Eldri fréttir :

Fréttir:

 

Í maí voru afhentir hjálmar í þá skóla sem eru á svæði Smyrils, þann 16 maí fór Sæmundur forseti  í Laugagerðisskóla ásamt Rósu Hjúkrunarfræðing, 21 maí var farið í Grunnskólann í Borgarnesi þangað fóru auk Sæmundar, Jón Heiðarsson kjörsvæðisstjóri, Íris hjúkrunarfræðingur og Laufey Lögreglukona. þaðan  var svo farið í Varmalandsskóla, þangað fóru þau Sæmundur og Laufey ásamt Dagný hjúkrunarfræðing.

Laugagerði.

Grunnskólinn í Borgarnesi

Grunnskólinn í Borgarnesi

Varmalandsskóli

 

þann 14 apríl fóru Sæmundur Forseti og Þorsteinn fráfarandi forseti ásamt sínum konum á afmælisfagnað hjá Kiwanisklúbbnum Hof frá Garði. En þeir Hofs félagar fögnuðu 35 ára afmæli klúbbsins á Hótel Hamri .

 

Á fundi okkar þann 20 febrúar kom til okkar Erlendur Breiðfjörð Magnússon  formaður björgunarsveitarinnar Brák  og sagði okkur frá nýjum bíl sem að björgunarsveitin var að fá af gerð Toyota LC 105. og  fengum við að fara prufurúnt á bílnum, við afhentum honum 150 þús. styrk til þessara kaupa.  Á þennan fund fengum við gest til okkar sem er hugsanlega á leið í klúbbinn.

 

 

Stjórnarskiptafundurinn var haldinn á Hyrnunni 3 október. þangað mættu Hjálmar svæðisstjóri og Helgi svæðisritari og settu nýja stjórn í embætti, í nýrri stjórn eru forseti : Sæmundur Jónsson, kjörforseti: Sigurgeir Erlendsson ritari: Guðmundur Eyþórsson gjaldkeri: Jón Karl Jónsson og meðstjórnendur þeir Magnús Guðjónsson og Indriði Björnsson.

Á myndinni er fráfarandi stjórn ásamt svæðisstjóra og ritara.

Stjórn starfsárið 2006-2007  Sæmundur, Guðmundur, Einar, Indriði og Þorsteinn vantar þá Sigurgeir, Jón Karl og Magnús

 

Sumarferð                                               26.06.2006

Á þorrablótinu kom upp sú hugmynd að fara sumarferð í sumar og nú um síðustu helgi var látið verða af því , þátttakan hefði mátt vera betri en þátttakendur  voru þrír Smyrilsfélagar ásamt mökum, börnum og hundi og 1 Jöklafélagi með barnabörn. En haldið var á föstudaginn á Sandártungu í Þjórsárdal þar sem að settar voru upp "tjaldbúðir" langur tími fór í að setja upp fortjald fyrir suma enda sannaðist það að það kom að góðum notum. Laugardaginn fórum við af stað um 10.00 og var farið sem leið lá í Veiðivötn þar sem að við eyddum  deginum í frábæru veðri og yndislegu umhverfi , fengum ýmsan fróðleik frá Einari og Indriða  og nesti snætt í náttúrunni . vorum komin aftur í tjöld um kl. 18.00 og var þá hafist handa við að grilla gómsætan kvöldverð og renndum honum niður með ljúfum drykkjum, kólnaði þegar fór að kvölda og kom sér þá vel fortjaldið hjá sumum en þar hlógum við og skemmtum okkur fram eftir nóttu.  Á sunnudeginum pökkuðum við  í rólegheitum en samt í kappi við flugurnar , ein eiginkonan var reyndar mjög illa farin eftir flugur svo sá á henni. hluti hópsins hélt svo á Gullfoss og Geysi í blíðskapar veðri og komum á endanum við á Þingvöllum.   þetta var alveg frábær ferð og var það ákveðið þarna að svona ferð yrði farin næsta sumar aftur og er þá stefnan tekin á Kirkjubæjarklaustur , áhugasamir geta byrjað að skrá sig hjá ferðanefndinni.

sjá má myndir úr ferðinni á myndasíðunni :

 

 

Hjálma afhending.

Smyrilsmenn sáu um að afhenda hjálma í Borgarnesi, Varmalandi,Búðardal  og Laugagerðisskóla.

Með þeim í skólana fóru  hjúkrunarfræðingarnir Oddný Böðvarsdóttir og Rósa Marinósdóttir og lögreglukonan Laufey Gísladóttir,  þær sáu um að fræða börnin nauðsyn hjálma og rétta notkun.

þessir hjálmar eru eins og fyrr gefnir af kiwanishreyfingunni á Íslandi ásamt Eimskip

Nemendur í 1 bekk í Grunnskólanum í Borganesi

 

Lokafundur og aðalfundur Kiwanisklúbbsins Smyrils var haldinn þriðjudaginn 18 apríl.  á Hyrnunni í Borgarnesi .

farið var yfir störf vetrarins og nefndir fluttu smá skýrslur.

