Skýrsla Sæmundar Jónssonar forseta á svæðisráðsfundi 7 apríl 2007

skýrsla forseta frá 2004-2005

 

September       

Þrír félagar og einn maki fóru vestur á Ísafjörð á Kiwanisþing sem var haldið helgina 15-17 september. Það var mjög ánægjuleg og vel heppnuð ferð.  Fyrsti fundur okkar í haust var haldinn 19 september í Hyrnunni.

Október

Stjórnarskipti voru þann 3 október.

Þar mættu svæðistjóri  Hjálmar Hlöðversson og svæðisritari  Helgi Straumfjörð og skiptu um stjórn.

Fundur var haldinn 17 október.

Þar fengum við ræðumann Kolfinnu Magnúsdóttir frá Háskólanum á Bifröst og hélt hún erindi um greinar sem voru í Fléttablaðinu um byggðaþróun á landinu. Hún hafið margt út á þær að setja.

Nóvember

Almennur fundur var haldinn 7 nóvember.

Á þeim fundi kom fram að okkur vantar fjáröflun þar sem við getum unnið saman. Það er áhyggjuefni hjá okkur að það vantar nýja félaga í klúbbinn.

11 nóvember var haldinn svæðisráðsfundur í Reykjavík

Desember

Fundur var haldinn 5 des.  Jólafundinn átti að halda þann 15 desember  og hann  átti að vera í Landnámsetrinu, enn því miður var þátttaka ekki næg svo að hann féll niður.

Til að styrkja fjölskyldur fyrir jólin voru sóknarprestinum afhentir  úttektarmiðar í Bónus að upphæð 40 þúsund krónur. Hver miði var 5 þúsund krónur.

Janúar

Svo komu áramót þá var þá var haldinn fundur 16 janúar. 

Febrúar

Í febrúar voru haldir tveir fundir 6 febrúar og 20 febrúar. Á fundinn þann 20 febrúar kom Erlendur Breiðfjörð Magnússon  formaður björgunarsveitarinnar Brák og sagði okkur frá nýjum bíl sem sveitin var að fá sem er Toyota LC 105  og  fórum við í prufutúr. Við afhentum þeim 150 þúsund krónur til styrktar kaupunum á þessum bíl. Á þann fund kom einn í kynningu og er i aðlögun og vonumst við til að hann gangi í klúbbinn. 

Mars

Við erum búnir að halda tvo  fundi í mars. Það er venja hjá okkur að fara með börinn okkar í leikhús í mars en nú verður farið í apríl .

Apríl

Þann 3. apríl héldum við fund og þá fengum við góða gesti í heimsókn. Það voru Svæðistjóri Hjálmar Hlöðversson , Helgi Straumfjörð Svæðisritari og þrír félagar úr Jöklum.

7 apríl var haldinn svæðisráðsfundur á Akranesi. Þar mætti ég ásamt  Jóni Heiðarssyni frá Smyrli. Jón var formlega kjörinn sem Svæðisstjóri Eddusvæðis næsta ár.

Eftir fundinn var farið í rútuferð um Akranes með leiðsögn. Endað var í húsi Haraldar Böðvarsson  og þar skoðuð sýningu um starfsemi Haraldar Böðvarssonar. Þar var veisla í boði bæjarstjórnar Akraness.

Sunnudaginn 15 apríl var farið í leikhús með börinn að sjá Abbabbabb í Hafnarfjarðarleikhúsinu.

 

Ég þakka fyrir samstarfið í vetur og óska ykkur öllum gleðilegs sumar.

Sæmundur Jónsson