leyfileg. Til þess að hljóta atkvæðisrétt skal kjörinn fulltrúi eða sjálfkjörinn fulltrúi fá staðfestingu samkvæmt þeim ákvæðum sem um það gilda í lögum þessum og skal hafa greitt þinggjald, ef ákvæði er um slíkt, eða samkvæmt starfsreglum þingnefndar sem samþykktar eru af umdæmisstjórn.

11. gr.
Umdæmisstjórn skal jafna kostnaði af umdæmisþingum á alla Kiwanisfélaga miðað við félagafjölda 31. des. Senda skal öllum klúbbum fjárhagsáætlun þingsins um leið og greiðsluseðill þinggjalda er sendur út. Gjalddagi þinggjalda skal vera tveimur (2) mánuðum fyrir setningu umdæmisþings. Umdæmisþing skal setja reglugerð um fjárhagsáætlun umdæmisþinga.
 
12. gr.
Þing getur lagt fram, rætt og samþykkt ályktanir þar sem mælt er með lagasetningu við KI. Þingið skal einnig kanna og taka afstöðu til málefna sem fyrir það eru lögð af KI.

13. gr.
Í fjarveru umdæmisstjóra eða staðgengils umdæmisstjóra (ef til er) á hvers konar þingi umdæmisins, skal umdæmisstjórn tilnefna kjörumdæmisstjóra, fráfarandi umdæmisstjóra eða svæðisstjóra til að starfa sem þingforseti.

14. gr.
Meirihluti í atkvæðagreiðslu á hvers konar þingi er löglegur og bindandi ef hann er skipaður viðstöddum kjörnum og sjálfkjörnum fulltrúum sem eru í fyrirsvari fyrir þriðjung (1/3) af heildarfjölda klúbba umdæmisins.

15. gr.
Innan þrjátíu (30) daga eftir sérhvert þing, skal ritari senda skýrslu um það sem fram fór á þinginu með greinargóðum útdrætti úr fundargerð þingsins um allt sem fram fór og skal hann senda afrit hennar til KI, og til ritara sérhvers fullgilts klúbbs innan umdæmisins.
*(Athugið: Eftir ákvörðun umdæmisstjórnar þar um, skal einnig senda fundargerð þingsins til umdæmisstjórnarmanna og formanna umdæmisnefnda, svo og KI-EF ef um er að ræða málefni sem varða það sérstaklega.)


XI. kafli.
Þingsköp.

1. gr.
Opinber dagskrá þings, sem samþykkt hefur verið af umdæmisstjórn, skal liggja til grundvallar á öllum fundum þess. Breytingar á dagskrá má gera ef þörf krefur og þá með samþykki meirihluta kjörinna fulltrúa og sjálfkjörinna fulltrúa sem viðstaddir eru þingið.

2.gr.
Allar ályktanir sem sendar eru þrjátíu (30) dögum fyrir dagsetningu umdæmisþings, skal leggja fyrir ályktananefnd til skoðunar og ábendinga til þingsins. Engar ályktanir aðrar en þær sem svo hafa verið fram lagðar eða eru þær sem ályktananefnd hefur frumkvæði að skulu koma til álita nema samþykki sé gefið af tveim þriðju (2/3) stjórnarmanna umdæmisstjórnar. Umræður um slíkar ályktanir skulu ekki leyfðar fyrr en ályktananefnd hefur kynnt efni þeirra.

3. gr.
Skýrslur nefnda, tilkynningar til þingsins, ályktanir lagðar fram af ályktananefnd, allar tillögur aðrar en þær sem ekki þarf að ræða, má ræða á þinginu nema tveir þriðju (2/3) fundarmanna ákveði að þingið skuli fella þær án umræðu.

XII. kafli.
Tillögur um embættismenn og kjör þeirra.

1. gr.
Kjör embættismanna, nema ritara, féhirðis og svæðisstjóra, skal fara fram á umdæmisþingi.

2.gr.
Eitt hundrað og tuttugu (120) dögum fyrir umdæmisþing tilkynnir  umdæmisstjóri öllum Kiwanisklúbum um framboðsfrest vegna embættis kjörumdæmisstjóra. Þeir einir eru kjörgengir sem gegnt hafa starfi  svæðisstjóra, umdæmisritara, erlends ritara eða umdæmisféhirðis  fullt  starfsár. Tillögur verða að hafa borist umdæmisstjóra sextíu (60) dögum fyrir umdæmisþing.  Öllum tillögum skal fylgja undirrituð yfirlýsing um samþykki viðkomandi. Frambjóðendur í starf kjörumdæmisstjóra skulu undirrita sérstaka yfirlýsingu (samning) KI um embættisskyldur.