 

Nýr félagi:

Á fundinum í kvöld gekk til liðs við okkur nýr "gamall"  félagi Guðmundur Eyþórsson en hann  var einn af stofnfélögum Smyrils .
Og er gaman að segja frá því að forseti Smyrils Þorsteinn er bróðir Guðmundar .
á fundinn mættu 9 félagar  og 1  félagi í aðlögun.

 

 

Landnámssetur í Borgarnesi :

Þriðjudaginn 21 febrúar héldum við fund í Hyrnunni þar sem að Kjartan Ragnarsson kom og kynnti fyrir okkur fyrirhugað Landnámssetur sem á að opna hér í Borgarnesi í vor , á fundinn mættu líka félagar frá Þyrli á Akranesi , var þetta mjög fræðandi fundur og viljum við þakka Kjartani og Þyrilsfélögum fyrir góða kvöldstund.

 

Ávarp Þorsteins Eyþórssonar  forseta Smyrils í 30 ára afmælishófi.

Klúbburinn var stofnaður 15.janúar 1976. Vígsluathöfnin var haldin í Lyngbrekku 3.apríl.  Stofnfélagar voru  25 helstu fjáraflanir í fyrstu voru Jólapappírsala, páskaeggjasala, kökubasar og dansleikur. Helstu styrktarverkefni voru : hljómflutningstæki til leikskólans, endurskinsmerki í Grunnskólann og vinnuframlag við Íþróttahúsið. Mikill hugur var í félögum til að byrja með en ekki gekk allt upp, félagar að hætta og nýir að koma í staðinn. Haustið 1979 var lagt til að klúbburinn yrði lagður niður, ekki voru allir sáttir við það , en raunin varð sú að aðeins 6 félagar voru eftir í klúbbnum og þá þurfti aldeilis að bretta upp ermar.  Í þessari slæmu stöðu naut klúbburinn stuðnings umdæmisstjórnar og ekki síst móðurklúbbanna, Jökla og Þyrils. Um þetta leyti voru keypt hljóðfæri fyrir heila lúðrasveit og gefin til Grunnskólans og mátti því segja að kiwanisklúbburinn hafi átt lúðrasveitina, sem starfaði með miklum blóma í nokkur ár. Heldur tókst klúbbnum  að rétta úr kútnum og félagaföldi náðist  mest upp í 26 en í dag erum við 15.

Klúbburinn hefur staðið að ýmsum góðum málum í byggðarlaginu með styrkjum ofl. Td. bætt aðgengi fatlaðra við sundlaugina, styrkir til Dvalarheimilis aldraðra og  Þroskahjálp á Vesturlandi var reglulega styrkt, td. var keypt bifreið fyrir starfsemina í Holti, þá er það klúbbnum að þakka eða kenna að ekki er búið að rífa gamla samkomuhúsið, því við komum á félagsstarfi unglinga í Grunnskólanum og vorum þar við gæslu nokkur kvöld í viku, sem síðan færðist út í Samkomuhús þegar við vorum búnir að mála það og laga til í óþökk margra , því það átti að rífa þennan hjall.Nú er þarna öflugt æskulýðsstarf.

Þrjátíu ára  þjónusta

Þegar ég lít til baka.

Býsna mikil barátta

Betur á skal taka.

 

 Smyrill 30 ára

Afmælishóf Smyrils var haldið í Félagsbæ 14.janúar s.l. Um 60 manns mættu  og tókst hún með ágætum,undir dyggri stjórn Magnúsar Guðjónssonar veislustjóra. Kjörumdæmisstjóri, Kjörsvæðisstjóri og forsetar héldu ræður og færðu okkur góðar gjafir og árnaðaróskir,

Unnur Sigurðardóttir söng einsöng af mikilli snilld við undirleik Steinunnar Árnadóttur. Svo var bara spjallað og skemmt sér.

Eftir hátíðina fórum við Smyrilsfélagar ásamt okkar ástkæru eiginkonum  ( sem áttu heiðurinn af þeim góðgerðum sem boðið var upp á)     upp í Reykholt og borðuðum þar dýrindis mat, skemmtum okkur og gistum þar um nóttina.

myndir úr veisluni eru á myndasíðu.

 

Stjórnarskiptafundurinn var haldinn 04. október í Hyrnunni í Borgarnesi, á fundinn mættu 12 félagar, 1 heiðursfélagi , svæðisstjóri og kjörsvæðisstjóri . svæðisstjóri setti nýja stjórn í embætti.  Guðlaugi Guðmundssyni heiðursfélaga okkar var boðið á fundinn þar sem að við færðum honum gjöf í tilefni 80 ára afmælis hans þann 14, júli s.l.

 

Nú er 35. kiwanisþinginu lokið, voru 4 kiwanisfélagar frá Smyrli þar staddir, og þótti þeim vel til takast bæði við leik og störf. 

þá er að hefjast 30. starfsár Smyrils, eftir miklar vangaveltur um framtíð klúbbsins, var ákvörðun  tekin á fundi og ætlum við að reyna til þrautar í vetur. og eru menn sammála um að allir verði að bæta sig í mætingu og almennu félagastarfi svo öll störf í klúbbnum lendi ekki bara á sömu mönnunum.