Ný skilaboð

Spjallið

Óskar Guðjónsson 30/04/2012, kl.22:19
Fylgist með baráttunni við stífkrampa! http://sites.kiwanis.org/Kiwanis/en/theELIMINATEproject/Progress/ProgressDashboard.aspx
Guðjón Haukur Ingólfsson 27/04/2012, kl.22:43
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=28161505&advtype=52&page=1&advertiseType=0
Jóhannes Kr. Guðlaugsson 27/04/2012, kl.22:43
Er ekki allt í lagi að Eimskip verði með hjálmanna þar sem þeir borga brúsann?
Guðm Helgi Guðjónsson 27/04/2012, kl.21:52
Hugmynd Eimskipa er að merkja á alla kassana með nafni og bekk og senda þá í viðkomandi skóla. Síðan er verkefni klúbbanna að finna tíma til afhendingar í samráði við skólana. Hvers vegna eru Kiwanisfélagar almennt ósáttir við þetta ? Við verðum að átta okkur á því að Eimskip hefur kostað þetta lands verkefni frá upphafi og því eðlilegt að þeir vilji koma meira inn í þetta og er ekki bara kominn tími til að láta þetta alfarið í þeirra hendur og Kiwanis snúi sér að nýju verkefni. Kiwanishreyfingin getur með stolti gengið út úr þessu verkefni ef tryggt er að því verði haldið áfram.
Sigurður Einar Sigurðsson Ós 27/04/2012, kl.21:52
Vildi benda á það að kiwanisklúbburinn Ós var ein af frumkvöðlum hjálmaverkefnisins í 7-8 ár áður en Eimskip kom inní það. Mönnum finnst að Eimskip sé orðið full frekt til verkefnisins samanber viðtal í útvarpinu við blaðafulltrúa Eimskips. Þar nefndi hann einu sinni að kiwanishreyfingin aðstoði við dreifinguna.
Gísli Valtýsson 13/04/2012, kl.09:24
Kiwanishreyfingin hefur nú selt húseign sína við Engjateig. Hið besta mál. Enda lítið vit fyrir félitla hreyfingu að eiga hús á dýrasta stað landsins. Ein einhversstaðar þarf Kiwanishreyfingin að hafa samastað. Þegar hugað verður að öðru húsnæði þarf meðal annars að taka mið af því hvar verð á húsnæði er hagstætt. Ég legg til að fjárfest verði í framtíðarhúsnæði hreyfingarinnar í Vestmannaeyjum. Þar er jú stærsti klúbburinn og jafnlangt fyrir Eyjamenn að fara til Reykjavíkur og Reykvíkinga að fara til Eyja.
Gísli Steinar Skarphéðinsson 13/04/2012, kl.09:24
Strax og ég var látinn vita um þessa húsnæðiskaupanefnd, skipaði ég mann í hana,Hjálmar Hlöðversson. Veit ekki til að neinn fundur hafi verið haldinn í þeirri nefnd.Annars get ég sagt að þessi húsnæðismál hafi verið í uppnámi í nokkur undanfarandi ár, sífeld óvissa á hverju hausti um rekstur Engjateigsins. Ekkert gert í að útvega húsnæði áður en húsið var selt,samanber það að allar eigur Umdæmisins eru núna í kössum í eh.bílskúr.
Guðlaugur Kristjánsson Eldey 05/04/2012, kl.14:09
Sæll Tómas Tæknimenn Eldeyjar eru að gera lokafrágang á heimasíðu isgolfs. Áheitabréfin verða tilbúin nú um helgina og tengjast þessu öllu. Verður örugglega haft strax samband við þig með Kiwanis.is Gulli
Tómas Sveinsson 05/04/2012, kl.14:09
Glæsilegt hlakka til að sjá útkomuna á þessu.
Guðlaugur Kristjánsson Eldey 04/04/2012, kl.19:42
Isgolf Kiwanis 2012 Sælir félagar, nú ættu allir tenglar klúbba vegna isgolfs að vera búnir að fá bréf um verkefnið, bréf um hvernig á að selja áheit og bréf um ráðstöfun söfnunarfjárs. Áheitabréfin verða send á tengla fyrsta dag eftir páska. Bið Kiwanisfélaga að leita til tengla og fái þá til að lesa bréfin á næsta fundi. Með von um gott gengi í áheita-söfnuninni. kv. Gulli 897-5377
Tómas Sveinsson 04/04/2012, kl.19:42
Gott væri að fá eintak fyrir vefinn, lítið fengið um þetta verkefni.
Gylfi Ingvarsson 02/04/2012, kl.23:31
Oscar Knigth sem var fulltrúi KI á umdæmisþinginu á Höfn lést í fyrradag, Oscar var sannur Kiwanisfélagi og naut sín vel msð okkur ásamt konu sinni og dóttur. Oscar var umdæmisstjóri jafnt og ég, við minnumst hans með virðingu og Þökk
Hilmar Svavarsson 31/03/2012, kl.22:43
31.MARS er í raun meriksdagur í sögu Kiwanis því á þessum merka degi voru þrír klúbbar stofnaðir, en það eru KATLA Reykjavík og SKJÖLDUR SIglufirði og BÁSAR Ísafirði. Ég óska þessum klúbbum til hamingju með daginn. En mér þykir leitt að sjá að yfirstjórn KIWANIS á Íslandi er ekki meðvitandi að hvaða dagur er í dag
Magnús Helgason 28/03/2012, kl.22:43
Hvað er að frétta af Hjálmaverkefninu? Ég er að heyra að umdæmið ætli sér að senda hjálmana beint í skólana og fara þannig fram hjá klúbbunum. Er þetta rétt? Er hægt að fá einhverjar upplýsingar um verkefnið þar sem allar upplýsingar á heimasíðunni virðast vera frá því í fyrra? Kveðja, Magnús
Magnús Helgason 28/03/2012, kl.22:43
Takk fyrir það Ragnar. Um að gera að setja upplýsingar um verkefnið á heimasíðuna eða senda klúbbunum upplýsingar. kveðja, Magnús
Júlía B. Björnsdóttir Emblu 25/03/2012, kl.19:53
Kæru félagar! Það vekur furðu mína að umdæmið sendi engar fréttir af nýja heimsverkefninu. og þá finnst vanta á forsíðuna auglýsing um þetta stóra verkefni eða er ekkert að gerast ? hvað finnst ykkur? Með sumarkveðju að norðan
Júlía B. Björnsdóttir Emblu 25/03/2012, kl.19:53
Flott hjá þér Tómas, er ekki málið að verkefni Kiwanis séu sýnileg ? kveðja Júlía

Ný skilaboð

Nafn:

Message:

fjórir plús fimm =

Ruslsía