40.Umdæmisþing
Kiwanisumdæmisins ísland Færeyjar
9. til 12. september 2010 Salnum Kópavogi
Eldeyjarfélagar, undir forystu formanns þingnefndar, Eyþórs Einarssonar, leggja nú lokahönd á undirbúning umdæmisþings í Kópavogi. Drög að dagskrá liggja fyrir og sérstakt þingblað mun berast félögum í byrjun september. Á þinginu kennir ýmissa grasa og bryddað er uppá nýjungum sem vonandi gera þingið skilvirkara og efnis- og viðameira.
Þingið hefst í Eldeyjarhúsi, 9. sept. kl 18:00 með “Fókus á fjölgun” fjölgunarráðstefnu umdæmisins. Þangað eru áhugasamir Kiwanisfélagar boðnir velkomnir, en sérstaklega er skorað á verðandi embættismenn klúbba og umdæmis að sitja ráðstefnuna, enda einsýnt að fjölgunarmálin munu verða í brennidepli næstu misserin.
Föstudagsdagskráin hefst kl 08:00 í Eldeyjarhúsi með síðasta umdæmis-stjórnarfundi starfsársins. Sameiginleg fræðsla verðandi embættismanna byrjar kl 09:00 í Salnum. Hádegisverður er í Safnaðarheimili Kópavogskirkju, en aðalfundur Tryggingasjóðs verður þar kl. 13:30 meðan fjölgunarráðstefnu verður framhaldið í Salnum. Formleg þingsetning 40. umdæmisþings verður í Kópavogskirkju kl 20:00 og móttaka í Safnaðarheimili strax á eftir. Eitthvað sem þið vilji ekki missa af!!!. Landsfrægur Kiwanisskemmtikraftur mun stíga þar á stokk og segja okkur til syndanna og von er á að Eldeyjarfélagar láti gamminn geysa. Fljótandi veitingar eru í boði gegn vægu verði. Rútuferð á hótel í lok skemmtunar.
Þingfundi er svo framhaldið í Salnum kl 09:00 á laugardag. Hefðbundin þingstörf ráða ferðinni en sérstaklega er félögum bent á kynningu á nýju heimsverkefni KI og umræðu um K-dag. Hádegisverður í Safnaðarheimilinu. Í orðsins fyllstu merkingu má því segja að Kiwanisfólk verði “hátt uppi” á laugardadagskvöld, en þingfundi verður frestað um kl 16:00 svo nægur tími gefist til að tína á sig betri spjarirnar og fjölmenna á “galakvöld” í hjarta Kópavogs sjálfum “Turninum” Tekið verður á móti veislugestum með líflegum lúðrablæstri og þeim boðið til móttöku umdæmisstjóra og fordrykkjar. Stallari mun síðan kynna veislugesti hvern af öðrum og þeirra biður glæsileg veilsumáltíð. Óhjákvæmilegum formsatriðum verður haldið í lágmarki en meira lagt uppúr samveru og samræðu, glensi, gamni og dansi.
Nánari upplýsingar um þingið verða sendar klúbbforsetum og birtar hér á síðunni!!!
Það er von mín að Kiwanisfélagar taki virkan þátt í þingstörfum og ítreka að allt þinghald og viðburðir er opið almennum Kiwanisfélögum. Mætið í Kópavoginn –Upplifið stemninguna-Endurnýjið vinatengslin og stofnið til nýrra.
Efling –Kraftur-Áræði – Helgin er okkar!!!
Kiwaniskveðja
Óskar

Galakvöldið í Turninum
Húsið opnar kl 19:00
Fordrykkur Á Bar 20. Hæðarinnar
Veislustjóri Hjálmar Hjálmarsson bæjarfulltrúi næstbesta flokknum Kóp.
Skemmtiatriði Friends forever : söngur
Hljómsveitin Granít spilar dinner og dansmúsik til kl 02:00
Matseðill Gala dinner
Forréttur
Kremuð Humarhalasúpa með léttþeyttum rjóma
Aðalréttur
Lambarifja með krydduðum lambaskanka Madeirasósu
Kremuðum sveppum og fondant kartöflum
Eftirrétur
Frönsk sukkulaðikaka
með pistasíuís og ferku berjasalsa
Miðaverð kr. 7,800 pr. mann
Makaferð í boði umdæmisstjórnar
Makaferð í boði Umdæmisstjórnar
11. september 2010.
Dagskrá:
Hittumst við Gerðasafnið kl. 11:00
Kl. 11:00 Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn - Leiðsögn um sýninguna niu/nine.
Kl. 11:45 Náttúrufræðistofu Kópavogs - Leiðsögn um safnið.
Kl. 12:15 Tónlistarsafn Íslands - Sýning til heiðurs Sigfúsi Halldórssyni á 90 ára
fæðingarafmæli hans - Fúsi 90 ára.
Kl. 13:00 Safnaðarheimili Kópavogskirkju – hádegisverður kr. 1.500.-
Farastjórar: Jónína og Ester
Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir 9. september til konrad.konradsson@gmail.com
Prentvæn útgáfa klikka
hér
Eldri þing