3. gr.
(Ef samþykkt, verður þessi grein nr. 4 og eftirfarandi greinanúmer breytast samsvarandi)
Val fulltrúa til embættis  í  stjórn KI-EF  ( Ath: tilnefnt er til embættis varaforseta) skal fara fram á umdæmisþingi. Kjörgengir eru þeir sem gegnt hafa starfi umdæmisstjóra. Umdæmisstjóri skal tilkynna um framboðsfrest eitt hundrað og tuttugu (120) dögum fyrir umdæmisþing til þeirra sem kjörgengir eru. Framboð skulu berast  umdæmisstjóra sextíu (60) dögum fyrir umdæmisþing.

4. gr.
Aðrar tilnefningar í embætti kjörumdæmisstjóra og fulltrúa í stjórn KI-EF verða að berast umdæmisritara eigi síðar en eitt hundrað og tíu (110) dögum fyrir umdæmisþing. Umdæmisritari tilkynnir klúbbunum skriflega eigi síðar en eitt hundrað (100) dögum fyrir ársþing umdæmisins þær viðbótartilnefningar er borist hafa.

5. gr.
Umdæmisstjóri skipar kjörnefnd, sem annast dreifingu og talningu atkvæðaseðla.

6. gr.
Meirihluta allra greiddra atkvæða er krafist til þess að kosning teljist fullgild. Nái enginn frambjóðenda tilskildum meirihluta skal sá sem fæst atkvæði hlýtur falla út og síðan skal kosning endurtekin þar til einn frambjóðenda hefur hlotið tilskilinn meirihluta.

7.gr.
Svæðisstjóri og kjörsvæðisstjóri eru kjörnir á svæðisráðsstefnu eigi síðar en nítíu (90) dögum fyrir umdæmisþing og er kjör þeirra staðfest á umdæmisþinginu. Svæðisstjóri ákveður dagsetningu, skipuleggur og boðar til slíks fundar og skal skrifleg tilkynning þar um send til allra klúbbforseta í svæðinu eigi síðar en tíu (10) dögum fyrir fundinn. Svæðisstjórn leggur fram tillögu um kjörsvæðisstjóra eigi síðar en þrjátíu (30) dögum fyrir svæðisráðsfundinn þar sem kosning kjörsvæðisstjóra fer fram .

8. gr.
Svæðisráðstefnuna skulu sitja forseti og ritari allra klúbba í svæðinu, eða rétt kjörnir varamenn þeirra, og Meirihluti viðstaddra fulltrúa ekki minna en tveggja þriðju (2/3) hluta allra klúbba í svæðinu, telst vera ákvörðunarbær meirihluti.

9. gr.
Fráfarandi svæðisstjóri skal stjórna ráðstefnunni eða, í fjarveru hans næsti svæðisstjóri þar á undan, o.s. frv. Ef enginn fyrrverandi svæðisstjóri er viðstaddur skal ráðstefnan kjósa einn fulltrúa úr sínum röðum sem fundarstjóra.
  
10. gr.
Eftir lok undirbúnings eins og af ofan er greint skal ráðstefnan kjósa svæðisstjóra og kjörsvæðis-stjóra.  Kjörsvæðisstjóri skal vera einn i framboði til embættis svæðisstjóra. Meirihluta allra greiddra atkvæða er krafist til þess að kosning teldist lögleg sbr. 6. gr.  hér að ofan

11. gr.
Kjörsvæðisstjóri er ekki embættismaður umdæmisins.

12. gr.
Svæðisstjóri skal tilkynna niðurstöður kosninganna til umdæmisritara.

13. gr.
Umdæmisritari, umdæmisféhirðir og erlendur ritari, eru skipaðir af umdæmisstjóra.


14. gr.
Ef svo skyldi vilja til á einhverju starfsári að umdæmisstjórn kveði upp úrskurð um að vegna neyðarástands í umdæminu verði að fella umdæmisþingið niður, skal stjórnin hafa vald til að kalla saman ráðsfund á því tímabili þegar halda átti þingið og kjósa embættismenn umdæmisins til venjulegs kjörtímabils og til að framkvæma þau störf önnur sem venjulega eru framkvæmd á umdæmisþingi. Slíkt ráð skal skipað umdæmisstjórn og þeim einstaklingum öðrum sem hafa stöðu sjálfkjörinna fulltrúa. Slíkur ráðsfundur setur sér sínar eigin starfsreglur.

