Umdæmisstjóri - Governor 2011 -2012
Ragnar Örn Pétursson

 



  Ragnar Örn Pétursson úr Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík tók við sem umdæmisstjóri 1. október 2011.
 
Ragnar Örn gekk til liðs við Kiwanishreyfinguna árið 1991 og hefur  verið starfandi í 20 ár. Hann hefur gengt flestum embættum í Keili og frá 1999 má segja að hann hafi verið viðloðandi umdæmisstjórn með nokkrum frávikum. Hann þekkir því vel til innviða hreyfingarinnar.
1999 tók hann við embætti  formanns þingnefndar í umdæmisstjóratíð Guðmundar Péturssonar í Keili. Á þessum tíma sem liðinn er hefur hann verið ritstjóri Kiwanisfrétta í fimm ár og auk þess upplýsinga-og blaðafulltrúi í tvö ár. Ragnar Örn var svæðisstjóri í Ægissvæði 1996-97 og formaður fjölgunarnefndar í umdæmisstjóratíð Sigurðar R. Péturssonar 2004-2005.

Ragnar Örn starfar nú sem Íþróttafulltrúi hjá Reykjanesbæ og hefur gengt því starfi í 15 ár og hefur verið formaður Starfsmannafélags Suðurnesja frá 1999. Hann hefur setið í stjórn BSRB frá þeim tíma. Hann er Reykvíkingur en flutti ásamt fjölskyldu sinni til Keflavíkur 1984 þar sem hann var í veitingarekstri í Keflavík og rak veitingasöluna í Leifsstöð í átta ár.
Ragnar Örn er menntaður framreiðslumaður og hefur einnig lokið diplomunámi í Tómstunda-og félagsmálafræði frá KHÍ. Á árum áður starfaði hann sem íþróttafréttamaður á Tímanum, Vísi og Ríkisútvarpinu og var fréttaritari RÚV á Suðurnesjum um 15 ára skeið.

Ragnar Örn er giftur Sigríði Sigurðardóttur starfsmanni Sundmiðstöðvarinnar og félagi í Sinawik í Keflavík. Þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn og það áttunda er væntanlegt í jólamánuðinum.

Kjörorð umdæmisstjórnar 2011 – 2012
 
Margar hendur vinna létt verk

Markmið umdæmisins starfsárið 2011 – 2012

Vinna  –  Saman
Standa –  Saman
Fjölga  –  Saman
Gaman -  Saman