XIII. kafli.
Embætti laus á starfsárinu.

1. gr.
Ef embætti umdæmisstjóra skyldi losna á starfsárinu skal umdæmisstjórn kjósa fyrrverandi umdæmisstjóra eða einn svæðisstjóranna, eða fyrrverandi svæðisstjóra, einstakling sem er virkur félagi eða aldursaðildarfélagi í Kiwanisklúbbi innan umdæmisins, til þess að verða umdæmisstjóri það sem eftir er starfsársins. Til að ná kjöri þarf tvo þriðju (2/3) hluta atkvæða allra umdæmisstjórnarmanna. Ef embætti kjörumdæmisstjóra skyldi losna á starfsárinu skal umdæmisstjórnin skipa einhvern starfandi svæðisstjóra, sem er virkur félagi eða aldursaðildarfélagi í Kiwanisklúbbi innan umdæmisins til að gegna embættinu það sem eftir er starfsársins.

2. gr.
Ef embætti svæðisstjóra skyldi losna á starfsárinu skal svæðisráð kjósa hæfan félaga úr fullgildum klúbbi innan svæðisins til að gegna embætti til loka starfsársins.

3.gr.
Ef umdæmisstjóri telur að einhver svæðisstjóri, umdæmisritari, féhirðir eða erlendur ritari vanræki embættisskyldur sínar, skal umdæmisstjóri gera viðkomandi embættismanni þegar viðvart. Hann skal boða umdæmisstjórn á fund sem halda skal ekki seinna en þrem (3) vikum
síðar til þess að ræða málið og hvort ekki sé ástæða til að leysa embættismanninn frá störfum. Ef umdæmisstjórn kemst að þeirri niðurstöðu að aðfinnslurnar séu réttmætar, hefur umdæmisstjóri vald til þess að lýsa embættið laust og skal umdæmisstjórn kjósa nýjan embættismann til að taka við hinu lausa embætti. Ef um svæðisstjóra er að ræða skal nýr svæðisstjóri kosinn úr því svæði þar sem embætti er lýst laust.

4. gr.
Ef ljóst verður eftir kosningu en fyrir 1. október, að embættismaður umdæmisins reynist ekki munu geta innt af hendi skyldur embættis síns á komandi starfsári, skulu stjórnarmenn kosnir til sama starfsárs, kjósa annan til embættis á sama hátt og gert er vegna annarra lausra embætta yfir starfsárið. Verðandi umdæmisstjóri stjórnar slíkri kosningu, en sé hann ekki viðstaddur skal starfandi umdæmisstjóri sjá um framkvæmd hennar.

5. gr.
Ef umdæmisstjóri forfallast tímabundið þannig að hann getur ekki sinnt skyldum embættisins, er umdæmisstjórn heimilt að skipa fyrrverandi umdæmisstjóra eða einn svæðisstjóranna eða fyrrverandi svæðisstjóra sem verður að vera virkur félagi eða aldursaðildarfélagi í Kiwanisklúbbi innan umdæmisins til að starfa sem staðgengill umdæmisstjóra þar til umdæmisstjóri getur tekið við embættinu aftur og skal staðgengill umdæmisstjóra vera æðsti embættismaður umdæmisins og hafa allar þær skyldur, ábyrgð og vald sem umdæmisstjóra er gefið með lögum þessum og með stofnskrá og lögum KI. Ef umdæmisstjórn er ljóst eftir sextíu (60) daga að umdæmisstjórinn er áfram ófær um að gegna embætti má umdæmisstjórn lýsa embætti umdæmisstjóra laust og skal embættið fyllt í samræmi við greinar þessara laga um hvernig fylla skuli laus embætti.

XIV. kafli.
Tekjur.

1. gr.
Umdæmisþing samþykkir fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár og þar með gjöld þau sem klúbbarnir greiða til umdæmisins fyrir hvern félaga ásamt áskriftargjaldi fyrir Kiwanisfréttir, að undanskildum heiðursfélögum. Gjalddagar eru 1. nóvember og 1. apríl og skulu gjöldin greiðast eigi síðar en þrjátíu (30) dögum eftir gjalddaga og miðast við félagatölu klúbbanna eins og hún hefur verið tilkynnt KI 30. september og 31. mars næst á undan gjalddögunum. Eindagar eru 1. desember og 1. maí.  Þessi gjöld skal nota til að standa straum af reksturskostnaði umdæmisins.

2. gr.
Gjöld nýrra klúbba til umdæmisins skulu vera í hlutfalli við þann hluta starfsársins sem eftir er það ár sem klúbburinn er stofnaður.

3. gr.
Engar fjárhagslegar skuldbindingar aðrar en ársgjöldin sem hér hafa verið ákveðin má umdæmið leggja á klúbba umdæmisins né skulu sjálfboðagreiðslur til nokkurs verkefnis umdæmisins ákveðnar fyrir alla klúbba umdæmisins, nema með tveimur þriðju (2/3) atkvæða fulltrúa á umdæmisþingi eða tveim þriðju (2/3) atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu meðal klúbba umdæmisins og með samþykki stjórnar KI.

XV. kafli.
Fjármál.

1. gr.
Fjárhagsár umdæmisins skal hefjast fyrsta dag októbermánaðar ár hvert og ljúka 30. september.

2. gr.
Þriggja (3) manna fjárhagsnefnd sem umdæmisþing skipar skal gera áætlun um tekjur og gjöld umdæmisins fyrir næsta starfsár. Fjárhagsáætlun skal liggja fyrir eigi síðar en 1. apríl og skal þá send út til kynningar. Allir klúbbar, allir kjörnir og skipaðir embættismenn skulu fá eintak af áætluninni eigi síðar en 15. apríl. Umdæmisþing setur nefndinni starfsreglur.

3.gr.
Fjárhagsáætlun skal lögð fyrir umdæmisþing til samþykktar. Á fyrsta fundi umdæmisstjórnar skal fjárhagsáætlun fyrir starfsárið samþykkt af umdæmisstjórninni.

4. gr.
Óheimilt er með öllu að greiða úr sjóðum umdæmisins meira en sem nemur heildarfjárhæð fjárhagsáætlunar.

5. gr.
Sjóðir og bankareikningar umdæmisins skulu endurskoðaðir minnst einu sinni á ári af sjálfstæðu endurskoðunarfyrirtæki sem tilnefnt er af umdæmisstjórn og skal árituð endurskoðunarskýrsla send umdæmisstjórn.

6. gr.
Umdæmisstjórn ákveður opinberan vistunarstað fyrir fé umdæmisins.

7. gr.
Umdæmisstjórn ákveður hvaða embættismaður eða embættismenn hafa rétt til að undirrita ávísanir.

8. gr.
Nauðsynlegan ferðakostnað embættismanna umdæmisins þegar þeir eru í embættiserindum fyrir umdæmið má greiða úr sjóði umdæmisins í samræmi við fjárhagsáætlanir. Nauðsynlegan kostnað vegna farar umdæmisstjóra og kjörumdæmisstjóra til þinga KI, má greiða úr sjóði umdæmisins.

9. gr.
Reikningar umdæmisins og sjóða þess skulu vera tilbúnir til endurskoðunar ekki síðar en tveimur (2) mánuðum eftir lok starfsárs.


XVI. kafli  
Breytingar á lögum

1. gr.
Breytingar má gera á lögum þessum ef þær eru í samræmi við lög KI og eru samþykkt af tveimur þriðju (2/3) hlutum atkvæða kjörinna fulltrúa og sjálfkjörinna fulltrúa á umdæmisþingi. Tillögur um breytingar sem skulu lagðar fram af klúbbi með full réttindi, eða af umdæmisstjórn, skulu berast  umdæmisritara  minnst sextíu (60) dögum fyrir dagsetningu umdæmisþings. Ritari skal senda afrit allra tillagna um breytingar á lögum þessum til ritara hvers fullgilds Kiwanisklúbbs innan umdæmisins ekki seinna en þrjátíu (30) dögum fyrir dagsetningu umdæmisþings

XVII. kafli. 
Samþykki KI

1. gr.
Lög þessi og allar breytingar eða viðbætur, þar með talið skipan umdæmisins, endurskipulag umdæmisins eða niðurskipan klúbba, skulu ekki taka gildi fyrr en samþykki er gefið af stjórn KI.

18.09.2007

District Governor
 Andrés Hjaltason

District Secretary
 Óskar Guðjónsson

 

Prentvæn útgáfa